Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum

Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Neil Woods

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á  alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir um miðjan októ­ber síð­ast­lið­inn. Woods sem starf­aði bresku lög­regl­unni um ára­bil og tókst þar á við harðsvíraða glæpa­menn, hvetur íslensk stjórn­völd til að hefja ferlið til lög­leið­ingar sem fyrst.  

Woods lýsir því í við­tal­inu hvernig hann byggði upp tengsl í glæpa­heim­inum til þess að safna upp­lýs­ingum um sölu og inn­flutn­ing ólög­legra vímu­efna. Í fyrstu hafði hann óbilandi trú á verk­efn­inu en hún dofn­aði smám saman og hvarf fyrir fullt og allt eftir stóra aðgerð í Nort­hampton. Woods hafði þar ving­ast við umfangs­mikla glæpa­menn og viðað að sér nöfnum, síma­núm­erum og tengt saman helstu per­sónur og leik­endur. Þegar málið var orðið skot­helt voru hund­ruð lög­reglu­manna kall­aðar til og voru hand­tökur fjöl­margar. Í kjöl­farið voru áhrifin af aðgerðin metin og nið­ur­staðan var reið­ar­slag fyrir Woods. Talið var að sú röskun sem varð á fíkni­efna­mark­aðnum í Nort­hampton hefði ein­göngu sam­svarað tveimur klukku­stundum.

Starfið hafði gríð­ar­lega nei­kvæð áhrif á sál­ar­líf Woods en hann þurfti oft að not­færa sér neyð fólks sem glímdi við vímu­efnafíkn í stað þess að veita aðstoð. Þá varð hann bæði vitni að miklu ofbeldi og varð fyrir því sjálfur. „Það var í Leicester árið 2001 sem ég keypti í fyrsta skipti heróín af barni. Það var sjald­gæft í þá daga en þykir eðli­legt í dag. Þetta var góður drengur en á hálfu ári í brans­anum breytt­ist hann í óarg­ar­dýr. Í síð­asta skipti sem ég keypti af honum þá lamdi hann höfð­inu á mér í ljósa­stór án nokk­urs fyr­ir­vara eða til­efnis, lík­lega til að sýna mér hver væri með valdið. […] Í fullri ein­lægni þá get ég ekki sagt þér hversu oft ég hélt að ég væri að fara deyja. Ég var oft smeykur en þetta var starfið mitt og ég vildi rækja það eftir bestu getu.“

Berst fyrir afglæpavæðingu

Woods starfar í dag fyrir alþjóð­legu sam­tökin LEAP (Law Enforcement Action Partners­hip) sem stofnuð voru í Banda­ríkj­unum árið 2002 af fimm lög­reglu­mönnum sem sáu að fíkni­efna­stríðið var tækni­lega tapað. Í sam­tök­unum eru auk lög­reglu­manna aðrir starfs­menn rétt­ar­vörslu­kerfa, til að mynda fanga­verðir, dóm­arar, sak­sókn­arar og lög­menn, og berj­ast þau fyrir afglæpa­væð­ingu vímu­efna­neyslu og eft­ir­liti með fíkni­efna­mörk­uðum í gegnum reglu­væð­ingu. „Með því móti stöðvum við fyrir fjár­streymi til skipu­lagðra glæpa­hópa og þar með mögu­leika þeirra til að seil­ast til valda, til dæmis í stjórn­málum, með þeirri spill­ingu sem því fylgir. Þann hagnað sem mynd­ast má svo nota til þess að aðstoða það fólk sem lendir í vand­ræðum með vímu­efna­neyslu sína,“ segir Woods og bætir við að það sé stað­reynd að um 90 pró­sent þeirra sem nota ólög­leg vímu­efni geri það án þess að þróa með sér fíkn. Hlut­fallið sé meira að segja hærra hjá þeim sem nota kanna­bis­efni.

Starf­semi LEAP hefur þró­ast í gegnum árin frá því að vera jafn­ingja­fræðsla lög­reglu­manna í Banda­ríkj­unum yfir í það að vera fjöldi fyr­ir­les­ara sem ferð­ast um allan heim. „Við erum hratt stækk­andi hópur og við sinnum allt frá Sam­ein­uðu þjóð­unum og niður í gras­rót­ina. Og það er mik­il­væg­ast að vinna í gras­rót­inni og stækka sam­tökin.“

Þá hvetur Woods íslensk stjórn­völd að huga að þessum málum sem fyrst. Margt gott sé að ger­ast víða um heim, til dæmis í Sviss þar sem heróín hefur verið reglu­vætt og í Kólumbíu þar sem stefnir í að kókaín verði afglæpa­vætt. Allar slíkar aðgerðir minnki umsvif glæpa­hópa, dragi úr ofbeldi, létti á rétt­ar­vörslu­kerf­inu og hrein­lega bjargi manns­lífum.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér að neðan en einnig má hlusta á hann á öllum streym­isveitum eins og Spotify.

Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Neil Woods, Andri Karel sá um skrif og Mickael Lakhlifi sá um tækni­mál. 

Nánar má lesa um starf­semi Hamp­fé­lags­ins á heima­síð­unni hamp­felagid.is. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina