Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Húbert sturlaðist af reiði og afbrýðisemi og myrti eignkonu sína – Læknar agndofa yfir áverkum

Húbert sturlaðist af reiði og afbrýðisemi og myrti eignkonu sína – Læknar agndofa yfir áverkum

Árið 1961 bjuggu þau hjón Ásbjörg Har­alds­dóttir og Húbert Rósmann Morthens við Laug­ar­nes­veg í Reykja­vík. Þau hjón voru bæði 35 ára að aldri og höfðu þegar þarna var að komið verið gift í ára­tug. Áttu þau þrjú börn. Hjónband þeirra þótti storma­samt og sam­kvæmt vinum og nágrönnum gekk oft á með lík­am­legum átökum þeirra á milli svo vel heyrð­ist húsa á milli. Bæði lagði Húbert hendur á Ásbjörgu auk þess sem átti það reglu­lega til að slá til hans. Ekki bætti það úr skák að bæði voru hjónin vín­hn­eygð.

Sturlaðist af afbrýðisemi

Húbert starf­aði sem sjó­maður og laug­ar­dag­inn 30. sept­em­ber kom hann til hafnar með tog­ar­anum Nept­únusi frá Þýska­landi.  Hafði hann í för með sér mikið magn af bæði sterku áfengi og bjór.  Ásbjörg fór um borði í Neptúnus að sækja bónda sinn og sáttu þau þar nokkra stund að drykkju áður en haldið var heim á Laug­ar­nes­veg­inn þar sem drykkj­unni var stíft haldið áfram. Harm­leik­ur­inn sem æa eftr fylgdi var meðal ann­ars rak­inn í Morg­un­blað­inu og DV.

Nóttin í móðu

Húbert var einn til frá­sagnar um hvað gerð­ist síðar um nótt­ina en svo virð­ist vera að þau hjón hafi varið nótt­inni ýmist til að elskast eða ríf­ast. Húbert sagði lög­reglu síðar að í ást­ar­leik hefði Ásbjörg kallað upp nöfn ann­arra karl­manna í drykkju­vímu. Við þetta kvaðst Húbert hafa sturl­ast af reiði og afbrýði­semi og barið hana svo illa að hún lá með­vit­und­ar­laus á gólf­inu en taldi Húbert hana þó hafa verið með lífs­marki. Erf­ið­lega gekk þó að fá heil­stæða mynd af atburðum næt­ur­innar sökum ölv­unar­á­stands Húberts sem kvaðst nótt­ina vera að miklu leyti í móðu.

Nágrannar heyrðu gaura­gang­inn en létu sem vind um eyru þjóta enda orðnir vanir ástand­inu á heim­il­inu. Aftur á móti virð­ist svo sem börnin þrjú hafi sofið af sér átökin.

Líkt og eftir bílslys

Húbert logn­að­ist að lokum út af en þegar hann vakn­aði um hádeg­is­bil dag­inn eftir sá hann Ásbjörgu liggja hreyf­ing­ar­lausa og alblóð­uga. Brá honum mjög og hringdi í ætt­ingja sem þegar hringdi á sjúkra­bíl við kom­una á Lauga­nes­veg­inn. Ásbjörg var flutt á sju­kra­hús þar sem hún var þegar úrskurðuð lát­inn og lög­regla kölluð til. Húbert ját­aði umsvifa­laust á sig verkn­að­inn þótt minnið væri glopp­ótt eftir atburði næt­ur­innar og var hann færður í varð­hald.

Læknar voru gátt­aðir á hvernig einn ber­hentur maður hefði getað veitt slíka áverka sem voru á líki Ásbjargar og í krufin­ing­unni stóð: „Miklir mar­blettir og hrufl í and­liti og svo að segja sam­fellt mar undir öllu höf­uð­leðr­inu. Þá fund­ust mar­blettir á útlimum og einnig á brjósti. Á brjóst­kass­anum fund­ust þrjú rif brotin og tvö þeirra tví­brotin. Rifa fannst á þind­inni, en það sem hefur valdið dauða kon­unnar var stór sprunga í lifr­inni sem mikið hefur blætt úr.“ Höfðu læknar á orði að slíkar stór­kost­legar sprungur á lifur hefðu aldrei sést nema eftir alvar­leg bílslys og var talið lík­legt að hoppað hefði veri ofan á Ásbjörgu.

Húbert reynd­ist sak­hæfur við geð­rann­sókn og hlaut sjö ára fang­els­is­dóm fyir mann­dráp í Sakadómi Reykja­víkur þann 7. febr­úar 1962. Húbert áfrýj­aði dómnum og var refs­ingin minnkuð um eitt ár þar sem afbrýði­semi þótti grund­völlur til refsi­lækk­unar.

Hubert gift­ist aftur árið 1963 og eign­að­ist tvö börn til við­bótar. Hann lést árið 2010.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 24. maí 2019 og var það Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir sem skrif­aði hann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni