Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Frambjóðandi VG skólaði Jens, Sigurjón og Ingvar: „Jú, það er þjóðarmorð í gangi í Palestínu“

Frambjóðandi VG skólaði Jens, Sigurjón og Ingvar: „Jú, það er þjóðarmorð í gangi í Palestínu“
Séra Sindri Geir Ósk­ars­son

Fram­bjóð­endur þriggja flokka í Norð­aust­ur­kjör­dæmi telja morð Ísraela á yfir 43.000 Palest­ínu­mönnum á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum ekki vera þjóð­ar­morð.

Stúd­entar í Háskól­anum á Akureyri héldu pall­borðsum­ræður með fram­bjóð­endum flokk­anna sem bjóða sig nú fram til Alþingis, um helg­ina. Þórunn Þór­halls­dóttir bar upp spurn­ingar í tveimur liðum til allra fram­bjóð­and­anna, og árétt­aði að hægt væri að svara með ein­földu já-i eða nei-i. Spurn­ing­arnar voru eft­ir­far­andi:

1. PERSÓNULEGA skoðun; er verið að fremja þjóð­ar­morð í Palest­ínu?

2. Telur þú og þinn flokkur að beita ætti við­skipta­þving­unum á Ísrael.

Fyrstur til að svara var Ari Orrason sem bíður sig fram í 2. sæti Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi: „Svarið við báðum spurn­ing­unum er já.“

Sigurjón Þórð­ar­son sem býður sig fram í 1. sæti Flokks fólks í kjör­dæm­inu svar­aði báðum spurn­ingum neit­andi og tal­aði um stríðs­á­stand á milli tveggja ríkja sem hófust eftir hryðju­verk 7. októ­ber.

Jens Garðar Helgason sem er í 1. sæti lista Sjálf­stæð­is­flokks í kjör­dæm­inu svar­aði því til að farið sé „frjáls­lega með orðið „þjóð­ar­morð“.“ Sagði hann að sam­kvæmt skil­grein­ing­unni sé ekki um þjóð­ar­morð að ræða. Þá vill hann ekki beita Ísrael við­skipta­þving­unum.

Ingvar Þór­odds­son svar­aði næst en hann býður sig fram sig fram í 1. sæti Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Tók hann undir með Jens Garðari um að ekki væri um að ræða þjóð­ar­morð sam­kvæmt skil­grein­ing­unni. „Ef að við­skipta­þving­anir er eitt­hvað sem hjálpar fólki að hætta að deyja þarna, í þessu stríði, þá er það auvitað eitt­hvað sem þyrfti að skoða“.

Næstur til að svara var Skúli Bragi Geirdal, sem býður sig fram í 4. sæti Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Skúli sagði já við þjóð­ar­morð­inu og að það ætti jafn­vel að beita við­skipta­þving­unum.

Séra Sindri Geir Ósk­ars­son sem skipar 1. sæti Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs gerði sér lítið fyrir í sínu svari og las skil­grein­ingu íslenskra laga á þjóð­ar­morði og sagði: „Það vill svo til að skil­grein­ingin á þjóð­ar­morði er í íslenska laga­bók­stafnum. Eft­ir­taldir verkn­aðir telj­ast hóp­morð eða þjóð­ar­morð: Þegar þeir eru fram­kvæmdir í þeim til­gangi að útrýma með öllu eða hluta þjóð, þjóð­ern­is­hópi, kyn­stofni eða trúflokki sem slíkum. Að drepa ein­stak­linga úr við­kom­andi hópi, það er í gangi í Palest­ínu. Að valda ein­stak­lingum úr við­kom­andi hópi alvar­legum lík­am­legum eða and­legum skaða, það er í gangi í Palest­ínu. Að þröngva við­kom­andi hópi af ásetn­ingi til að búa við lífs­skil­yrði sem miða að lík­am­legri eyð­ingu hóps­ins eða hluta hans, það er í gangi í Palest­ínu. Að beita þving­un­ar­að­gerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barns­fæð­ingar í hópnum, það er í gangi í Palest­ínu. Að flytja börn með valdi úr hópnum til ann­ars hóps, það er í gangi í Palest­ínu. Og hver sá sem hvetur til á opin­berum vett­vangi með beinum hætti, aðra til að fremja hóp­morð, skal sæta fang­elsi allt að ævi­langt. Þetta er í íslenskum lögum og jú, það er þjóð­ar­morð í gangi í Palest­ínu, það er mín skoðun, það er skoðun hreyf­ing­ar­innar og já við eigum að slíta stjórn­mála­sam­starfi og setja á allar þær við­skipta­þving­anir sem við mögu­lega getum.“

Áhorf­endur í salnum brugður afar vel við svari Sindra Geirs og klöpp­uðu ákaft.

Logi Ein­ars­son, sem býður sig fram í 1. sæti Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu svar­aði því til að álit nefndar á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna væri það að margt benti til þess að um sé að ræða þjóð­ar­morð og sagð­ist hann hall­ast að því líka. Þá tal­aði hann fyrir því að fylkja nágranna­þjóðum saman um að beita Ísrael við­skipta­þving­unum.

Theodór Ingi Ólafsson sem skipar 1. sæti Pírata í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sagði já við báðum spurn­ingum. 

Inga Dís Sig­urð­ar­dóttir sem býður sig fram í 4. sæti Mið­flokks­ins í kjör­dæm­inu svar­aði því til að per­sónu­lega telji hún að um þjóð­ar­morð sé að ræða en er ekki á því að við­skipta­þving­anir sé málið.

Gunnar Viðar Þór­ar­ins­son, sem leiðir Lýð­ræð­is­flokk­inn í kjör­dæm­inu sagð­ist á því að þjóð­ar­morð sé nú framið í Palest­ínu og reyndar víðar í heim­inum en er ekki á því að við­skipta­þving­anir leysi eitt­hvað.




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina