Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þekktir tjá sig um hlerunarmálið: „Jón er birtingarmynd spillingar“

Þekktir tjá sig um hlerunarmálið: „Jón er birtingarmynd spillingar“
Jón Gunn­ars­son

Fátt annað er talað um á kaffi­stofum lands­ins en hler­un­ar­mál Jóns Gunn­ars­sonar en fjöl­margir lands­menn eru afar ósáttir við upp­ljóstrun Heim­ild­ar­innar, ef dæma má út frá sam­fé­lags­miðl­unum. Hér má sjá nokkur við­brögð þjóð­þekktra ein­stak­linga sem birt­ust á Facebook.

Björn Þor­láks­son, rit­höf­undur, fram­bjóð­andi Flokks fólks­ins og starfs­maður Sam­stöð­unnar spyr hvort um sé að ræða besta vin aðal, en nýút­komin bók hans heitir sama nafni og fjallar um spill­ing­ar­mál á Íslandi.

Björn: „Besti vinur aðal? Fenginn til að skíta­mixa, víla og díla bak við tjöldin. Undir fölsku flaggi. Nàið þið spill­ing­unni? Í flestum öðrum ríkjum væru menn búnir að segja af sér en hér eigum við helst að læra af mál­inu að hata fjöl­miðla og blaða­menn.“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri kallar málið „afhjúpun ald­ar­innar“:

„Afhjúpun ald­ar­innar.Það skiptir engu máli hvað Bjarni Bene­dikts­son og Jón Gunn­ars­son segja um málið.Allir munu trú höf­uð­vitn­inu betur, Gunnari Berg­manni Jónssyni, syni Jóns Gunn­ars­sonar.Það er virki­lega ömur­legt að heyra Jón Gunn­ars­son saka son sinn um lygar og rang­færslur.Síðan var það virki­lega stór­brotið að heyra Jón Gunn­ars­son saka Sam­fylk­ing­una um að hafa skipu­lagt plottið!

Þetta er svo ömur­legt að það verður bara nokkuð fyndið!“

Einar Stein­gríms­son, stærð­fræð­ingur og sam­fé­lags­rýnir er nokkuð harð­orður í garð Jóns Gunn­ars­sonar:

„Jón greinir ekki frá neinu sem bendir til að Heim­ildin hafi átt nokkurn þátt í hler­un­unum. En það er svo sem ekk­ert nýtt; það er alltaf svo erfitt að átta sig á hvort Jón er ein­fald­lega naut­heimskur eða bara froðu­fellandi af reiði af því hann fær ekki það sem hann vill.“

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata biður fólk að detta ekki í „með­virkni með spill­ing­unni“:

„Nei. Það er ekki aðför að lýð­ræð­inu að upp­lýsa um spill­ingu.Það er upp­ljóstr­ara­vernd af því að það þarf oft að brjóta lög til þess að deila upp­lýs­ingum um spill­ingu.

Spill­ingin er verri en upp­ljóstr­unin. Vin­sam­leg­ast dettum ekki í með­virkni með spill­ing­unni.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata segir málið und­ir­strika mik­il­vægi sér­stakrar stofn­unar sem rann­saki spill­ingu á land­inu:

„Þetta rugl­aða mál varð­andi Jón Gunn­ars­son og útgáfu hval­veiði­leyfis til fimm ára korter í kosn­ingar und­ir­strikar mik­il­vægi þess að setja á fót sér­staka stofnun sem rann­sakar spill­ingu á Íslandi. Það vill svo heppi­lega til að Píratar eru með það á sinni stefnu­skrá!“

Birgitta Jóns­dóttir, ljóð­skáld og fyrrum alþing­is­kona skrif­aði stutta færslu um málið með vísan í nýja bók Björns Þor­láks­sonar:

„Jón er birt­ing­ar­mynd spill­ingar og þess að vera besti vinur aðal.“

Síðar í dag bætti Birgitta við annarri færslu um málið þar sem hún beitti kald­hæðn­inni óspart: „Aumingja Jón Gunn­ars­son, mikið skelf­ing á hann bágt. Það eina sem hann er sekur um er að vera virki­lega góður vinur. Ég sendi honum inni­legar sam­úð­ar­kveðjur. Megi hans flekk­leysi, auð­mýkt og mann­gæska ævar­andi vera okkur hinum leið­ar­ljós í góðum mann­kostum og læra af honum hvernig á að auð­sýna öðrum umburð­ar­lyndi.“

Davíð Þór Jónsson, prestur og fram­bjóð­andi Sós­í­alista skrif­aði stutta Facebook-færslu en sterka:

„Þegar það er glæpur að afhjúpa glæp er okkur stjórnað af glæpa­mönnum.“

Atli Þór Fanndal, fyrr­ver­andi blaða­maður og fyrrum fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International bendir fólki á Facebook sem er að velta mál­inu fyrir sér, að lesa bók um sam­skipti glæpa­manna:

„Þið sem eruð að velta fyrir ykkur hvers­konar vit­leys­ingur blaðri um spill­ingu við erlendan fjár­festi sem hann þekkir lítið þurfið að lesa Diego Gambetta Codes of the underworld – how criminals communicate. Aula­skapur og heimska eru trust build­ing í þessum heimi. Þær eru nefni­lega systur Spilling og Fúsk.“

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, verk­efna­stjóri umhverfis- og lofts­lags­mála hjá Samtök sveit­ar­fé­laga og atvinnu­þró­unar á Norð­ur­landi eystra og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata hæð­ist að Jóni í Facebookfærslu þar sem hún kallar hann „hjartaknús­ara“:

„Hjartaknús­ar­inn Jón Gunn­ars­son er miður sín yfir því að öll þjóðin viti nú að hann tók 5. sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn því að hval­veiðar yrðu leyfðar. „Aðför að lýð­ræð­inu“ hrópar þessi elska sem er jú algjör jarð­ýta þegar kemur kemur að spill­ing­ar­málum á Íslandi. Hann hindr­aði að Alþingi fengi aðgengi að gögnum frá Útlend­inga­stofnun því honum þókn­að­ist svo og sá um að kvóta fyrir hrogn­kelsi væri úthlutað til fjöl­skyldu­með­lima svo fátt eitt sé nefnt. Sönn íslensk hetja.

#Égfæí­hnéin

“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina