Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Litlu stóru mál“ Svandísar – Vill kjósa um ESB

„Litlu stóru mál“ Svandísar – Vill kjósa um ESB
Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna.

Eins og flestir vita eru alþing­is­kosn­ingar handan við hornið og kosn­inga­bar­átta flokk­anna í fullum gangi. Eins og getur og ger­ist eru mál­efni sem eru lyk­il­at­riði í kosn­inga­bar­áttu og fyrir þessar kosn­ingar hafa hús­næð­is­mál, vextir, verð­bólga og mál­efni hæl­is­leit­enda verið aðal­málin hingað til.

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Nú er komið að Svandísi Svav­ars­dóttur, for­maður Vinstri grænna, að svara

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Ég tel ekki að það sé æski­legt að auka frelsi í veð­mála­starf­semi hér á landi. Ég tel þó að það sé mik­il­vægt að setja skýr­ari lag­ara­mma en nú gildir um veð­mála­starf­semi, en starf­semin á sér ýmsar skugga­hliðar, t.d. spila­vanda. Þá er ekki hægt að líta fram­hjá því að víða erlendis hefur veð­mála­starf­semi verið tengd við pen­inga­þvætti og aðra skipu­lagða glæp­a­starf­semi og því frekar ástæða til að herða eft­ir­lit heldur en að auka frelsi.

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Rétt­inda­bar­átta trans­fólks er gríð­ar­lega mik­il­væg bar­átta og ég styð hana af öllu hjarta. Við sjáum því miður bakslag í umræðu og kynja­jafn­rétti og hinsegin og trans­fólk um þessar mundir, og við því er mik­il­vægt að bregð­ast með öllum til­tækum leiðum.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Það er mjög mik­il­vægt að ríkið komi mynd­ar­lega að því að styrkja listir og menn­ingu, og að mínu mati mætti hækka fram­lög rík­is­ins sem renna til lista og menn­ingar.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Þessi umræða kemur ítrekað upp en jafnt vægi atkvæða hlýtur að vera mark­mið okkar til lengri tíma. VG hefur ekki tekið afstöðu sér­stak­lega til þeirrar spurn­ingar sem hér er lögð fram varð­andi fyr­ir­komu­lag kjör­dæma.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Kristni hefur djúpar rætur í íslensku sam­fé­lagi og hefur verið hluti af menn­ingu, sögu og lög­gjöf hér í meira en þús­und ár. Hins vegar hefur þetta hlut­verk breyst veru­lega á síð­ustu ára­tugum enda sam­fé­lagið orðið fjöl­breytt­ara og frjáls­lynd­ara í trú­ar­brögðum og lífs­skoð­unum.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Hana má tví­mæla­laust bæta um allt land og ég legg áherslu á mik­il­vægi þess að ný þjóð­ar­höll rísi sem fyrst. Ríkið þarf að koma með skipu­lagð­ari hætti að fjár­mögnun íþrótta­hreyf­ing­ar­innar til þess að tryggja að hreyf­ingin hafi sterkan rekstr­ar­grund­völl, þannig að sem flest börn og ung­menni geti tekið þátt í íþrótta­starfi – óháð efna­hag.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Mik­il­vægur

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Að mínu mati er sið­ferð­is­lega vafa­samt að nýta dýr sem verk­færi í þeim til­gangi að fram­leiða lyf. Dýra­vernd þarf að vera tryggð í allri með­ferð dýra, og að mínu mati er þessi starf­semi tíma­skekkja.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Já, ég tel að þjóðin ætti að fá að kjósa um það hvort aðild­ar­við­ræður um inn­göngu í ESB verði hafnar.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrár Íslands?

Stjórn­ar­skrána þarf að end­ur­skoða heild­rænt í skrefum. Ég legg per­sónu­lega mesta áherslu á að auð­linda­á­kvæði verði lög­fest í stjórn­ar­skrá, í þeim til­gangi að tryggja að eig­andi auð­linda, þjóðin, njóti arðs eða auð­lind­arentu þegar einka­að­ilar fá aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind til hag­nýt­ingar í ábata­skyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina