Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Evrópu muni beygja sig undir vilja Bandaríkjanna: „Nú vill húsbóndinn blóðmjólka leiguliðann“

Segir Evrópu muni beygja sig undir vilja Bandaríkjanna: „Nú vill húsbóndinn blóðmjólka leiguliðann“
Félag­arnir Trump og Putin.

„Ef Banda­ríkin hætta stuðn­ingi við Úkraínu munu Evr­ópu­ríkin ekki geta tekið yfir hlut­verk þeirra. Þetta vita allir, Úkra­ínu­menn allra helst. Líka nágranna­ríkin, sem treysta á her­vernd Banda­ríkj­anna og vita mæta vel að Evrópu hefur hvorki her­styrk né her­gagna­fram­leiðslu til að verja sig í alvöru átökum. Og þá skiptir engu þótt Selenskí leggi til evr­ópskan fjöl­þjóð­legan her sem sprytti upp úr her Úkraínu. Evrópa er svo óra­langt frá því að geta tekið umræðu um slíkt að þetta er í raun fásinna.“ Færsla Gunnars Smára Egils­sonar hefst á þennan máta en hana birti hann í dag á Facebook. Þar fer hann yfir ástandið í austur og vest­ur­hveli jarðar, spenn­una á milli Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­ríkja í sam­bandi við stríðið í Úkraínu.

Gunnar Smári segir því næst frá því sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hyggst gera gagn­vart Evrópu:

„Ríkin austar í álf­unni hafa flest í reynd fall­ist á að nota allt að 4% af lands­fram­leiðslu til að kaupa vopn frá Banda­ríkj­unum í skiptum fyrir her­vernd. Þetta er hinn nýi díll Trump. 5% af lands­fram­leiðslu í hernað (225 millj­arðar kr. á íslenskan mæli­kvarða) og þar af 4% (180 millj­arðar kr. á íslenskan mæli­kvarða) til að kaupa banda­rísk her­gögn, til að efla atvinnu­líf vestra. Planið hjá Trump er að selja Evrópu gamla draslið svo her­gagna­iðn­að­ur­inn geti búið til nýjasta nýtt fyrir banda­ríska her­inn. Ríkin vestar, sem hafa enga ástæðu til að ótt­ast inn­rás frá Rússum finnst þetta skilj­an­lega vondur díll. Þau geta von­ast til að Banda­ríkin gangi ekki úr Nató, von­ast til að þau verði ekki neydd til að lama vel­ferð­ar­kerfi sín til að hafa efni á stór­felldri hern­að­ar­upp­bygg­ingu, reynt að fram­lengja óbreytt ástand í trausti þess að Trump deyji og eng­inn jafn slæmur eða verri komi í stað­inn. Það er ósk­hyggja.“

Segir hann enn­fremur að Trump sé að boða stefnu­breyt­ingu gagn­vart Evrópu:

„Trump er að boða stefnu­breyt­ingu gagn­vart Evrópu sem nýtur almenns stuðn­ings hern­aðar-kap­ít­al­ism­ans í USA. Val Vestur-Evrópu er þá að taka upp frið­ar­stefnu sem kallar ekki á hern­að­ar­upp­bygg­ingu til að sækja að eða verj­ast Rússum og öðrum and­stæð­ingum Banda­ríkj­anna. En Evrópu er líka ófær um það. Í raun er póli­tíkin í álf­unni í stór­tjóni, er að falla saman vegna van­trausts á stjórn­völdum og van­getu þeirra til að stýra sam­fé­lög­unum í takt við vilja og vænt­ingar almenn­ings.“

Sós­í­alista­for­ing­inn segir einnig í færsl­unni að Banda­ríkin séu í raun með haustak á Úkraínu:

„Úkra­ínu­menn hafa þegar lofað Banda­ríkja­mönnum auð­lindum í skiptum fyrir þá aðstoð sem þeir hafa þegar fengið, en hafa ekki mikið meira að bjóða. Banda­ríkja­stjórn hefur gefið út að hún vilji stöðva stuðn­ing við stríð sem getur ekki unn­ist. Og það sem meira er; gefið út að Úkraína muni ekki ganga í Nató. Og ef Banda­ríkin vilja ekki að Úkraína gangi í Nató þá gengur Úkraína ekki í Nató. Það vita allir.“

Í lokakafla færsl­unnar byrjar Gunnar Smári á að hæð­ast að íslenskum ráða­mönnum:

„Samt láta íslenskir ráð­herrar eins og þeir geti lagt her­skáar línur í örygg­is­málum Evrópu sem ganga þvert á stefnu Banda­ríkj­anna. Og þeir láta mynda sig með ráða­fólki á Norð­ur­lönd­unum og frá Eystra­salts­ríkj­unum, lík­lega til að fólk haldi að þar fari nýr harð­kjarni Evrópu sem muni styðja Úkraínu til fulln­að­ar­sig­urs yfir Rússum á víg­vell­inum. Þetta er allt hel­ber ósk­hyggja og inn­an­tómt þvaður. Stríðið í Úkraínu hefur í reynd alla tíð verið átök milli Rússa og Banda­ríkj­anna. Þetta eru átök her­velda um yfir­ráða­svæði. Evrópa hefur fylgt með sem lepp­ríki Banda­ríkj­anna og er í reynd ekk­ert annað.“

Að end­ingu segir Gunnar Smári að Evrópa muni beygja sig undir vilja Banda­ríkja­manna:

„Og nú vill hús­bónd­inn blóð­mjólka leigu­lið­ann, láta hann borga nýjar inn­rétt­ingar á herra­setr­inu. Í stað þess að rísa upp og mynda eigin öryggis- og varn­ar­stefnu mun Evrópa beygja sig undir vilja Banda­ríkj­anna, ekki bara varð­andi hern­að­ar­út­gjöld heldur sætta sig líka við nýlendu­stefnu Banda­ríkj­anna gagn­vart Græn­landi, Gaza og öðrum svæðum sem þau ætla að sölsa undir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við