Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mest lesnu Orðrómar ársins 2024 – Villi Vill, Víðir og verulega ósmekklegur brandari

Mest lesnu Orðrómar ársins 2024 – Villi Vill, Víðir og verulega ósmekklegur brandari
Gunna Dís. Mynd: Facebook

Orðrómar Mannlífs hafa lengi verið vin­sælir en hér fyrir neðan má sjá lista yfir tíu mest lesnu Orð­rómana árs­ins 2024.

10. Vil­hjálmur æpti á son­inn

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son Mynd / Facebook.

Nokkurt upp­nám varð á þorra­blóti Stjörn­unnar í Garðabæ þegar stjörnu­lög­mað­ur­inn Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son er sagður hafa misst stjórn á skapi sínu undir uppi­standi Helga Brynjars­sonar, sonar veislu­stjór­ans Brynjars Níels­sonar. Eitthvað fór grín Helga um skjól­stæð­ing Villa, Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrir brjóstið á lög­mann­inum en í Orðróm­inum er ýjað að því að lengi hafi andað köldu á milli Villa og Brynjars.

9. Reiðufé Jóns Ásgeirs 

Lág­vöru­versl­unin Prís opn­aði 2024 en því fögn­uðu margir enda sam­keppni alltaf af hinu góða. Hins vegar voru það þó nokkrir sem hváðu við er þeir heyrðu að ekki yrði tekið við reiðufé í versl­un­inni og hétu því að stíga aldrei fæti þar.

8. Víðir skal skamm­ast sín

Fjöl­margir Grind­vík­ingar voru óánægðir með Almanna­varnir sem á tíma­bili þóttu beita nokk­urri ofstjórn að margra mati varð­andi aðgengi bæj­ar­búa að bænum. Eigandi fisk­vinnsl­unnar Ein­ham­ars, Stefán Krist­jáns­son gagn­rýndi Almanna­varnir og Víði Reyn­is­son harð­lega í Facebook-færslu og sagði hann og fleiri sem að mál­inu kæmi, mættu skamm­ast sín fyrir „fanta­skap­inn“.

7. Gísla Marteins saknað

Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva fór fram árið 2024 eins og mörg önnur ár en hún var með umdeild­ara móti þar sem Ísrael var leyft að keppa, þrátt fyrir stríðs­glæpi sína gegn Palest­ínu­mönnum, á sama tíma og Rússum var meinuð þátt­taka vegna inn­rás­ar­stríðs þeirra í Úkraínu. Gísli Marteinn Bald­urs­son, sem verið hefur kynnir keppn­innar um ára­bil, harð­neit­aði að lýsa keppn­inni vegna sam­visku sinnar en var fjöl­miðla­konan Guðrún Dís Emils­dóttir fengin í hans stað. Mörgum þótti frammi­staða hennar undir með­al­lagi og sökn­uðu Gísla Marteins mikið, aldrei þessu vant.

6. Gísli Marteinn óæski­legur

Áður en Gísli Marteinn ákvað að bjóða ekki fram krafta sína í Júró­visjón-söngvakeppn­ina í Malmö, var því velt fyrir sér í Orðrómi Mannlífs, hvort RÚV-arar teldu Gísla Martein æski­legan til að lýsa keppn­inni, í ljósi afstöðu hans gagn­vart þjóð­ar­morð­inu á Gaza. Gísli hafði þar að auki ekki farið leynt með aðdáun sína á Palest­ínu­mann­inum Bashar Murad, sem tap­aði naum­lega fyrir Heru Björk í söngvakeppn­inni hér heima.

5. Leitað að Höllu Hrund

Halla Hrund Loga­dóttir

Halla Hrund Loga­dóttir, sem var afar áber­andi fyrir for­seta­kosn­ing­arnar síð­ustu, bauð sig fram til þings fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Var talað um hana sem von­ar­stjörnu hins gamla bænda­flokks en mörgum þótti hún lítið sjást í kosn­inga­bar­áttu flokks­ins en eftir á að hyggja, þá kom það ekki að sök því jú, hún náði á þing.

4. Hjóna­band Snorra í upp­námi

Nadine Guðrún Yaghi, sam­skipta­stjór Play.

Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi gengu í það heilaga á Siglu­firði árið 2024, að því er þau töldu með lög­legum hætti en annað kom á bát­inn. Nadine Guðrún sagði frá því í þætti á Rás 1 að Þjóðskrá hafi neitað að skrá hjú­skap­inn sem lög­gildan nema að fá frum­rit af fæð­ing­ar­vott­orði brúð­ar­innar. Vandinn lá þó þannig að Nadine Guðrún er fædd í Katar og þar liggur frum­ritið. Stjórn­völd þar í landi harð­neit­uðu að senda frum­ritið í pósti og kröfð­ust þess að hún kæmi sjálf og sótti það.

3. Ólafur Darri fjar­lægður

Ólafur Darri kann að dansa. Mynd / Skjáskot RÚV.

Einn ást­sæl­asti leik­ari Íslands, Ólafur Darri Ólafsson birti bráð­skemmti­legt mynd­skeið á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann sýndi óvænta dans­hæfi­leika sína ásamt dóttur sinni. Hins vegar var mynd­skeiðið horfið dag­inn eftir af inter­net­inu af ein­hverri ástæðu en lifir lík­lega áfram í hjörtum þeirra sem náðu að sjá danstakta Hollywood-leik­ar­ans fót­fráa.

2. Klandur vegna Karenar

Halla Hrund Loga­dóttir.

Halla Hrund Loga­dóttir varð upp­vís að vand­ræða­legri stað­reynd þegar kosn­inga­bar­áttan um Bessa­staði stóð sem hæst. Morg­un­blaðið benti nefni­elga á það að Karen Kjart­ans­dóttir, þáver­andi sam­skipta­stjóri Orku­stofn­unar hafi verið að vinna að kosn­ing­unum í sjálf­boða­vinnu fyrir yfir­mann sinn, Höllu Hrund og á verk­taka­launum frá Orku­stofnun.  í Orðróm­inum var ýjað að því að Sara Lind Guð­bergs­dóttir, þá bráða­birgða­orku­mála­stjóri og eig­in­kona Mogga­spyrils­ins Stefáns E. Stef­áns­sonar, hafi veitt Morg­un­blað­inu upp­lýs­ingar um málið.

1. Patrik slaufað

Vin­sæl­asti Orðrómur árs­ins 2024 fjallar um upp­nám á sam­fé­lags­miðlum vegna afar ósmekk­legs brand­ara tón­list­ar­manns­ins Patriks Snæs Atla­sonar, eða Prett­yboitjokko eins og hann er stundum kall­aður. Patrik var í útvarps­þætt­inum Veislan á FM957 þegar hann lét brandar­ann sleppa úr vörum sér. Snérist brand­ar­inn um nauðgun en Patrik spurði inn­hringj­anda hvort hann hyggð­ist taka með sér botn­laust tjald á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum, sem er vísun í hrotta­lega nauðg­un­ar­að­ferð. Þættinum var slút­tað og allt benti til þess að Patrik yrði sömu­leiðis slaufað en raunin varð að lokum önnur, enda vin­sældir hans í dag nærri óskilj­an­legar, að sumra mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina