Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Undirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti

Undirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti
Hera Björk Þór­halls­dóttir. Mynd: RÚV-skjáskot

Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin þar sem þess er að kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision verði Ísrael ekki meinuð þátt­taka í Eurovision í ár. Allir kepp­endur í Söngvakeppn­inni hafa sam­þykkt að taka þátt úti í Sviss, vinni þeir.

Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir stendur fyrir und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision í ár, verði Ísrael ekki meinuð þátt­taka í Eurovision sem fram fer í Sviss í maí næst­kom­andi.

Eft­ir­far­andi texti er skrif­aður á síðu und­ir­skrift­ar­söfn­un­ar­innar:

„Við und­ir­rituð förum fram á að RÚV dragi Ísland úr Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva árið 2025 verði Ísrael ekki mein­aður aðgangur að keppn­inni. Fram­ganga Ísraels í Palest­ínu stríðir gegn yfir­lýstum frið­ar­boð­skap Söngvakeppn­innar. Yfir fjöru­tíu þús­und mann­eskjur hafa verið drepnar í sprengjuregni Ísraels á Palest­ínu. Ísrael hefur eyði­lagt nán­ast öll sjúkra­hús og skóla á Gaza, jafnað heilu þorpin og borg­irnar við jörðu, brennt tjald­búðir flótta­fólks, myrt óbreytta borg­ara þar á meðal: börn, barns­haf­andi konur, sjúk­linga, lækna, hjálp­ar­starfs­fólk alþjóð­legra stofn­ana, kenn­ara og blaða­menn. Þrátt fyrir þetta fær Ísrael að taka þátt í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva árið 2025 í stað þess að þeim sé meinuð þátt­taka eins og Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.“

Mannlíf heyrði í Rúnari Frey Gísla­sonar verk­efna­stjóra sjón­varps og spurði hann hvort til greina kæmi fyrir RÚV að taka af skarið og krefjas þess að Ísrael verði vikið úr keppni í ár, rétt eins og þegar finnska rík­is­út­varpið (YLE), krafð­ist þess að Rússland yrði meinuð þátt­taka vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

„Við fylgj­umst náið með allri þróun mála og stillum saman strengi fyrst og fremst með kol­legum okkar á Norð­ur­löndum, eins og hingað til og áður hefur komið fram,“ sagði Rúnar Freyr í skrif­legu svari sínu til Mannlífs.

Í fyrra gaf einn af þáttak­endum Söngvakeppn­innar, Sunna Krist­ins­dóttir, þá yfir­lýs­ingu að hún ætl­aði sér ekki að keppa í Eurovision, ef ske kynni að hún stæði upp sem sig­ur­veg­ari, vegna með­ferðar Ísraela á Palest­ínu­mönnum á Gaza. Þá fór Ásdís María Við­ars­dóttir, einn af höf­undum sig­ur­lags­ins í fyrra, Scared of Heights, ekki með hópnum út í Eurovision, af sömu ástæðum. En hvernig standa málin í ár? Er ein­hver kepp­and­anna sem stíga á svið annað kvöld, búinn að gefa það út að hann hygg­ist ekki taka þátt í Eurovision?

Rúnar Freyr segir svo ekki vera: „Nei, kepp­endur í ár hafa öll sam­þykkt að taka þátt í Eurovision, sigri þau Söngvakeppn­ina. Eins og alltaf – nema í fyrra – fylgir það því að taka þátt í Söngvakeppn­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við