Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Páll Vilhjálmsson ákærður: „Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi“

Páll Vilhjálmsson ákærður: „Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi“
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

„Vin­gjarn­legur lög­reglu­maður bank­aði upp á hjá til­fallandi á mið­viku­dag. Erindið var að afhenda ákæru frá lög­reglu­stjór­anum í Reykja­vík. Til­fallandi var kunn­gjört að ef hann mætti ekki í fyr­ir­kall á til­settum tíma í hér­aðs­dómi Reykja­vík yrði hann hand­tek­inn og færður í járnum fyrir dóm.“ Þannig hefst ný blogg­færsla fram­halds­skóla­kenn­ar­ans Páls Vil­hjálms­sonar en hann talar um sig í þriðju per­sónu af ein­hverri ástæðu en blogg­síða hans kallar hann Til­fallandi athuga­semdir.

Páll seg­ist í fyrsta hafa talið að verið væri að grín­ast í sér en svo hafi ekki verið.

„Til­fallandi hélt í fyrstu að um grín væri að ræða. Næsta gisk var að blaða­menn­irnir í byrl­unar- og síma­mál­inu ættu hlut að máli, væru komnir með höf­uð­borg­ar­lög­regl­una í verk­taka­þjón­ustu. Svo reynd­ist ekki vera. Lög­reglu­mað­ur­inn vina­legi var hvorki með upp­á­komu í til­efni hrekkja­vöku né sak­born­inga úr röðum blaða­manna. Hann afhenti ákæru­skjalið og kvitt­ana­blað um hvenær þing­fest­ing yrði í hér­aðs­dómi. Rifj­að­ist upp fyrir til­fallandi að hafa verið kall­aður síð­sum­ars í skýrslu­töku hjá lög­reglu vegna árs­gam­allar kæru for­manns lífs­skoð­un­ar­fé­lags. Er ekk­ert heyrð­ist um fram­hald gerði til­fallandi ráð fyrir að kæran hefði farið í ruslið. Svo var ekki.“

Því næst segir Páll frá ákærunni en hún snýr að skrifum hans um Trans­fólk.

„Og hver var þá ákæran?

Jú, til­fallandi, að mati lög­reglu­stjór­ans í Reykja­vík, braut gegn 233. gr. a. hegn­ing­ar­laga. Laga­greinin er svohljóð­andi:

Hver sem opin­ber­lega hæð­ist að, róg­ber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða ann­ars konar tján­ingu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóð­ern­is­upp­runa eða þjóð­legs upp­runa, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða, fötl­unar, kynein­kenna, kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum.

Þetta er sama orða­lag og var á laga­grein er bann­aði guð­last. Sér­trú­ar­hópar vilja skjól í lögum eins og kristni forðum.“

Fram­halds­skóla­kenn­ar­inn segir síðan frá mál­inu frá sinni hlið:

„Kemur þá að meintum brotum til­fallandi á 233. gr. a. hegn­ing­ar­laga. Haustið 2023 var umræða í sam­fé­lag­inu um aðgengi Sam­tak­anna 78 að leik- og grunn­skólum með áróður um kynja­mál. Upplýst var að texti og myndefni frá sam­tök­unum sem haft var til kennslu sam­rýmd­ist ekki sið­ferð­is­vit­und þorra almenn­ings. Börnum var kennt um kyn­líf á þann hátt að mörgum ofbauð. Til­fallandi var á þeirri skoðun að Samtökin 78 ættu ekk­ert erindi í leik- og grunn­skóla með sér­visku sína um kyn og kyn­líf. Lífs­skoð­un­ar­fé­lagið sem kennir sig við 78 heldur fram bábiljum um að hægt sé að fæð­ast í röngu kyni og mælir með lim­lest­ingu kyn­færa séu þau af rangri sort.

Áður en umræðan um kennslu­efnið vafa­sama hófst haustið 2023 hafði til­fallandi vakið athygli á að trans­hug­mynda­fræðin væri ekki barnaglingur. Í jan­úar 2023 skrif­aði hann um vegg­spjaldi er dreift var leik­skóla með þeim boð­skap Sam­tak­anna 78 að eðli­legt sé að óskyldur full­orð­inn ræði við smá­börn um ást­ar­hug. Þar sagði m.a.:

Með leyfi, hvernig dettur nokkrum í hug að róm­an­tískar kenndir skuli vera á dag­skrá í leik­skóla? Hvers vegna er ,,ást og skot“ til umræðu fyrir börn 2-6 ára? Börn á þessum aldri hafa engar for­sendur til að skilja róm­an­tískar til­finn­ingar. Aðeins fólk með veru­lega brenglaða hugsun lætur sér til hugar koma að færa í tal við smá­barn, sér óskylt, að verða ,,skot­inn“ í ein­hverjum.“

Þegar hér er komið við sögu í færslu Páls er hann kom­inn á skrið og talar um karl í konu­líki og þann sem ákærði skrif hans:

„Haustið 2023 fór umræðan um starf Sam­tak­anna 78 á flug. Vegna umræð­unnar var for­sæt­is­ráðu­neytið knúið til að birta yfir­lýs­ingu. Gerist ekki á hverjum degi. Aðdrag­andi umræð­unnar var nokkur. Í nóv­em­ber 2022 hætti starfs­maður Sam­tak­anna 78 eftir ásak­anir um kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Sumarið 2023 var aftur frétt um karl í konu­líki sem á vegum Sam­tak­anna 78 stund­aði fræðslu í einn stað en í annan stað áleitni gagn­vart börnum. Í báðum til­vikum er Álfur Birkir Bjarna­son for­maður Sam­tak­anna 78 til svara.

Álfur Birkir taldi haustið 2023 að nóg væri komið af nei­kvæðri umræðu um Samtökin 78 og starf þeirra í leik- og grunn­skólum. Nú skyldi hefja gagn­sókn og kæra þá fyrir hat­urs­orð­ræðu sem and­mæltu starfi lífs­skoð­un­ar­fé­lags­ins meðal smá­barna og grunn­skólakrakka. Álfur Birkir kærði í októ­ber 2023 til­fallandi til lög­reglu. Í eitt ár hafði lög­reglan málið til skoð­unar og lætur nú til skarar skríða. Hvað fann lög­reglan í bloggskrifum sem hægt væri að ákæra fyrir? Jú, blogg frá 13. sept­em­ber 2023. Tvær efn­is­greinar eru teknar úr blogg­inu sem til­fallandi skal sæta fang­elsi fyrir í allt að tvö ár.“

Páll er greini­lega algjör­lega ósam­mála ákærunni og telur orð sín um Samtökin 78 ekki fela í sér hat­urs­orð­ræðu:

„Efn­is­grein­arnar eru eft­ir­far­andi:

1. Samtökin 78 eru regn­hlíf­ar­sam­tök og lífs­skoð­un­ar­fé­lag full­orð­inna sem áhuga­samir eru um klám, kyn­líf, kynja­ver­öld og tæl­ingu barna.

2. Kennslu­efnið er tæl­ing dul­búin sem upp­lýs­ingar. Meðfædd blygð­un­ar­semi barna er skipu­lega brotin niður. Börn eru gerð mót­tæki­leg fyrir þátt­töku í kyn­lífi og það jafn­vel ofbeld­iskyn­lífi – BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfs­mynd og talin trú um að þau séu mögu­lega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óör­ugg eru síður í stakk búin að veita við­nám full­orðnum með eitt­hvað mis­jafnt í huga. Út á það gengur tæl­ingin.

Þetta kallar Álfur Birkir for­maður Sam­tak­anna 78 hat­urs­orð­ræðu og lög­reglan í Reykja­vík étur það upp eftir honum. Ekkert er talað um hatur í hegn­ing­ar­laga­grein­inni, 233 gr. a., sem til­fallandi á að hafa brotið gegn. Hat­urs­orð­ræða er orð upp úr hand­bókum aktí­vista sem kenna skoð­ana­and­stæð­inga um hat­urs­hug. Í með­förum aktí­vista og sið­ferð­is­deildar höf­uð­borg­ar­lög­regl­unnar verður heil­brigð skyn­semi að hatri. Í laga­grein­inni sjálfri segir: ,,Hver sem opin­ber­lega hæð­ist að, róg­ber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna…“

Læsir á íslensku sjá að engin hótun er höfð í frammi, hæðni kemur ekki fyrir í kærðum texta, eng­inn rógur, þar sem í blogg­inu eru til­vís­anir í efnið sem er til umræðu. Þá er eftir smánun sem er gam­alt hug­tak um að óvirða eitt­hvað. Ef lög­reglan tæki upp á því að ákæra fyrir opin­ber ummæli er sýna við­fangs­efn­inu ekki hátt­vísi myndu dóm­stólar gera fátt annað en að dæma menn fyrir virð­ing­ar­leysi.“

Að lokum segir fram­halds­skóla­kenn­ar­inn umdeildi að lög­reglan sé með þess­ari ákæru að „hlut­ast til um opin­bera umræðu frjálsra borg­ara um sam­fé­lags­leg mál­efni“ og sé að taka að sér „verk­töku fyrir Samtökin 78 að þagga niður í þeim sem and­mæla lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu“.

„Með ákærunni hlut­ast lög­reglan til um opin­bera umræðu frjálsra borg­ara um sam­fé­lags­leg mál­efni. Lög­reglan tekur að sér í verk­töku fyrir Samtökin 78 að þagga niður í þeim sem and­mæla lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu og sér­trú­ar­boð­skap þeirra í leik- og grunn­skólum.

Til­fallandi er orð­inn hag­vanur í dóms­sal. Blaða­menn í byrl­unar- og síma­mál­inu hafa stefnt honum fyrir dóm og nú lög­reglan í Reykja­vík. Mála­ferlum fylgir óhag­ræði og fjár­út­lát. Lesendur sem láta sér annt um frjálsa umræðu og gjalda var­hug við rit­skoðun, hvort heldur sak­born­inga eða lög­reglu, geta sýnt stuðn­ing með fram­lagi. Sjá reikn­ing hér uppi til vinstri.

Svo má auð­vitað velta fyrir sér að láta fjöl­miðla eina um að halda úti reglu­legum fréttum og skoð­anapistlum. En til­fellið er að þeim veitir ekki af aðhaldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina