Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sara dáleiddi Gunnar í beinni: „Svona bati, svona lækning þarf að koma innan frá“

Sara dáleiddi Gunnar í beinni: „Svona bati, svona lækning þarf að koma innan frá“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varp­inu Þvotta­húsið er lög­mað­ur­inn, dáleið­ar­inn og orku­heil­ar­inn Sara Páls­dóttir. 

Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orku­heilun sam­hliða lög­mennsku í nokkur ár núna segir að þessi and­lega vinna sé farin að taka meira og meira yfir. 

„Það er ekki hægt að dáleiða mann­eskju nema að hún vilji verða dáleidd, ann­ars er það ekki hægt.“

Sara segir að hver hugsun sé orka þó þessi orka sjá­ist ekki berum augum.

„Ég nota aðferð, ég tala við und­ir­með­vit­und­ina mína en und­ir­með­vit­und okkar allra sér inn í orku­heim­inn og þessi orka sem er í orku­heim­inum er ósýni­leg en hún er samt raun­veru­leg, hver hugsun er orka, hver til­finn­ing er orka og jafn­vel þótt við sjáum ekki þessa orku þá skynjum við hana og finnum fyrir henni.“

Hún hóf þessa veg­ferð innan dáleiðslu og hug­leiðslu í kjöl­far mik­illar þján­inga sem voru nálægt því að keyra hana alveg í kaf. Hún byrj­aði snemma að drekka illa sam­hliða því að vera alvar­lega þjökuð af átröskun. Svo kom að því að hún fór í áfeng­is­með­ferð og sótti mikið AA fundi í mörg ár. Í dag seg­ist hún vera hætt AA fund­ar­mennsku en líti alltaf á sig sem AA konu og býr yfir miklu þakk­læti í garð AA sam­tak­ana fyrir það sem sam­tökin gáfu henni. 

Eftir að hún hætti að drekka fór hún að upp­lifa mikla verki í lík­am­anum, stoð­kerfis og bólgu­verkir sem virt­ust ekki eiga sér neina rök­rétta skýr­ingu. Það var sama hvert hún leit­aði, læknar ein­fald­lega vissu ekk­ert hvað var í gangi. Undir lokin var ástandið orðið þannig að hún hélt ein­fald­lega að hún þyrfti að skrá sig á örorku sökum þreytu og verkja. Hún var farin að getað unnið aðeins til hádegis en þá var hún ein­fald­lega búin á því af verkjum.

„Svona bati, svona lækn­ing þarf að koma innan frá. Þegar að fólk kemur til mín í dáleiðslu og það er ekki bara að glíma við kvíða, það er að glíma við brotna sjálfs­mynd, vöðva­bólgu, það er kannski að glíma við þreytu og höf­uð­verki. Það er svona kok­teill af alls­konar nei­kvæðum ein­kennum og þegar við förum að skoða ræt­urnar sjáum við að þær eru allar sam­tvinn­aðar eða þær sömu.“

Hug­leiðsla og ásetn­ingur sem snéri að því að lækna sjálfan sig leiddi Söru inn í upp­risu sem með tím­anum hefur ekki bara losað hana undan allri þeirri þján­ingu sem hrjáði hana heldur virð­ist hún búa yfir öfl­ugum mætti til að hjálpa öðrum. Hún bíður upp á alls­konar hjálp í formi dáleiðslu og orku­heil­unar auk þess sem hún heldur nám­skeið og fyr­ir­lestra tengt því hvernig við getum hreinsað út nei­kvæða orku sem situr föst í kerf­inu okkar og öðl­ast fyrir vikið stjórn yfir lífi okkar. Til að mynda bíður hún upp á ókeypis fræðslu og dáleiðslu en hér má nálg­ast það.

„Þetta er það sem kallað er flökku­verkir og það er svona týpískt verkja­vanda­mál sem tengj­ast því sem kall­ast nei­kvæð orka. Þú ert kannski stundum að drep­ast í bak­inu eða stundum að drep­ast í kjálk­anum, stundum í mjó­baki, stundum í öxl­unum, þetta flakkar á milli, mis­al­var­legt og þetta eru klass­ísk ein­kenni þess að það sé ekki nein lík­am­leg orsök.“

Er Gunnar bauð henni Söru að koma í Þvotta­húsið stakk hún upp á því að hún myndi dáleiða hann í þætt­inum. Gunnar tók vel í það en það þýddi að hann þurfti að mæta til hennar í und­ir­búnig fyrir við­talið í dáleiðslu­hitt­ing. Þar las hún ork­una hans og leiddi hann svo inn í djúpa dáleiðslu. í stólnum hjá Söru sat Gunnar i tæpan klukku­tíma grát­andi og hlæj­andi til skiptis. Hann upp­lifði meðal ann­ars sterka sorg tengda atburði sem hann lent í fyrir tíu árum þar sem vin­kona hans dó í fang­inu á honum á Suður Indlandi í leigu­bíl á leið­inni á spít­alan eftir slys. Eftir slysið tók einnig við atburð­ar­rás sem skildi eftir sig gríð­ar­legar agnir nei­kvæðrar orku sem hafði með flutn­ing á líki vin­kon­unar innan um lík­hús og krufn­inga­spít­ala í ókunn­ugu landi að gera.

Aukreitis kom sterkt til hans full­vissa um að gam­all ótti sem hann hafði burð­ast með væri í raun ekki hans heldur ákveðin eind sem var frá öðrum komið, eins­konar erfða­synd.

„Stundum fáum við orku í arf frá for­eldrum okkar eða for­feðrum og hún getur farið svona á okkur, við skynjum hana og finnum fyrir henni og svo getur hún líka farið á annað fólk sem er í kringum okkur jafn­vel þótt að við viljum það ekki.“

Sara segir að við séum alltaf að skapa okkur sjálf, okkar eigin heilsu og líf með hug­anum.

„Hugurinn og orkan er alltaf að skapa þetta efn­is­lega, og við bara alltaf að skapa okkur sjálf, heilsu okkar, kring­um­stæður og líf með því hvernig við hugsum og hvernig við erum að nota hug­ann. Það er þannig raun­veru­lega og ég er búin að upp­lifa þetta sjálf í gegnum breyt­ingar á mínu lífi og í gegnum þann bata sem ég fékk.“

Þessi dáleiðsla var svo und­ir­bún­ingur fyrir dáleiðsl­una sem Sara fram­kvæmdi á Gunnari í lok þátt­ar­ins, bæði í hljóði og mynd. Dáleiðslan sem tók um 30 mín er svo hluti af þætt­inum og í raun með ólík­indum hve dúpt þau Sara og Gunnar náðu að vinna saman miðað við að vera í við­ur­vist bæði Davíðs og Fúsa tækni­manns sem fylgd­ust með. Dáleiðslan fór með Gunnar á bólakaf í und­ir­með­vit­und hans þar sem svörin við öllum spurn­ingum búa. Þrátt fyrir það ástand sem hann var í, sem líkt­ist helst transi, var hann hæfur í að greina og koma augu á þá nei­kvæðu orku sem sátu eftir í vit­und­inni eftir þetta slys sem gerð­ist fyrir tíu árum síðan. Með miklum átökum tókst honum að losa ork­una úr kerf­inu og taka á móti ljósi og kær­leika í stað­inn.

Gunnar lýsir því í dáleiðsl­unni hvernig hann fór alveg úr lík­am­aum og sam­ein­að­ist öllu því sem er, algjört out off body experience. Hann tókst á við alvar­leik­ann, sorg­ina og sekt­ina og var svo leiddur út úr dáleiðsl­unni hlæj­andi og glaður, í algjörri sælu­vímu og laus undan gríða­legum þunga sem hann hafði burð­ast með í ára­tugi.

Það skiptir engu máli hver kvill­inn er, Sara vill meina að maður kom­ist alltaf lengst með að hreinsa burt nei­kvæð for­rit úr und­ir­með­vit­und­inni því þar liggi oft­ast örsök allra kvilla.

Sara, eins sagt hefur verið bíður upp á nám­skeið og fyr­ir­lestra ásamt dáleiðslu og orku­heilun. 

https://sarapalsdottir.is

Þáttinn má horfa á í heild sinni á YouTube sem og hlusta á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu