Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gunnar Bragi sagður fórnarlamb á Klausturbarnum – „Alþingi á að biðja þessa einstaklinga afsökunar“

Gunnar Bragi sagður fórnarlamb á Klausturbarnum – „Alþingi á að biðja þessa einstaklinga afsökunar“
Gunnar Bragi Sveins­son, Mynd/ skjá­skot RÚV

Einar G. Garð­ars­son fast­eigna­sali vill að Gunnar Bragi Sveins­son, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og einn svo­nefndra Klaust­ur­karla, verði beð­inn afsök­unar á því að orð hans og fleiri þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins voru tekin upp á laun og gerð opin­ber. Þessi krafa hans kemur fram í aðsendri grein Einars á vef­miðl­inum Vísi í dag þar sem sú skoðun höf­undar að Gunnar Bragi og félagar séu fórn­ar­lömd er rök­studd.

„Gunnar Bragi var hluti af þeim þing­mönnum sem sátu að sum­bli á bar og sam­ræður þeirra sem engir utan­að­kom­andi áttu að heyra voru teknar upp. Einka­sam­ræður á milli fárra ein­stak­linga. Sem síðar voru birtar í fjöl­miðlum, sjón­varpi og að auki fluttar óbreyttar í Borg­ar­leik­hús­inu, leik­húsi Reyk­vík­inga. Til hvers? Jú, til að meiða og kór­óna það svo með sýn­ingu í leik­húsi borg­ar­búa?“ skrifar Einar.

„Hjólum í hel­vítis tík­ina!“

Gunnar Bragi var ein­stak­lega orð­ljótur í upp­tök­unni þar sem hann var að skemmta sér með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­manni sínum og fleiri ráða­manna úr Mið­flokknum og Flokki fólks­ins. Karl­arnir í Mið­flokknum töl­uðu meðal ann­ars með ógeð­felldum hætti um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. „Hjólum í hel­vítis tík­ina!“ sagði Gunnar Bragi. „Fuck that bitch,“ sagði flokks­bróðir hans, Bergþór Ólason, og bætti svo við: „Þú getur riðið henni skil­urðu.“ Þá sagði hann: „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyr­unum en hún sem ég hef ekki fengið að ríða.“ Sig­mundur Davíð sagð­ist þá vona að konan hans heyrði ekki til hans, en að hann hefði „alveg verið til í þetta dæmi“. Hins vegar hefði komið í ljós að Lilju væri ekki treystandi. „Og hún spilar á karl­menn eins og kven­fólk kann.“

Einar Harð­ar­son segir með­ferðin á Gunnar Braga og félögum sé alþekkt aðferð til að koma höggi á ein­hvern. Þess utan sé þarna um að ræða aðför að lýð­ræð­inu í land­inu.

„Eftir því sem ein­stak­ling­ur­inn eða hóp­ur­inn er þekkt­ari — því betri tíma í sjón­varpi eða pláss á for­síðum blaða fær málið. Upptaka sem sýnir hátt­settan mann leggja í stæði fatl­aðra eða greiða ekki í stöðu­mæli hefur leitt til afsagnar við­kom­andi úr emb­ætti svo ekki sé minnst á fram­hjá­hald sem næst á mynd. Þessi aðferð er kunn­ug­leg og aug­ljós­lega vel þekkt þeim aðilum sem að upp­tök­unni stóðu. Flestir telja ekki leika vafa á að þessi upp­taka var skipu­lögð og ólög­leg. Það er bein og ófyr­ir­leitin aðför að lýð­ræð­inu,“ skrifar Einar og rök­styður síðan að nauð­syn­legt sé að biðja Gunnar Braga og félaga hans afsök­unar. Þar þurfi Alþingi að koma til skjal­anna.

„Þetta mál kemur í raun ekki per­són­unni Gunnari Braga við eða ann­arra á umræddum bar. Þetta kemur við alla þjóð­ina og á hvaða veg­ferð hún er. Það sem hlýtur að vera verst er dóm­greind­ar­leysi Alþing­is­manna. Að þeir skuli hafa leyft sér að taka málið fyrir í siða­nefnd Alþingis og brjóta þannig stjórn­ar­skrá Íslands. Hér á jú að vera mál­frelsi, a.m.k. í einka­sam­ræðum! Að auki tel ég að fæstir muni hvað sagt var í þessum upp­tökum nema þá ein­staka lang­ræknir aðilar. Alþingi á að biðja þessa ein­stak­linga afsök­unar og um leið Geir Haarde fyrir ein­göngu að sinna starfi sínu,“ skrifar Einar G. Harð­ar­son og áréttar að þeir kjós­enduyr sem ekki vilji kjósa Mið­flokk­inn vegna þessa máls geri sjálft sig að athlægi.

Grein Einars í heild sinni.

Mörgum hefur eflaust þótt eitt­hvað um að sjá Gunnar Braga í fram­boði fyrir Mið­flokk­inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hvers vegna? Jú m.a. af þeirri ein­földu ástæðu að Gunnar Bragi var hluti af þeim þing­mönnum sem sátu að sum­bli á bar og sam­ræður þeirra sem engir utan­að­kom­andi áttu að heyra voru teknar upp. Einka­sam­ræður á milli fárra ein­stak­linga. Sem síðar voru birtar í fjöl­miðlum, sjón­varpi og að auki fluttar óbreyttar í Borg­ar­leik­hús­inu, leik­húsi Reyk­vík­inga. Til hvers? Jú, til að meiða og kór­óna það svo með sýn­ingu í leik­húsi borg­ar­búa?

Þessi aðferð er þekkt þegar koma á höggi á ein­hvern sem ekki er hægt að koma höggi á með öðrum hætti og hefur henni oft verið beitt. Slíkt hefur alltaf haft sömu áhrif. Tekið er upp sam­tal eða atvik um við­kvæm mál í leyni og þau síðan birt. Eftir því sem ein­stak­ling­ur­inn eða hóp­ur­inn er þekkt­ari — því betri tíma í sjón­varpi eða pláss á for­síðum blaða fær málið. Upptaka sem sýnir hátt­settan mann leggja í stæði fatl­aðra eða greiða ekki í stöðu­mæli hefur leitt til afsagnar við­kom­andi úr emb­ætti svo ekki sé minnst á fram­hjá­hald sem næst á mynd. Þessi aðferð er kunn­ug­leg og aug­ljós­lega vel þekkt þeim aðilum sem að upp­tök­unni stóðu. Flestir telja ekki leika vafa á að þessi upp­taka var skipu­lögð og ólög­leg. Það er bein og ófyr­ir­leitin aðför að lýð­ræð­inu.

Sig­mundur Davíð seg­ist vita hver stóð að upp­tök­unni. Kannski er best að láta það liggja því margir hafa verið meiddir í þessu máli. Í stríði gilda Gen­far­samn­ing­arnir um hvernig fara skuli með stríðs­fanga en njósn­arar sem eru gripnir eru leiddir beint að gráa veggnum og skotnir. Þarna var óum­deil­an­lega um njósnir að ræða.

Ef refsa á ein­stak­lingum sem segja orð í einka­sam­tali og eru ekki sögð til að meiða, en meiða engu að síður þar sem þau eru tekin upp, birt og gerð opin­ber þar sem þau vit­andi meiða … hver ber þá sök­ina? Við höfum lög til að halda uppi rétt­læti en sumt fólk telur sig yfir þau hafið í nafni rétt­trún­aðar. Að meiða á kostnað ann­arra.

Þetta mál kemur í raun ekki per­són­unni Gunnari Braga við eða ann­arra á umræddum bar. Þetta kemur við alla þjóð­ina og á hvaða veg­ferð hún er. Það sem hlýtur að vera verst er dóm­greind­ar­leysi Alþing­is­manna. Að þeir skuli hafa leyft sér að taka málið fyrir í siða­nefnd Alþingis og brjóta þannig stjórn­ar­skrá Íslands. Hér á jú að vera mál­frelsi, a.m.k. í einka­sam­ræðum! Að auki tel ég að fæstir muni hvað sagt var í þessum upp­tökum nema þá ein­staka lang­ræknir aðilar. Alþingi á að biðja þessa ein­stak­linga afsök­unar og um leið Geir Haarde fyrir ein­göngu að sinna starfi sínu.

Hugsun Voltaire var lýst með þessi setn­ing: „Ég er ósam­mála skoðun þinni en ég myndi verja með lífi mínu rétt þinn til að segja hana.“

Fólk á Íslandi sem hefur greind­ar­vísi­tölu í eða yfir með­al­lagi sér hvernig þjóð­fé­lags­á­stand hefur orðið með Woke og #MeToo stefn­urnar. Rétt­lætið á að vera eft­ir­sótt. Því höfum við rétt­ar­ríki, lög og reglur. En slíkt er fótum troðið.

Fólk sem seg­ist ekki ætla að kjósa Mið­flokk­inn út af þessu máli gerir sig að hálf­gerðu athlægi fyrir að vera svo sneytt skyn­semi og rétt­læt­is­kennd. Enda er Mið­flokk­ur­inn við­ur­kenndur í dag sem stjórn­mála­afl með fullan rétt og ætti ekki bara að fá fjölda atkvæða lands­manna heldur að verða leið­andi afl í íslenskum stjórn­málum með for­sæt­is­ráðu­neytið undir sínum hatti. Kristrún Frosta­dóttir í Sam­fylk­ing­unni hefur einnig með mál­flutn­ingi sínum vakið upp spurn­ingar með ummælum sínum um Woke-ismann.

Yfir­gang­ur­inn og rétt­trún­að­ur­inn er slíkur að maður spyr hvort í land­inu búi tvær þjóðir? Það er ekki hægt að sam­sama sig því fólki sem finnst rétt í lýð­ræð­is­ríki að svipta fólk lífs­við­ur­væri og til­veru­rétti fyrir það eitt að segja nokkur orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við