Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Barnaráðherra sviðsetti opnun meðferðarheimilis fyrir kosningar: „Í dag opnaði Ásmund­ur Ein­ar“

Barnaráðherra sviðsetti opnun meðferðarheimilis fyrir kosningar: „Í dag opnaði Ásmund­ur Ein­ar“
Frá meintri opnun með­ferð­ar­heim­il­is­ins. . Mynd; Far­sældarún.

Ásmundur Einar Daðason, frá­far­andi ráð­herra, átti þátt í því ásamt Ólöfu Ástu Farest­veit, for­stjóra Barna- og fjöl­skyldu­stofu, að svið­setja opnun með­ferð­ar­heim­ilis í Blöndu­hlíð í Mos­fellsbæ örskömmu fyrir kosn­ingar. Boðað var til blaða­manna­fundar þar sem ráð­herr­ann var mættur ásamt for­svars­mönnum hins nýja heim­ilis. Þremur vikum síðar hefur heim­ilið enn ekki verið opnað.

Umrætt heim­ili er á svo­nefndu Far­sæld­ar­túni þar sem unnið er að hönn­un nýs þjón­ustu­kjarna fyr­ir börn og ung­menni. Mark­miðið að byggja upp mið­stöð sam­starfs lyk­il­stofn­ana og fé­laga­sam­taka sem starfa að vel­ferð barna. Blöndu­hlíð er ætlað börnum, 13-18 ára, sedm glíma við fíkni­vanda og tekur við verk­efnum af Stuðlum.

Í dag var tekið stórt skref

Morg­un­blaðið, einn þeirra fjöl­miðla sem voru gabb­aðir, segir frá því að þremur vikum eftir sýnd­ar­opn­un­ina  sé starf­semi enn ekki hafin í hús­inu. Eng­in starf­semi er á heim­il­inu í dag og hefur Barna- og fjöl­skyldu­stofa enn ekki fengið starfs­leyfi fyr­ir Blöndu­hlíð.

„Í dag opn­aði Ásmund­ur Ein­ar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, með­ferðar­heim­ilið Blöndu­hlíð, sem stað­sett er á Far­sæld­ar­túni í Mos­fells­bæ,“ sagði í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins 26. nóv­em­ber, aðeisn fjórum dögum fyrir kosn­ingar. Á þeim tíma lá fyrir að heim­ilið yrði ekki opnað. Í til­kynn­ingu á vef Far­sæld­ar­túns þann sama dag var slegið á sömu strengi.

„Í dag var tekið stórt skref að því að gera Far­sæld­ar­tún að þjón­ustu­kjarna fyrir börn og ung­menni þegar með­ferð­ar­heim­ilið Blöndu­hlíð var opnað. Með­ferð­ar­heim­ilið er á vegum Barna- og fjöl­skyldu­stofu og er ætlað ung­mennum á aldr­inum 13-18 ára sem glíma við hegð­unar- og fíkni­vanda og verður við­bót við grein­ingar- og með­ferð­ar­deild Stuðla. Með til­komu Blöndu­hlíðar verður hægt að aðgreina betur börn með mis­mun­andi vanda og veita sér­hæfð­ari þjón­ustu. Börn með þyngri vanda fá áfram grein­ingu og með­ferð á með­ferð­ar­deild Stuðla en í Blöndu­hlíð verður opn­ara úrræði er finna má á Stuðlum og verður Blöndu­hlíð ætluð þeim börnum og ung­mennum sem glíma við væg­ari vanda,“ segir í til­kynn­ing­unni sem stendur enn á vef Far­sæld­ar­túns.

Morg­un­blaðið ræddi við Funa Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóra með­ferð­ar­sviðs Barna og fjöl­skyldu­stofu, sem kveðst vona að hægt verði að opna heim­ilið í janú­ar kom­andi. Hann vildi þó ekki lofa neinu um það og sagði að að bruna­hönn­uður væri að klára að hanna rým­ing­ar­á­ætl­un og bruna­út­tekt. Þegar það væri afgreitt gæti heim­ilið fengið starfs­leyfi.

Morg­un­blaðið spurði Funa út í orða­lagið í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins, þar sem full­yrt er að með­ferðar­heim­ilið hafi verið opnað.

„Það hefði mátt vanda það bet­ur, þannig að við vær­um ekki í þess­ari stöðu.“

Ásmundur Einar náði ekki kjöri í kosn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina