Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Njarðvíkuræðina hafa verið handónýta um árabil: „Þeim er andskotans sama þó þetta fari“

Segir Njarðvíkuræðina hafa verið handónýta um árabil: „Þeim er andskotans sama þó þetta fari“

Fyrrum starfs­maður HS Orku segir hina svoköll­uðu Njarð­vík­uræð hafa verið skemmda í ára­tugi á mik­ils við­halds. Annað segir upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku.

Jóhann Viðar Jóhanns­son segir í sam­tali við Mannlíf að þegar hann hafi unnið fyrir HS Orku í upp­hafi tíunda ára­tugar síð­ustu aldar, hafi komið í ljós mikil skemmd á Njarð­vík­ur­æð­inni sem liggur um Svarts­engi og til Njarð­víkur. „Ég var að vinna við að laga þessa lögn. Þetta var 1991 og 1992. Ég hringdi í eina verk­stjór­ann sem þá var og við töl­uðum um þetta og þá stóð til að end­ur­nýja lögn­ina. En ég og annar maður vorum svo látnir bæta lagn­ina en hún var alveg stór­skemmd og alveg á síð­asta snún­ingi. En þá var sett á hana átta kíló [vatsnþrýst­ingur] en núna þegar bær­inn hefur stækkað, þá er þetta komið í tíu kíló. Það er keyrt á tíu kílóum en kerfið er fyrir átta kíló. Og þeim fannst allt of dýrt að fara að end­ur­nýja lögn­ina, þessir pen­ingagúrúar sem keyptu þetta, sem hefði aldrei átt að vera.“

Jóhann Viðar Jóhanns­son

Segir Jóhann að lögnin hafi ekki verið end­ur­nýjuð síðan í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins heldur stag­bætt hér og þar, fyrr en „hraunið tók þetta í burtu“. Bætti hann við: „Það var búið að tala um þetta í mörg ár að grafa hana niður í jörð og setja nýja lögn og að þessi ætti að vera líka til vara. En þetta er sagan enda­lausa. Og þeim, sem eiga þetta, er and­skoti sama þó þetta fari. Þeir eru búnir að tryggja sig alveg í bak og fyrir.“

Mannlíf heyrði í upp­lýs­inga­full­trúa HS Orku, Birnu Lár­us­dóttur og bara undir hana stað­hæf­ingar Jóhanns um að Njarð­vík­ur­lögnin hafi verið ónýt í mörg ár og hún ein­ungis stag­bætt hér og þar. Í skrif­legu svari Birnu kemur fram að á árum áður hafi vissu­lega komið upp vanda­mál tengd lögn­inni, þar sem upp­runa­lega klæðn­ingin utan um stál­rörin hafi reynst ekki nógu þétt og því mynd­ast göt á afmörk­uðum svæðum.

„Fyrir um ald­ar­fjórð­ungi komu upp nokkur vand­ræði með lögn­ina. Upp­runa­lega klæðn­ingin utan um stál­rörin reynd­ist ekki nægi­lega þétt sem varð til þess að raki komst undir klæðn­ing­una og olli ítrekað tær­ingu á lögn­inni sem leiddi til þess að göt mynd­uð­ust á afmörk­uðum stöðum.“

Segir Birna að í kjör­farið hafi farið af stað stærð­ar­innar end­ur­nýj­un­ar­verk­efni á lögn­inni og skemmd­irnar lag­aðar.

„Í kjöl­farið var haf­ist handa við stórt end­ur­nýj­un­ar­verk­efni á lögn­inni. Skemmdir voru lag­færðar og nýjum og mun viða­meiri klæðn­ingum var beitt við að verja lögn­ina gegn raka og veðra­brigðum. Frá þeim tíma hefur lögnin sinnt sínu hlut­verki vel án þess að óeðli­lega mikið við­hald hafi þurft að koma til.“

Birna segir enn­fremur að þó að lögn­ing sé orðin gömul sé stálið í henni ennþá gott og sé klæðn­ing­unni haldið við sé ekk­ert að stál­inu sjálfu.

„Þótt lögnin sé vissu­lega komin til ára sinna er stálið í henni gott og klæðn­ingin utan um hana ver hana vel fyrir veðri og vindum. Eldra stál er jafn gott og nýtt sé því vel haldið við. Ekkert er að stál­inu sjálfu svo fremi sem klæðn­ingin utan um það heldur.“

Að lokum bendir Birna á að flestar hita­veitu­lagnir á Íslandi séu með svip­uðu sniði og sú sem um ræðir í frétt­inni, sem og við­haldið. Segir hún að ástandið Njarð­vík­ur­æð­ar­innar sé gott og að hún hafi staðið af sér jarð­hræðr­ingar og eldsum­brot síð­ustu mán­uða, fram að 14. febr­úar í fyrra.

„Rétt er að benda á að flestar lagnir í hita­veitum hér á landi eru með svip­uðu sniði og Njarð­vík­ur­æðin og við­haldið sam­bæri­legt. Reglu­legt eft­ir­lit er með lögn­inni og við­hald gott. Tæm­ing­ar­loka og sam­skeyti þarf að vakta og tryggja að allt sé vel þétt. Ef frá­vik finn­ast við eft­ir­lit er brugð­ist taf­ar­laust við þeim.

Ástand Njarð­vík­ur­æð­ar­innar er gott og við­hald hennar sömu­leiðis. Hún hefur stað­ist allar jarð­hær­ingar og eldsum­brot síð­ustu mán­uða, jafnt ofanjarðar sem neðan, ef frá er talið þegar gló­andi hraun rann yfir hana 14. febr­úar síð­ast­lið­inn og náði að skemma þann litla hluta hennar sem ekki hafði tek­ist að koma í jörðu í tæka tíð áður en hraun rann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við