Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð

Brottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð

Búið er að fresta brott­vísun Emmu litlu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, fram yfir mjaðmalið­hlaups­að­gerðar. Vísir segir frá mál­inu.

Fjöl­skylda Emmu fékk upp­runa­lega synjun um dval­ar­leyfi frá kæru­nefnd útlend­inga­mála í nóv­em­ber en þau koma frá Venes­ú­ela. Lögmaður fjöl­skyld­unnar, Jón Sig­urðs­son, sótti þá um leyfi frá Útlend­inga­stofnun svo að fjöl­skyldan fengi dval­ar­leyfi á land­inu þar til Emma kæm­ist í bráð­nauð­syn­lega skurð­að­gerð.

Sjá einnig: Stjórn Solaris for­dæmir fyr­ir­hug­aða brott­vísun á Emmu og skorar á ráð­herra að beita sér

Að ráði íslenskra lækna, hafði Emma litla farið í skurð­að­gerð þar sem fót­legg­ur­inn var festur við mjaðma­grind­ina og málm­plötu komið þar fyrir. Þann 10. febr­úar næst­kom­andi stóð til að fjar­lægja málm­plöt­una en til stóð að vísa fjöl­skyld­unni úr landi á morgun. Fjöl­skyldan sýndi sam­starfsvilja og sótti um aðstoð við sjálf­vilj­uga heim­för en báðu um frestun á heim­för þar til aðgerðin væri yfir­staðin. Á það féllst Útlend­inga­stofnun hins vegar ekki á og var beiðn­inni end­an­lega hafnað í gær.

Degi síðar hefur svo orðið við­snún­ingur í mál­inu en fjöl­skyld­unni barst bréf upp úr klukkan þrjú í dag þar sem þeim var til­kynnt að brott­vís­un­inni yrði frestað fram yfir aðgerð­ina. Var beiðni um frest­un­ina sam­þykkt á grund­velli fram­lags lækn­is­vott­orðs.

„Ég fékk nýtt vott­orð í dag frá lækn­inum sem hefur verið að sinna stelp­unni, fram­kvæmdi aðgerð­ina og kemur til með fram­kvæma næstu aðgerð. Eftir að það barst sendi ég inn nýja beiðni um frestun á þessu og það var sam­þykkt,“ segir Jón Sig­urðs­son, lög­maður hjá Land­lög­mönnum í sam­tali við Vísi. Bætti hann við: „Þau vísa í þetta vott­orð þannig að það skiptir greini­lega máli,“ segir hann.

Aðspurðu hvort ein­hver dag­setn­ing sé á brott­vís­un­inni svarar Jón því til að það sé óskýrt:

„Það er ekki skýrt. En mér finnst mega ætla það út frá þessu svari að það sé miðað við þessa aðgerð og vænt­an­lega ein­hverja eft­ir­fylgni. Hún verður ekki send úr landi nýbúin úr aðgerð. Við erum að tala um ein­hvern tím­ann eftir 10. febr­úar,“ segir Jón. Um næstu skref fjöl­skyld­unnar segir Jón: „Eins og staðan er núna þá er fjöl­skyldan glöð að kom­ast í þessa aðgerð og fók­us­inn er á því.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina