Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lögreglan hætt rannsókn á meintum brotum Semu Erlu og Maríu Lilju: „Þetta er óneitanlega léttir“

Lögreglan hætt rannsókn á meintum brotum Semu Erlu og Maríu Lilju: „Þetta er óneitanlega léttir“
Einar Hálf­dán­ar­son og María Lilja Ing­veld­ar­dóttir-Þrast­ar­dóttir Kemp

Kæru á hendur Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ing­veldar Þrast­ar­dóttur Kemp, hefur verið vísað frá.

Einar H. Hálf­dán­ar­son hæsta­rétt­ar­lög­maður kærði þær Semu Erlu, sem er stofn­andi Solaris sam­tak­anna og Maríu Lilju sem er sjálf­boða­liði sam­tak­anna, til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Einar kærði fjár­söfnun sam­tak­anna Solaris fyrir brott­flutn­ing Palest­ínu­fólks af Gaza til lög­reglu í byrjun mars. Hér­aðs­sak­sókn­ari vís­aði hins vegar mál­inu frá en emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara skip­aði lög­regl­unni að hefja rann­sókn á ný í júlí. Nú hefur lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu aftur hætt rann­sókn á mál­inu, þar sem ekki er tal­inn vera grund­völlur til að halda henni áfram.

Samkvæmt gögnum sem Mannlíf hefur undir höndum hefur þeim Semu Erlu og Maríu Lilju verið til­kynnt að máli gegn þeim um mút­ur­þægni er þær fóru til Egypta­lands í þeim til­gangi að greiða fyrir götur þess að fjöl­skyldur á Gaza kæmust yfir landa­mærin og gæti í kjöl­farið sam­ein­ast fjöl­skyldu­með­limum á Íslandi, hafi verið vísað frá. Kemur þó fram í bréfi lög­regl­unnar til kvenn­anna að komi ný sönn­un­ar­gögn í mál­inu, áskili lög­reglan sér rétt til að opna rann­sókn að nýju. Í gögn­unum sem Mannlíf hefur undir höndum segir að Sema Erla hafi í yfir­heyrslum vegna máls­ins neitað alfarið sök og sagt til­gang sam­tak­anna að bregð­ast við neyð flótta­fólks. Þá kvaðst hún ekki hafa verið í neinum sam­skiptum eða við­skiptum við erlenda emb­ætt­is­menn og sagði að ekki væri um fjár­öflun að ræða heldur við­var­andi inn­streymi fjár­magn og að sam­tökin sé með bók­hald utan um allt auk þess sem árs­reikn­ingar lægju fyrir.

María Lilja hélt því sama fram í yfir­heyrslum, neit­aði sök og sagði enga opin­bera söfnun hafi verið haldin fyrir Solaris, heldur fyrir fólkið á Gaza. Sagði hún einnig að þær hefðu greitt ferða­skrif­stofu til að koma fólk­inu frá Gaza til Rafa í Palest­ínu. Sú ferða­skrif­stofa hafi verið sjálf­stætt starf­andi en ekki rík­is­rekin.

Í bréfi lög­reglu segir enn­fremur:

Í þágu rann­sóknar máls­ins óskaði lög­regla eftir gögnum frá kærðu varð­andi reikn­ings­upp­gjör fjár­söfn­un­ar­innar. Þann 4. sept­em­ber 2024 barst emb­ætt­inu gögn frá lög­giltum end­ur­skoð­anda sem ann­að­ist reikn­ings­upp­gjör vegna fjár­söfn­un­ar­innar. Fram kom að upp­gjör fjár­söfn­un­ar­innar hafi verið í sam­ræmi við inn og útflæði banka­reikn­inga söfn­un­ar­innar og að upp­gjörið hafi verið í sam­ræmi við 6 gr. laga um opin­berar fjár­safn­anir nr. 5/1977.

Í rök­stuðn­ingi lög­reglu kemur fram að engin gögn liggi fyrir um meintar mút­ur­greiðslur kærða til erlendra emb­ætt­is­manna. Á öðrum stað rök­stuðn­ings segir: Hvað varðar brot kærðu gegn lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka nr. 140/2018 að þá verður ekki séð með hvaða hætti kærðu brutu gegn nefndum laga­á­kvæðum í kæru. Engin gögn fylgdu kærunni, sem varpað gæti ljósi á hina meintu refsi­verðu hátt­semi. 

Mannlíf heyrði í Maríu Lilju sem sagðí skrif­legu bréfi að þetta sé sú nið­ur­staða sem hún hafi búist við. Þá segir hún að það vekji spurn­ingar hversu langt þetta fór. Hér má sjá svarið í heild sinni:

„Þetta er auð­vitað sú nið­ur­staða sem ég hafði reiknað með að yrði ofan á, aftur. Það vekur auð­vitað spurn­ingar hversu langt þetta fór og hve lengi við þurftum að bíða öðru sinni eftir sömu nið­ur­stöðu þrátt fyrir að ekk­ert nýtt hafi komið fram í þessu máli en end­ur­upp­taka þess hjá lög­reglu var ekki vegna nýrra sönn­un­ar­gagna heldur form­galla, það vant­aði bara eitt við­hengi með tölvu­pósti sem í sam­skiptum milli stjórn­sýslu­stofn­anna. En þetta er óneit­an­lega léttir. Það er vont að hafa þessar þungu, alvar­legu ásak­anir yfir höfði sér og nú höldum við bara ótrauð áfram veg­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina