Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leynilegar upptökur með syni Jóns um baktjaldamakk: „Hafði dregið son minn á asnaeyrunum“

Leynilegar upptökur með syni Jóns um baktjaldamakk: „Hafði dregið son minn á asnaeyrunum“
Jón Gunn­ars­son þing­maður

Jón Gunn­ars­son, frá­far­andi alþing­is­maður og aðstoð­ar­maður mat­væla­ráð­herra, segir í færslu á Facebook að sonur hans hafi verið blekktur af sviss­neskum fjár­festi til að upp­lýsa um mál­efni föður síns og bak­tjalda­samn­inga varð­andi ákvörðun hans um að taka bar­áttu­sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kraganum. Sonur Jóns hafi hitt mann­inn undir þeim for­merkjum að þeir myndu eiga við­skipti.

„Fyrir tveimur mán­uðum hafði „sviss­neskur fjár­festir“ frá „Meitri Group“ sam­band við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjár­festa í fast­eignum hér á landi. Sonur minn, sem er fast­eigna­sali, átti í fram­hald­inu fjar­fund með mann­inum, sem kom svo hingað til lands. „Fjár­festir­inn“ sótti son minn á bif­reið með einka­bíl­stjóra og skoð­uðu þeir nokkur verk­efni víða um höf­uð­borg­ina og fóru út að borða í lok dags,“ segir Jón.

Nú sé komið á dag­inn að Sviss­lend­ing­ur­inn hafi tekið upp einka­sam­töl. Jón segir í ítar­legri færslu á Facebook í morgun að fjöl­skylda hans hafi sætt aðför. Hann hótar lög­sókn og kæru vegna máls­ins.

„Und­an­farnar vikur virð­ist hafa verið settur á svið vel skipu­lagður blekk­ing­ar­leikur sem leik­inn er í margar vikur,“ skrifar Jón.

Hann segir blaða­menn Heim­ild­ar­innar, Aðal­steinn Kjart­ans­son og Helgi Seljan, hafi verið að baki Sviss­lend­ingnum í að blekkja son sinn.

„Aðal­steinn Kjart­ans­son og Helgi Seljan, blaða­menn á Heim­ild­inni og fyrr­ver­andi sam­starfs­menn tveggja fram­bjóð­enda Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar, hringdu sam­tímis í mig og son minn síð­asta föstu­dag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöld­spjalli sonar míns og „fjár­fest­is­ins“. Sérstök heima­síða var búin til fyrir fjár­fest­ing­ar­sjóð­inn í þessum blekk­ing­ar­leik en síð­unni var lokað í fram­haldi af sím­tölum blaða­mann­anna,“ skrifar Jón.

Jón sagði á Bylgj­unni í morgun að Sam­fylk­ingin tengd­ist mál­inu en vildi þó ekki full­yrða um aðild fram­bjóð­enda flokks­ins að upp­tök­unum.

„Ég vil ekki tjá mig um frétta­flutn­ing sem ekki hefur átt sér stað,“ segir Aðal­steinn Kjart­ans­son við Mannlíf í morgun.

Færsla Jón í heild sinni:

Ég og fjöl­skylda mín erum sleg­inn yfir því hversu langt svokölluð rann­sókn­ar­blaða­mennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og sið­laust. Und­an­farnar vikur virð­ist hafa verið settur á svið vel skipu­lagður blekk­ing­ar­leikur sem leik­inn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heim­ildir til þess eins að blekkja son minn í þeim til­gangi að koma höggi á mig. Sagan er eft­ir­far­andi.

Fyrir tveimur mán­uðum hafði „sviss­neskur fjár­festir“ frá „Meitri Group“ sam­band við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjár­festa í fast­eignum hér á landi. Sonur minn, sem er fast­eigna­sali, átti í fram­hald­inu fjar­fund með mann­inum, sem kom svo hingað til lands. „Fjár­festir­inn“ sótti son minn á bif­reið með einka­bíl­stjóra og skoð­uðu þeir nokkur verk­efni víða um höf­uð­borg­ina og fóru út að borða í lok dags.

Í síð­ustu viku kom hins vegar í ljós að mað­ur­inn hafði villt á sér heim­ildir, dregið son minn á asna­eyr­unum vikum saman án þess að ætla nokkurn tím­ann að eiga nein við­skipti. Þvert á móti virð­ist mark­miðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólög­mætum upp­tökum að tala um mig og hval­veiðar. Aðal­steinn Kjart­ans­son og Helgi Seljan, blaða­menn á Heim­ild­inni og fyrr­ver­andi sam­starfs­menn tveggja fram­bjóð­enda Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar, hringdu sam­tímis í mig og son minn síð­asta föstu­dag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöld­spjalli sonar míns og „fjár­fest­is­ins“. Sérstök heima­síða var búin til fyrir fjár­fest­ing­ar­sjóð­inn í þessum blekk­ing­ar­leik en síð­unni var lokað í fram­haldi af sím­tölum blaða­mann­anna.

Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan sept­em­ber, áður en rík­is­stjórn­inni var slitið og ráð­herrar VG sögðu sig frá ráðu­neytum sínum. Um helg­ina fékk ég tölvu­póst frá Aðal­steini á Heim­ild­inni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurn­ingar, sem ljóst er að byggja á efni úr sam­tali sonar míns við „fjár­fest­inn“.

Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið bar­áttu­sætið á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn því að fá að fara inn í mat­væla­ráðu­neytið til þess að gefa út leyfi til hval­veiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálf­sögðu enga stoð í raun­veru­leik­anum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum sam­kvæmt hafa aðstoð­ar­menn engar heim­ildir til að taka stjórn­sýslu­á­kvarð­anir eða gefa út leyfi af nokkru tagi.

Það var mat Bjarna Bene­dikts­sonar að mála­flokkar mat­væla­ráðu­neyt­is­ins, sem er eitt atvinnu­vega­ráðu­neyt­anna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráð­herra nokk­urra ráðu­neyta í starfs­stjórn. Forveri hans í ráðu­neyt­inu var þar með tvo aðstoð­ar­menn. Mála­flokkar ráðu­neyt­is­ins eru fjöl­margir og umsókn um leyfi til hval­veiða á grund­velli gild­andi laga aðeins eitt fjöl­margra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferða­lag mitt á alþjóða­hval­veiði­ráð­stefn­una og hver hafi greitt fyrir ferð­ina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostn­aði við ferða­lagið sjálfur en af spurn­ingum blaða­mann­anna að dæma virð­ist sonur minn hafa að ein­hverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld.

Ég hef verið lengi í stjórn­málum og fæ reglu­lega á mig gagn­rýni sem þing­maður og fyrir mínar stjórn­mála­skoð­anir. Það er hluti af því að starfa á þessum vett­vangi. Að ráð­ast beint gegn fjöl­skyld­unni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjöl­skyldur þing­manna eiga ekki undir neinum kring­um­stæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjöl­miðlum eða erlendum hags­muna­að­ilum og þrýsti­hópum. Sonur minn er venju­legur fjöl­skyldu­faðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að elt­ast við gylli­boð svika­hrapps sem engin inni­stæða var fyrir. Í þeim sam­skiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjár­festi og tryggja við­skiptin, en fór rangt með í ein­hverjum málum sem þar voru til umræðu.

Sonur minn hefur leitað til lög­manns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna máls­ins enda hefur verið gróf­lega brotið gegn frið­helgi einka­lífs hans með ólög­mætum upp­tökum sem honum varð ekki kunn­ugt um fyrr en Helgi Seljan upp­lýsti hann um það.

Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnu­brögð eins og þessi talin óvið­eig­andi og ólíð­andi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagn­vart sjálf­bærri nýt­ingu auð­linda. Afstaða mín til hval­veiða byggir á sjálf­bærni veiða við Íslands­strendur, menn­ingu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berj­ast fyrir íslenskum hags­munum og sjálf­bærri nýt­ingu auð­linda okkar þrátt fyrir þessar ógeð­felldu til­raunir til að fæla mig frá mínu starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina