Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Misjöfn viðbrögð við nýrri ríkisstjórn: „Fer næstum í taugarnar hvað ég er sáttur við þetta upphaf“

Misjöfn viðbrögð við nýrri ríkisstjórn: „Fer næstum í taugarnar hvað ég er sáttur við þetta upphaf“
Inga, Þor­gerður og Kristrún Mynd: Facebook

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokk fólks­ins var kynnt í dag og eins og alltaf sýn­ist sitt hverjum.

Margir hafa tjáð sig á sam­fé­lags­miðl­unum í dag um hina nýju rík­is­stjórn „Val­kyrj­anna“ en hér fyrir neðan má sjá við­brögð nokk­urra þekktra ein­stak­linga:

Helgu Völu Helga­dóttur, lög­manns og fyrr­ver­andi þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar lýst mjög vel á rík­is­stjórn­ina. Skrifaði hún eft­ir­far­andi Facebook-færslu:

„Mér líst mjög vel á þessa nýju rík­is­stjórn og ráð­herrana sem þar munu nú taka til starfa. Sama má segja um stefnu­skrána og hlakka til að fylgj­ast með starfi þess­arar nýju rík­is­stjórnar. Þarna er lyk­il­at­riði að sam­staða ríki því held að við séum öll orðin buguð af þessum hnífa­send­ingum milli stjórn­ar­flokka sem við höfum þurft að þola frá því fyrir kosn­ing­arnsr 2021 sér í lagi frá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Til ham­ingju öll, vinir mínir sem nú takið við flóknum verk­efnum. Ég veit að þið munuð standa ykkur.“

Píratinn Björn Leví Gunn­ars­son, sem datt af þingi í síð­ustu kosn­ingum hrósar rík­is­stjórn­inni fyrir að fá utan­þings­ráð­herra í fjár­mála­ráðu­neytið. Hann rit­aði á Facebook:

„Rosalega góð ákvörðun að fá utan­þings­ráð­herra í fjár­mála­ráðu­neytið. Það þýðir að það ráðu­neyti verður minna póli­tískt og fagráðu­neytin fá að bera meiri ábyrgð á fjár­málum sínum.“

Illugi Jök­uls­son, fjöl­miðla­maður og rit­höf­undur seg­ist vera hálf pirr­aður yfir því hversu ánægður hann sé með rík­is­stjórn­ina.

„Eftir öll þessi ár og allar þessar mis­vitru rík­is­stjórnir, þá finnst mér ég vera stjórn­ar­and­stæð­ingur í eðli mínu. Þess vegna fer það næstum í taug­arnar hvað ég er sáttur við þetta upp­haf. Mér finnst ég ætti að vera kvart­andi og kvein­andi. En þetta lítur bara vel út!“

Lög­mað­ur­inn og þing­maður emeritus, Brynjar Níelsson hæð­ist auð­vitað að hinni nýju rík­is­stjórn og seg­ist á Facegbook ætla að halda áfram að vera í fýlu.

„Jæja, þá er komin á kopp­inn ný rík­is­stjórn á Íslandi í anda Olaf Scholz í Þýska­landi, Keir Starmer í Bret­landi og Jonasar Gahr Störe í Noregi, sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa hrunið í fylgi á met­hraða í sínum löndum. En á Íslandi er mik­ill fögn­uður sem jafna má við komu frels­ar­ans þótt eng­inn af þessum flokkum hafi nokkurn tíma gert nokkuð gagn svo heitið geti.

Ég ætla samt að halda áfram að vera í fýlu, eins og ég hef verið síð­ustu ár og sumir segja svo lengi sem elstu menn muna. Kann ekk­ert annað og líður bara vel í fýlu. Ekki að ástæðu­lausu að ég er upp­nefndur Ebbi á mínu heim­ili með til­vísun í Ebenezer Scrooge úr frægu jóla­æv­in­týri.“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir sem var hárs­breidd frá því að kom­ast á þing í kosn­ing­unum er sorg­mædd yfir því að ekk­ert hafi verið talað um útsvar á fjár­magnstekjum á blaða­manna­fund­inum. Skrifaði hún eft­ir­far­andi tvær færslur á Facebook:

„Fyrstu við­brögð við blaða­manna­fundi nýrrar rík­is­stjórnar varð­andi hús­næð­is­mál:Hús­næð­is­mark­að­ur­inn var nefndur í kynn­ingu nýrrar rík­is­stjórnar og fjallað um bráð­að­gerðir sem eigi m.a. að taka á skamm­tíma­leigu, minnka á vægi verð­trygg­ingar í íslensku hag­kerfi og styðja á hús­næð­is­fé­lög án hagn­að­ar­sjón­ar­miða.

Eins og við vitum þá eru hús­næð­is­málin eitt það stærsta sem þarf að laga í íslensku sam­fé­lagi, hefði viljað heyra meira um hvernig gott og rétt­látt hús­næð­is­kerfi verður byggt upp.“

Og svo:

„Ekkert um útsvar á fjár­magnstekjur hjá þess­ari nýrri rík­is­stjórn? Við færsl­una setti hún grát­andi broskall.

Lilja D. Alfreðs­dóttir, frá­far­andi ráð­herra síð­ustu rík­is­stjórnar óskar nýrri rík­is­stjórn vel­farn­aðar og notar tæki­færið í færslu sinni á Facebook til að þakka fyrir und­an­farin ár.

„Óska nýrri rík­is­stjórn vel­gengni fyrir land og þjóð! Á þess­ari stundu fyllist ég þakk­læti og auð­mýkt. Það hafa verið mikil for­rétt­indi að fá að vinna fyrir fólkið í land­inu að fjöl­mörgum fram­fara­málum. Ég hef stýrt þremur ráðu­neytum í tæp níu ár: utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu. Þetta hefur verið frá­bær tími með dásam­legu fag­fólki. Hlakka til næsta tíma­bils.“

Rit­stjóri Wikileaks, Kristinn Hrafns­son stingur upp á nafni fyrir rík­is­stjórn­ina:

„Það er nokkuð smart að val­kyrjur kynni nýja rík­is­stjórn á vetr­ar­sól­stöðum, á þessum hvarf­punkti þegar myrkrið byrjar að víkja fyrir hækk­andi sól. Þetta er forn hátíð­is­dagur og stærri en þeir sem smokrað var í síð­ari tíma dag­töl.Vetr­ar­sól­stöðu­stjórn gæti hún líka heitið.Á eftir að lús­lesa stjórn­ar­sátt­mál­ann og læt vera að leggja mat á hann núna. Margt þar hljómar vel en það má nú yfir­leitt segja um flesta slíka sátt­mála.Mér þykir nokkuð klókt að sækja ráð­herra fjár­mála utan þings úr fag­legu umhverfi aka­dem­í­unnar þó að Daði Már sé vita­skuld Við­reisn­ar­maður í þessu emb­ætti.Það er rétt að óska rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur vel­farn­aðar, svona á fyrsta degi. Vænt­an­lega koma margir dagar síðar þar sem ég gagn­rýni hennar verk – þekki ég mig rétt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við