Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kristjana stakk nýfætt barn sitt fimm sinnum – Átti barnið með stjúpa sínum

Kristjana stakk nýfætt barn sitt fimm sinnum – Átti barnið með stjúpa sínum

Aðfar­arnótt 6. ágúst árið 1913 fæddi Krist­jana Guð­munds­dóttir, 22 ára ógift kona í Furufirði, barn í bað­stofu móður sinnar og stjúpa, þeirrar Elínar Jóns­dóttur og Árna Friðriks Jóns­sonar. Enginn hafði vitað af með­göng­unni og ól hún það án þess að nokkur heim­il­is­manna vakn­aði. Hvað síðan gerð­ist var púslað saman eftir frá­sögn Krist­jönu, Elínar og Ragn­heiðar Jóns­dóttur, yfir­setu­konu.

Hófu holdlegt samræði

Fimm árum áður, árið 1908 hafði Árni Friðrik, þá 28 ára að aldri, kvænst Elínu, sem var ekkja með fjögur börn, meðal ann­ars Krist­jönu. Sumarið 1912 byrjar Árni að stunda „hold­legt sam­ræði” við stjúp­dóttur sína, Krist­jönu og við­ur­kenndu bæði síðar að um þrjú slík til­vik hefði verið að ræða.

Krist­jana hafði vet­ur­inn 1911 til 1912 verið í námi í Reykja­vík til yfir­setu og má því telj­ast maka­laust að hún hafi ekki gert sér grein fyrir að hún væri van­fær fyrir en tveimur til þremur dögum áður en að hún ól barnið eins og hún hélt síðar stað­fast­lega fram. Í umfjöllun og dóms­orði þeirra tíma er hvergi efast um þá full­yrð­ingu hennar.

Ýtti frá hugsuninni

Krist­jana sagði síðar fyrir dómi að þegar hún hafi fundið hreyf­ingar barns­ins hafi hún álitið að tölu­vert væri eftir af með­göng­unni og hún myndi taka á mál­unum þegar að fæð­ingu kæmi. Sagði hún hafa ýtt hugs­un­inni frá sér en þó hefði henni komið til hugar að senni­lega væri best að deyða barnið með að klippa í sundur nafla­streng­inn.

Um kvöldið 5. ágúst finnur hún til verkja og ógleði og fæðir barnið um fimm­leitið um morg­unin. Sagði hún hjarta barns­ins hafa slegið en ekk­ert hljóð hafi aftur á móti heyrst í því. Sagðist hún hafa gripið til skæra sem lágu á nátt­borði og ætlað að klippa nafla­streng­inn en verið óstyrk og því hefðu skærin runnið til í hend­inni á henni og farið í barnið. Við yfir­heyrslur síðar sagði hún skærin hafa verið á borð­inu af til­viljun en ákæru­valdið dró það mjög í efa. Hvergi er þess getið í heim­ildum hvors kyns barnið var.

Garnirnar lágu úti

Þegar Elín, móðir hennar, fór á fætur um morg­unin sá hún hvar barnið lá í rúm­inu hjá Krist­jönu og var nafla­streng­unn­inn óklipptur. Elín bar vitni um að barnið hefði aug­ljós­lega verið dáið því það var orðið kalt. Ómögu­legt er að geta sér til um við­brögð hennar hvað þá sam­tal hennar við dóttur sína,  en má ætla að henni hljóti að hafa verið brugðið.  Tók Elín líkið af barn­inu eftir að hafa klippt á milli, setti í fat og út í skemmu. Var barnið það illa skorið á kvið að garn­irnar lágu út. Því næst sendi Elín bróðir sinn með bréf til Ragn­heiðar Jóns­dóttur, yfir­setu­konu á Höfða­strönd og bað hana um að senda krampa­lyf en best væri þó ef hún kæmi sem og Ragn­heiður gerði.

Ragn­heiður sá strax hvað hafði átt sér stað en sá sér ekki fært vegna kostn­aðar að senda sýslu­manni bréf sem hún þó gerði með næstu póst­ferð sem ekki var fyrr en 20. ágúst, tæpum tveimur vikum síðar. Var þá búið að jarða barnið.

Með fullri ráð og rænu

Sýslu­maður brást skjótt við og lét umsvifa­laust grafa barnið upp og gerði hér­aðs­læknir lík­skoðun. Fundust tvær stungur á hálsi þess og þrjár á kvið. Hér­aðs­læknir hélt því enn­fremur fram að barnið hefði verið full­burða við fæð­ingu og fæðst lif­andi. Hann hafn­aði alfarið að barnið hefði kafnað, stung­urnar hefðu orðið því að bana. Sýslu­maður hafn­aði því einnig að skærin hefði runnið til í hendi Krist­jönu með þeim afleið­ingum að barnið fékk fimm stungur.

Sýslu­maður taldi að um ásetn­ings­brot væri að ræða þótt að Krist­jana mót­mælti því og bar fyrir sig að muna lítið atburði. Sýslu­maður benti þá á hversu vel Krist­jana hefði falið fæð­ing­una í þögn sem sann­aði að hún hefði aldrei ætlað barn­inu líf. Hún hafi enn­fremur farið fram á að fá krampa­lyf frá Ragn­heiði sem sýndi að hún hafi verið með fullri ráð og rænu.

Dómur fellur

Þegar Elín fann líkið af barn­inu kvað Árni bróður sinn vera föður barns­ins og fékk hann til að sam­þykkja það og skrá sig sem föður í kirkju­bók. Þegar yfir­völd komu hins vegar að mál­inu og hófu yfir­heyrslur gaf Árni sig og við­ur­kenndi að hafa barnað stjúp­dóttur sína.

Bæði Krist­jana og Árni voru kærð fyrir sifja­spell auk þess Krist­jana var ákærð fyrir morðið á barn­inu. Bæði voru dæmd til betr­un­ar­hússvinnu, Árni í átta mán­uði en Krist­jana í þrjú ár. Enn­fremur voru þau dæmd til að greiða laun tals­manns síns, fimm krónur, svo og laun sækj­anda og verj­anda, alls fimmtán krónur.

Ekki er að finna heim­ildir hvað síðar varð um þau Krist­jönu og Árna né hvort Elín hafi slitið hjóna­band­inu í kjöl­far atburð­anna.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 12. júlí árið 2021 og var það Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir sem skrif­aði hann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni