Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði stóð í ströngu síðdegis að bjarga hundi úr sjálfheldu í fjallinu Hólmatindi. Snatbratt er þar þar sem hundurinn var og þurfti viðbúnað til að nálgast hann. Mannlíf heyrði Í Kristófer Mána Gunnarssyni hjá björgunarsveitinni Brimrúnu. Hann staðfesti að verkefnið hefði verið krefjandi. Dróni var notaður til að staðsetja hundinn.

Frá björguninni í Hólmatindi. Baltó í öruggum höndum.
„Frá því að kallið kom tók þrjá tíma að koma okkur upp og niður með hundinn. Þetta voru krefjandi aðstæður og mikill bratti,“ segir Kristófer í samtali við Mannlíf.Hundurinn heitir Baltó er kominn heilu og höldnu niður á Eskifjörð. Hann er þriggja ára af tegundinni English setter.































Athugasemdir