Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fjórir karlmenn brutu á barnungum stúlkum í Reykjavík – Þrjár smituðust af kynsjúkdómi

Fjórir karlmenn brutu á barnungum stúlkum í Reykjavík – Þrjár smituðust af kynsjúkdómi
Reykja­vík 1930 Mynd: Trausti Hafsteinsson

Árið 1930 kom upp væg­ast sagt hrylli­legt kyn­ferð­is­brota­mál þar sem fjórir full­orðnir karl­menn mis­not­uðu nokkrar barn­ungar stelpur úr Barna­skóla Reykja­víkur.

Í Bak­sýn­is­spegli kvölds­ins er skyggnst inn í skelfi­legt kyn­ferð­is­brota­mál sem átti sér stað í Reykja­vík sum­arið 1930. Upp komst um málið, sem kallað var Kyn­ferð­is­málið í fjöl­miðlum, þegar stúlka á þriðja ald­ursári veikt­ist en þegar læknir kíkti á hana kom í ljós að hún var með kyn­sjúk­dóm. Smit­að­ist stúlkan, sam­kvæmt fjöl­miðlum þess tíma, af 13 ára systur sinni sem svaf í sama rúmi og hún. Þegar málið var skoðað nánar kom í ljós skelfi­legur glæpur fjög­urra full­orð­inna karl­manna, sem höfðu mis­notað fjórar smá­stelpur um nokk­urt skeið en þrjár þeirra smit­uð­ust af lek­anda. Menn­irnir, sem voru 30 ára, 35 ára, 53 ára og 61 árs, voru hand­teknir, greiddu stelp­unum, sem voru í kringum 10 ára ald­ur­inn en þrjár þeirra voru í sama bekk í Barna­skóla Reykja­víkur, pen­ing fyrir mis­notk­un­ina. Þá höfðu tvær stelpn­anna verið mis­not­aðar af ung­lings­strákum sem greiddu fyrir með pen­ingum eða sæl­gæti. Full­orðnu barn­a­níð­ing­arnir voru allir hand­teknir og hlutu mis­langa dóma en tveir þeirra fengu dóm sem hljóð­aði upp á aðeins átta mán­aða betr­un­ar­hús­vinnu en hinir tveir hlutu ein­ungis tveggja mán­aða fang­els­is­dóm en dóm­ur­inn taldi stelp­urnar hafa „freistað þeim til athæf­is­ins“ eins og það var svo ósmekk­lega orðað en hafa ber í huga að þetta gerð­ist fyrir næstum því hund­rað árum.

Alþýðu­blaðið fjall­aði um málið á sínum tíma en hér má sjá frétt­ina:

Kyn­ferð­is­málið.

Fyrir nokkru veikt­ist bam á þriðja ári, og þegar farið var með það til læknis, kom í ljós, að að því gekk kyn­ferð­is­sjúk­dómur. Nánari rann­sókn, leiddi í ljós, að barnið hafði smit­ast af systur sinni 13 ára gam­alli, er það svaf hjá. Þegar farið var að grensl­ast eftir því, hvernig stúlku­bamið hafði smit­ast, kom í ljós að hún hafði farið með telpum, sem hún þekti, til 53 ára gam­als manns, sem smit­aði hana, Málið var nú kært fyrir lög­regl­unni, og leiddi rann­sókn í ljós, að fjórir karl­menn höfðu tælt nokkrar smá­stúlkur, sam­tals fjórar. Málið er nú rann­sakað að fullu, og eru þessir 4 menn í varð­haldi. Einn þeirra er skó­smiður, annar við­gerða­maður reið­hjóla, þriðji fyrv. verk­stjóri, en hinn fjórði rak­ari.

Blaðið hefir frá lög­reglu­stjóra fengið svo hljóð­andi skýrslu: til­drög þessa máls eru þau, að því er virð­ist, að aldr­aður maður hér i bænum, 53 ára, lokkar s. l. sumar telpu­krakka 10 ára að aldri inn til sín og hefir mök við hana og gefur henni pen­inga fyrir. Verður svo þetta til þess, að hún fer að venja komur sínar til þessa manns og tvær aðrar telpur, sem hún fékk til að fara þangað með sér nokkrum sinnum, og sú fjórða kom þangað einu sinni, og hafði þessi sami maður mök við þær allar. Gaf hann þeim stundum pen­inga fyrir. Þrjár af þessum telpum eru nú II ára að aldri, en ein 13 ára. Þrjár af telp­unum hafa svo upp frá þessu orðið fyrir þessu sama af þrem full­orðnum karl­mönnum. Er einn þeirra 30 ára, annar 35 og einn 61 árs að aldri. Tvær þessar telpur eru svo upp úr þessu teknar að bjóða sig fyrir pen­inga og hafa haft mök við 5 ung­linga á aldr­inum frá 14 —16 ára, og greiddu þeir þeim einnig pen­inga eða sæl­gæti fyrir. Milli allra þess­ara manna var ekk­ert sam­band, eng­inn vissi af hinum, og fram­kvæmdu þeir verkn­að­inn sumir á vinnu­stofum sínun, en aðrir heima hjá sér. Þrjár af fram­an­nefndum stúlku­börnum eru smit­aðar af kyn­sjúk­dómi. Allir hinir full­orðnu karl­menn, eru nú geymdir í fanga­hús­inu og verða þar unz málið er rann­sakað til hlítar, og verður alt gert sem er í valdi lög­regl­unnar til þess að það verði. Ekkert af greindum stúlku­börnum er í skóla eða verður fyrst um sinn, og þær eru allar undir lækn­is­hendi. Þessar ráð­staf­anir hafa þegar verið gerðar til bráða­birgða til þess að fyr­ir­byggja að þetta breið­ist út frekar en orðið er.

Hverjar end­an­legar ráð­staf­anir verða gerðar í þessu alvar­lega máli er of snemt að gefa skýrslu um nú, en það verður gert opin­ber­lega sam­stundis og rann­sókn er full­l­okið og hinir seku hafa fengið sinn dóm. Reykja­vík, 29/3 1930. Hermann Jónasson.

Í sömu frétt er birt skýrsla frá lækni Barna­skól­ans sem hljóð­aði á eft­ir­far­andi hátt:

Frá lækni Barna­skól­ans hefir blað­inu borist svohljóð­andi skýrsla: Vegna þess að kunn­ugt er orðið, að nokkur börn (2 eða 3) úr Barna­skóla Reykja­víkur hafa sýkst af kyn­sjúk­dómi (lek­anda), hefir borið á því, að stöku for­eldrar hafa ekki þorað að senda börn sín í skól­ann, af ótta við smitun. Þetta er ástæðu­laust, vegna pess, að börn þau, sem sýkst hafa, eru ekki lengur í skól­anum og verða ekki það sem eftir er þessa skóla­árs, að smitun á sal­ernum er að dómi sér­fræð­inga mjög sjald­gæf (sótt­kveikj­urnar lifa skamma stund utan lík­am­ans) og að van­húsum skól­ans er þannig háttað, að smitun er nær óhugs­andi þar. Um smitun í bað­húsi skól­ans getur varla verið að ræða svo fremi hvert barn hefir sína þurku. 29. marz 1930. Ólafur Helgason læknir Barna­skól­ans.

Þá birti Alþýðu­blaðið einnig við­tal við skóla­stjóra Barna­skól­ans sem vildi koma því á fram­færi að kenn­arar skól­ans tengd­ust mál­inu ekki á nokkurn hátt. Hér má lesa um við­talið og stað­fest­ingu frá lög­reglu­stjór­anum Hermanni Jónssyni:

Viðtal við skóla­stjóra. Blaðið hefir átt tal við Sigurð Jónsson skóla­stjóra, sem skýrði frá því, að eng­inn af kenn­urum barna­skól­ans væri á neinn hátt riðnir við þetta mál. Þrjár af þessum fjórum stúlku­börnum voru í sama bekk í skól­anum.

Í morgun barst blað­inu svohljóð­andi yfir­lýs­ing frá lög­reglu­stjóra: Að gefnu til­efni skal því hér með lýst yfir, að eng­inn af kenn­urum barna­skól­ans er á nokkurn hátt rið­inn við hið svo­nefnda kyn­ferð­is­mál. Reykja­vík, 31/3 1930. Hermann Jónasson.

Ein­hverjum vikum síðan féll svo dómur í mál­inu en í frétt Alþýðu­blaðs­ins eru menn­irnir fjórir nafn­greindir. Hér má lesa um dóm­inn:

Kyn­ferð­is­málið svo­nefnda.

Í því er fall­inn und­ir­rétt­ar­dómur, og hafa þeir Gunnar Hermann Vig­fús­son skó­smiður og Einar Ein­ars­son verkam. verið dæmdir í 8 mán­aða betr­un­ar­hús­vinnu hver; en Magnús Gíslason reið­hjóla­við­gerð­ar­maður og Jóhann Ein­ars­son rak­ari í 2 mán. fang­elsi við venju­legt fanga­við­ur­væri. (Er dómur hinna síð­ar­nefndu væg­ari vegna þess, að telp­urnar freist­uðu þeirra til athæf­is­ins.) Enginn hinna dæmdu hefir áfrýjað, en talið lík­legt að hið opin­bera geri það. Enginn drengj­anna sem við málið eru riðnir, hafa náð lög­aldri saka­manna og því ekk­ert víst, hvað við þá verður gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni