Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þegar AIDS kom til Íslands: „Hefnd guðs gegn þeim sem eru kynvilltir og misbjóða honum með óeðli“

Þegar AIDS kom til Íslands: „Hefnd guðs gegn þeim sem eru kynvilltir og misbjóða honum með óeðli“

„AIDS á tæp­lega eftir að útrýma mann­kyn­inu. Það verða alltaf eftir ein­hverjir ein­líf­is­menn og hjón sem lifa ein­göngu kyn­lífi innan hjóna­bands­ins og geta ekki smit­ast,“ sagði Haraldur Briem, þáver­andi smit­sjúk­dóma­læknir í sam­tali við DV 9. nóv­em­ber 1985. Orð Haraldar má engan veg­inn túlka sem for­dóma heldur var þekk­ingin á sjúk­dómnum afar lítil, ekki ein­vörð­ungu hjá almenn­ing, heldur einnig á meðal heil­brigð­is­starfs­manna.

Það er erfitt að koma í orð þeirri hræðslu, for­dómum og van­þekk­ingu sem upp gaus upp meðal þjóð­ar­innar eftir að bera fór á HIV veirunni hér á landi upp úr 1983. Sé litið til sam­tíma­miðla síend­ur­taka sig sömu frasarnir: Pestin ólækn­andi væri á pari við löm­un­ar­veiki, berkla og svarta­dauða og vís­ast væri að þeir sem tækju þessa veiki horfð­ust beint í augu við dauð­ann.

Kynvillingaplágan

Fólk var fljótt að benda á söku­dólgana, smit­ber­ana sem settu líf blásaklauss fólks í hættu með til­veru sinni einni: Sam­kyn­hneigða karl­menn eða „kyn­vill­inga“ eins og þá þá þótti eðli­legt að nefna þá. Talað var um „homma­veik­ina“ og „kyn­vill­inga­plág­una.“ Ekki ein­ungis þurftu sam­kyn­hneigðir karl­menn að þola útskúfun og for­dóma heldur þurftu þeir einnig að sjá á eftir vinum og unn­ustum í dauð­ann af völdum sjúk­dóms­ins enda engin lækn­ing þekkt á þessum tíma.

„Hvernig sem það er, þá þykir merki­legt að plágan skuli miða út kyn­vill­inga og mis­þyrma þeim svo hræði­lega“

Í aðsendri grein til DV skrifar Helgi Geirsson að „negrar frá eyland­inu Haítí hafi reynst smit­berar í Banda­ríkj­unum“ og bætir við: „Vegna þess að „AIDS“ hrjáir kyn­vill­inga svo illi­lega, þá hefur nafnið „the gay plague“ eða kyn­vill­inga­plágan á íslensku fest hana í almennu tali”. Helgi segir trú­boða og presta hafa verið fljóta til að benda á að hér sé um að ræða hefnd guðs gegn þeim sem eru kyn­villtir og mis­bjóða þannig nátt­úrulu­lög­málum hans með óeðli sínu. „Hvernig sem það er, þá þykir merki­legt að plágan skuli miða út kyn­vill­inga og mis­þyrma þeim svo hræði­lega“.

Lokaðar kistur og lík í plastpoka

Lítið var vitað um sjúk­dóm­inn fyrstu árin en meðal þeirra sem börð­ust hetju­legri bar­áttu við að reyna að fræða fólk voru meðal ann­ars nokkur fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna, sumir með­limir Sam­tak­anna 78 svo og fleiri. En raddir þeirra máttu sín lít­ils gegn þeim ofsa­fengna ótta sem ríkti.

„Ástandið var svo óhuggu­legt í fyrstu. Lokaðar kistur, lík í plast­poka, engin kistu­lagn­ing“

„Ástandið var svo óhuggu­legt í fyrstu. Lokaðar kistur, lík í plast­poka, engin kistu­lagn­ing.“ Þannig lýsir hjúkr­un­ar­fræð­ingur stöð­unni á smit­sjúk­dóma­deild Borg­ar­spít­al­ans á níunda ára­tugnum og í upp­hafi þess tíunda. Hræðslan var mikil og sjúk­ling­arnir upp­lifðu mikla skömm og margir gripu til þess ráðs að ljúga um orsök veik­inda sinna. Fólk neit­aði að fara í sjúkra­bíla sem það grun­aði um að hafa flutt HIV smit­aða ein­stak­linga, þeir voru jafn­vel hraktir úr vinnu og dæmi eru um að fjöl­skyldur hafi alfarið snúið bakið við þeim.

Einangrunarstöð fyrir smitaða homma

Þótt bágt sé að trúa í dag þá stungu framá­menn í þjóð­fé­lag­inu upp á því í fullri alvöru að koma á fót ein­angr­un­ar­stöð fyrir eyðn­ismit­aða homma. Svona til að koma örugg­lega í veg fyrir að þeir gætu átt sam­skipti við annað fólk. Jafnvel var rætt um að svipta þá sjálf­ræði sem smit­ast hefðu af veirunni.

Og í pistl­inum Dagfara í DV í nóv­em­ber 1985 segir meðal ann­ars: „Nú er það svo að það er ekki hægt að loka slíkt fólk inni í búrum þegar það ferð­ast með strætó en auð­vitað kæmi til greina að merkja hugs­an­lega smit­bera líkt og gyð­inga forðum og vísa þeim á sér­staka bása í vögn­unum öðrum til við­vör­unar. Það er að minnsta kosti betra og ódýr­ara heldur en að aka hverjum og einum vagni í sótt­kví í hvert skipti sem grunur leikur á far­þega sem fengið hefur veiruna eða gæti hafa fengið veiruna eða mundi geta fengið veiruna“.

„Auðvitað kæmi til greina að merkja hugs­an­lega smit­bera líkt og gyð­inga forðum“

Pistill­inn var skrif­aður eftir að  tveir stræt­is­vagnar hefðu verið settir í sótt­kví í tíu klukku­stundir á þvotta­stöð SVR á Kirkju­sandi vegna kjafta­sögu um að „AIDS-veiran“ leynd­ist í vögn­unum. Enginn starfs­maður þorði að stíga inn í vagn­ana.

Neitað að kryfja lík smitaðra

Í bók­inni Ber­skjald­aður, þar sem Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir skráði sögu Einars Þór Jóns­sonar, segir fyrr­nefndur hjúkr­un­ar­fræð­ingur frá hversu eitt starfs­fólkið sem sinnti alnæm­is­sjúkum hafi verið. Að starfs­menn á rann­sókn­ar­stofum spít­al­ans hafi neitað að taka blóð úr sjúk­ling­unum og þeir sem unnu á deild­inni hafi orðið að gera það sjálfir. Erfitt var að fá röntgen­myndir teknar og fá eitt­hvað gert fyrir þá sjúku. „Það voru allir svo hræddir,“ segir hún og veltir fyrir sér ófag­mennsku sér­fræð­ing­anna sem neit­uðu að kryfja lík alnæm­is­sjúk­linga. Smit­sjúk­dóma­lækn­arnir hafi orðið að fram­kvæma krufn­ing­arnar sjálfir.

„Okkur var öllum stillt upp við vegg“

„Fólk sem maður vissi af var að veikj­ast al­var­lega og jafn­vel deyja og þetta hafði mik­il áhrif á alla. En eins mik­ill hryll­ing­ur og HIV var fór­um við að fá upp­lýs­ing­ar frá ábyrg­um aðilum eft­ir að þessi vírus kom upp. Okk­ur var öll­um stillt upp við vegg og við urðum að byrja að tala, sem þýddi að upp­lýs­inga­flæði fór að aukast. Við homm­arn­ir lærðum ým­is­legt um okk­ur sjálfa, en um leið líka rest­ina af þjóð­inni,“ sagði Páll Óskar Hjálmtýs­son í við­tali í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar.

Hann segir að það versta hafi þó verið óvissan. „Ég man að ég þorði ekki að þvo á mér hend­urn­ar á al­menn­ings­kló­sett­um á Hlemmi og þorði ekki að drekka úr sama glasi og ókunn­ugt fólk. HIV sveif á viss­an hátt yfir manni eins og draug­ur sem kem­ur alltaf aft­ur og aft­ur.

Ótt­inn sem fylgdi því að lifa með þess­um vírus er eitt­hvað sem fór ekki úr mag­an­um á mér fyrr en ég fékk bólu­setn­ingu við HIV,“ sagði Páll Óskar í upp­rifjun sinni af þessum skelfi­lega tíma í íslenskri sjúk­dóms­sögu.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 23. júní árið 2021 og var það Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir sem skrif­aði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni