Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn Valur vill skýringu á einkaferð Höllu: „Forseti Íslands reyndi ítrekað að blekkja fjölmiðla“

Björn Valur vill skýringu á einkaferð Höllu: „Forseti Íslands reyndi ítrekað að blekkja fjölmiðla“
Halla Tóm­as­dóttir Mynd: RÚV – Karl Sigtryggsson

„Halla Tóm­as­dóttir nýkjörin for­seti Íslands reyndi ítrekað að blekkja fjöl­miðla um ástæðu þess að hún sótti ekki minn­ing­ar­at­höfn um hel­för­ina í Auschwitz í lok jan­úar. Hún reyndi sömu­leiðis ítrekað að þvæla málið og afvega­leiða fjöl­miðla um það með hálf­sann­leika í bland við hrein ósann­indi,“ skrifar Björn Valur Gíslason, fyrr­ver­andi alþing­is­maður Vinstri-grænna, um fjar­veru Höllu Tóm­as­dóttir, for­seta Íslans, við minn­ing­ar­at­höfn um Hel­för­ina. Halla tók einka­ferð fjöl­skyld­unnar fram yfir athöfn­ina.

For­seta­emb­ættið var tví­saga í svörum til Rík­is­út­varps­ins sem spurðu um ástæður fjar­veru for­set­ans. Þegar frétta­stofan óskaði fyrst eftir upp­lýs­ingum um það af hverju for­set­inn hefði ekki sótt þessa minn­ing­ar­at­höfn sagði for­seta­skrif­stofan að ekki hefði verið hægt að koma minn­ing­ar­at­höfn­inni heim og saman við dag­skrá for­set­ans.

Björn Valur Gíslason

Frétta­stofa óskaði þá eftir að fá dag­skrá for­seta afhenta. For­seta­skrif­stofan svar­aði að dag­skrá for­set­ans yrði  ekki afhent og að emb­ættið og utan­rík­is­ráðu­neytið ættu í virku sam­tali þegar boð bær­ust um atburði á erlendri grundu. Að þessu sinni hefði nið­ur­staðan orðið sú að Þor­gerður Katrín, sem þegar hefði verið stödd í Evrópu, myndi mæta á minn­ing­ar­at­höfn­ina.

Frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins óskaði þá eftir sam­skiptum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við for­seta­emb­ættið í aðdrag­anda minn­ing­ar­at­hafn­ar­innar í Auschwitz. Rakið er á vef RÚV að þau hófust með því að Friðrik Jónsson, sendi­herra Íslands í Póllandi, sendi póst á utan­rík­is­ráðu­neytið og skrif­stofu for­seta þann 3. des­em­ber, og spyr hvort for­seti hygg­ist sækja þennan við­burð.

stang­ast á við einka­ferð þeirra for­seta­hjóna

Daginn eftir svar­aði Una Sig­hvats­dóttir, sér­stakur ráð­gjafi for­set­ans.

„Forseti er upp­lýst um stöðu mála, en hefur jafn­framt stað­fest að hún hefur því miður ekki tök á að sækja þennan við­burð þar sem hann stang­ast á við einka­ferð þeirra for­seta­hjóna í jan­úar.“

Björn Valur er ómyrkur í máli og telur að Halla Tóm­as­dóttir verði að gera hreint fyrir sínum dyrum „eigi á annað borð að vera hægt að treysta orðum hennar í fram­tíð­inni“.

Bessa­staðir – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Þegar Rík­is­út­varpið reyndi var að graf­ast enn frekar fyrir um hvar for­set­inn hefði verið mánu­dag­inn 27. jan­úar, þegar minn­ing­ar­at­höfnin var haldin, feng­ust þau svör að for­set­inn hefði verið heima á Bessa­stöðum síð­degis.

Samkvæmt til­kynn­ingum í Stjórn­ar­tíð­indum fór for­set­inn til útlanda 17. jan­úar. Í fjar­veru hennar færu for­sæt­is­ráð­herra, for­seti Alþingis og for­seti Hæsta­réttar með vald for­seta. Mánu­dag­inn 27. jan­úar birt­ist síðan aftur aug­lýs­ing í Stjórn­ar­tíð­indum um að Halla Tóm­as­dóttir væri komin úr för sinni til útlanda og hefði á ný tekið við stjórn­ar­störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina