Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þorgerður Katrín stendur með Grænlandi: „Skýr krafa af hálfu Íslands að öll ríki virði alþjóðalög“

Þorgerður Katrín stendur með Grænlandi: „Skýr krafa af hálfu Íslands að öll ríki virði alþjóðalög“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra Íslands, segir afstöðu stjórn­valda skýra gagn­vart Grænd­landi. Þá býst hún ekki við að varn­ar­sam­starf Banda­ríkj­anna við Ísland sé í hættu.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur farið mik­inn síðan hann tók við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna en hann hefur meðal ann­ars lýst yfir áhuga sínum á að eign­ast Grænland. Ekki eru allir sáttir við þann áhuga en Danir eru æfir yfir honum og 85 pró­sent Græn­lend­inga er á móti þeirri hug­mynd að landið verði inn­limað inn í Banda­ríkin.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir í sam­tali við Mannlíf að afstaka íslenskra stjórn­valda sé skýr í mál­inu, Græn­lend­ingar eigi að ráða sinni fram­tíð­ar­sýn.

„Afstaða íslenskra stjórn­valda er skýr, fram­tíð Græn­lands á að vera í höndum Græn­lend­inga og er sam­hljóma ein­dreg­inni afstöðu Norð­ur­land­anna og fleiri Evr­ópu­ríkja,“ segir Þor­gerður Katrín aðspurð um afstöðu Íslands gagn­vart áhuga Banda­ríkja­for­seta á Græn­landi.

Bætir Þor­gerður Katrín því við að krafa Íslands um að öll ríki virði alþjóða­lög séu skýr.

„Þá er sömu­leiðis skýr krafa af hálfu Íslands að öll ríki virði alþjóða­lög, frið­helgi landamæra og land­helgi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt þjóða og á það jafnt við um Banda­ríkin sem og önnur ríki.“

En ótt­ast utan­rík­is­ráð­herra að tolla­refs­ingum verði beitt gegn Íslandi? Ef svo er, er til aðgerð­ar­á­ætlun til að bregð­ast við þeim?

„Utan­rík­is­ráðu­neytið fylgist grannt með umræðu um mögu­legar tolla­hækk­anir Banda­ríkja­stjórnar og á í virkum sam­skiptum við aðild­ar­sam­tök íslensks atvinnu­lífs sem eru í vöru­út­flutn­ingi.“

Að lokum segir Þor­gerður Katrín, aðspurð hvort varn­ar­samn­ingur milli Banda­ríkj­anna og Íslands sé í hættu vegna Græn­lands­á­huga Donalds Trump, að hún búist við því að eiga áfram í nánu öryggis- og varn­ar­sam­starfi við Banda­ríkin. 

„Við gerum fast­lega ráð fyrir að eiga áfram í nánu öryggis- og varn­ar­sam­starfi við Banda­ríkin, okkar nán­ustu banda­menn til ára­tuga. Tvíhliða varn­ar­samn­ingur þjóð­anna frá árinu 1951 lifir enn góðu lífi sem og náið sam­starf okkar á vett­vangi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.“

Ekki svar­aði utan­rík­is­ráð­herra spurn­ingu Mannlífs um það hvort Banda­ríkin fengju að not­ast við Kefla­vík­ur­flug­völl ef Trump hyggð­ist beita hern­að­ar­að­gerð gagn­vart Græn­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina