Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Friðrik segir mun á forvitni og fordómum: „Ekki hægt að vera í fýlu á meðan maður er að dansa“

Friðrik segir mun á forvitni og fordómum: „Ekki hægt að vera í fýlu á meðan maður er að dansa“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er eng­inn annar en dans­ar­inn, pistla­höf­und­ur­inn og múltík­únstner­inn Friðrik Agni Árnason. 

„Ef ég ætti að segja að eitt af þessu sé svona innsti kjarn­inn þá er það dans­inn, alveg innst, og svo út frá því kemur alls­konar annað, skap­andi, eins og að skrifa, svona tjá­skipti,“ sagði Friðrik í upp­hafi og hélt áfram: „Það er bara svona skap­andi kjarni inn í manni og maður þarf bara að læra hvernig maður akti­verar hann.“

Íslendingurinn ég og Íslendingurinn þú

Friðrik hefur verið ötull pistla­höf­undur í mörg ár og segir að með því nái hann að vinna sig í gegnum þær ójöfnur sem lífið hefur upp á bjóða.

„Það kemur alveg fyrir að það er eitt­hvað rosa­lega heitt topic í gangi í sam­fé­lag­inu þar sem allir er bara með þrá­hyggju gagn­vart einni frétt eða ein­hverju sem er í gangi og maður þarf pínu að passa sig. Stundum hef ég alveg skrifað pistla og svo birti þá ekki.“

Hann nefnir í því sam­hengi pistil sem hann skrif­aði fyrir nokkrum árum sem bar heitið „Íslend­ing­ur­inn ég og Íslend­ing­ur­inn þú.“ Þar rak hann garn­irnar úr sjálfum sér hvað varðar það hvernig það er að vera bland­aður Íslend­ingur. Friðrik fædd­ist á Íslandi á aðfanga­dag árið 1987 en á ind­verska móður. Hann hefur þó aldrei komið til Indlands en segir að það standi klár­lega til. 

Friðrik er afkom­andi fyrsta ætt­leidda barns til Íslands frá Asíu, en móðir hans var ætt­leidd frá Mumbay í Indlandi árið 1969. 

„Ég er miklu meira núna eftir því sem ég verð eldri, að fagna þessum hluta af mér og taka honum ein­hvern­veg­inn og segi bara mikið við fólk að ég sé hálf ind­verskur því mamma mín er frá Indlandi, því á tíma­bili þegar ég var ung­lingur, var ég bara svo­lítið að reyna að ýta því frá mér.“

Hann seg­ist ekki beint upp­lifa for­dóma í dag út af sínum upp­runna eða húð­litar en kannski frekar upp­lifa athuga­semdir eða bara vissa stemn­ingu sem oft a tíðum gæti flokk­ast sem for­dómar en eru að öllu jöfnu bara for­vitni og fáfræði.

„Ég á mann sem er íslenskur, við erum bara jafn íslenskir í raun­inni, ég fædd­ist nátt­úru­lega hér, en þessi upp­lifun á því að sjá hvernig það er komið fram við hann öðru­vísi en mig, í sömu aðstæðum. Þegar ég var yngri fór ég kannski í vörn og upp­lifði þetta óþægi­lega en svo þegar maður verður eldri áttar maður sig bara á því að fólk er bara inni­lega for­vitið en það kemur stundum út svo­lítið skringi­lega.“

„Það er samt svo­lítið eins og allir viti nákvæm­lega hvað hann sagði, en miðað við hvað hann átti að hafa sagt þá bara það að þessi hugsun hafi komið upp í koll­inn er pínu skrítið,“ segir Friðrik um upp­á­komu fyrir nokkru þar sem land­bún­að­ar­ráð­herra lét að sögn margra óvið­eig­andi athuga­semdir falla í garð Vigdísar Hasler fram­kvæmd­ar­stjóra bænda­sam­tak­ana, sem er ætt­leid frá Indónesíu og dökk á hör­und. 

„Fólk er orðið svo trig­gerað, fólk er bara að tala um þessa trig­gera enda­laust og ef eitt­hvað ger­ist þá bara trig­ger­ast fólk og það er eins og þrösk­uld­ur­inn sé miklu nær okkur heldur hann var.”

Friðrik sagði þeim bræðrum frá atviki þar sem hann hafði sótt um 30 mis­mun­andi atvinnu­tæki­færi  er hann bjó í Stokk­hólmi. Hann sendi fer­il­skránna af stað með mynd og glæsi­legum lýs­ingum á far­sælum ferli en vita menn, eng­inn atvinnu­veit­end­anna svar­aði umsókn­unum.

Hann sagði vin­konu sinni frá þessu sem þekkti sam­fé­lagsstrúkt­úr­inn og sagði við hann, „Ó, settur þú mynd?” En það vildi hún meina að væri algjört no no og því tók Friðrik mynd­ina úr fer­il­skránni og viti menn, hann var boð­aður í við­tal eftir fyrstu umsókn.

„Ég hugs­aði fyrst, er þetta bara eitt­hvað ljót mynd af mér og vin­kona mín sagði nei en ég myndi taka þessa mynd út strax, það er ekki séns að þú fáir við­tal.”

Fyrsti litaði og samkynhneigði forseti Íslands

Hann Friðrik er maður margra verk­efna og því spurði Gunnar hann hvort hann væri með ein­hver lang­tíma­mark­mið eða hvort allt væri flæð­andi og svona meira spont­ant spuni. Friðrik vildi meina að ein­hvert rými þyrfti alltaf að vera í þessum bransa fyrir frá­vik sem alltaf koma upp. En að öllu jöfnu væri hann mjög dug­legur í að setja sér mark­mið ýmist skamm­tíma eða lang­tíma. Gunnar sagði að það hlyti að krefj­ast mik­ils hug­rekkis að þora að setja mark­mið sín svona í föst blý­ants­strik í ótta við að einmitt mis­takast. Friðrik sagði þá að það væri einmitt hluti af þessu öllu saman, að hafa þetta hug­rekki til að setja sig út í flæðið og treysta á að almættið í hvaða formi sem er, muni færa mann á þann stað sem maður óskar sér eða þurfi að kom­ast á.

Hann minnt­ist sinna fyrstu minn­ingar sem snéri einmitt að vissu lang­tíma­mark­miði en það var þegar hann var um átta ára gam­all og hann var harð­á­kveð­inn í að verða fyrsti lit­aði for­seti Íslands og það fyrir 40 ára afmælið sitt. Hann hefur sem sagt enn nokkur ár til að verða fyrsti lit­aði for­seti Íslands auk þess að þá að verða fyrsti sam­kyn­hneigði for­seti Íslands sem vitað sé.

Friðrik starfar einnig sem dans­kenn­ari og þá einna helst í Zumba. Hann seg­ist finna gríð­ar­legt frelsi í hreyf­ingu og þeirri sköpun sem fæðir af sér hreyf­ing­una. Hann vill meina að einmitt með dans­inum nái hann að losa um og vinna úr alls­konar nei­kvæðri orku sem ann­ars endar á að sitja fast í lík­am­anum með til­heyr­andi heilsu­brestum eins og svo oft hefur verið rætt um í fyrri þáttum Þvotta­húss­ins. Hann byrjar dag­inn að öllu jöfnu á dansi, teygjum og yoga áður en hann leggst við skrif. Hann segir að einmitt þessi hreyf­ing sé mik­il­vægt il að fram­kalla þetta frjálsa flæði sem þarf til við að koma draslinu út á sem sóma­sam­leg­asta hátt í skrif­uðu máli.

„Ég held að ég hafi í nokkurn skipti náð svona „euphoria“ ástandi í gegnum dans­inn, svona ástand sem ég hef verið að reyna að ná með hug­leiðslu en hef ekki náð en næ því í dans­inum. Það er ein­hvern­vegin ekki hægt að vera í fýlu á meðan maður er að dansa. Það geta allir dansað, það er tón­list og þú ert með lík­ama og ef þú ert hepp­inn og ert með hendur og fætur þá bara getur þú dansað.“

Þurfti að fyr­ir­gefa sjálfum sér

„Mér finnst eins og ég eigi auð­velt með að hugsa um fram­tíð­ina og ég er mjög þakk­látur fyrir það, ég er rosa­legs dreymin mann­eskja, hef alltaf verið og það að vera dreymin snýst rosa mikið um fram­tíð­ina. Þig dreymir nátt­úru­lega ekki um for­tíð­ina því hún er búin. Það hefur hjálpað mér rosa mikið, ég næ ein­hvern­veg­inn að vera þannig að ég er ekki er ekki að dvelja í svona fórn­ar­lambs­gírnum út frá ein­hverju sem gerð­ist fyrir mig,” sagði Friðrik er talið barst að fram­tíð­arplönum. Friðrik hélt áfram:

„Varðandi svona mín stærstu áföll þá snérist þetta um að ég þurfti að fyr­ir­gefa sjálfum mér fyrir að hafa verið í gegnum árin rosa­lega vondur og harður við sjálfan mig. Áföllinn hafa haft gríð­ar­leg áhrif á sjálfs­mynd­ina mína og mjög mikið hvernig ég upp­lifði sjálfan mig í tengslum við svona nánd og kyn­líf” Segir Friðrik og bætir svo við. Mér leið eins og minni getu til að njóta kyn­lífs hafi verið rænt. Ég fatt­aði ekk­ert endi­lega að kyn­líf væri eitt­hvað sem ætti endi­lega að vera gott fyrir mig, þetta var bara svona Já, vilt þú sofa hjá mér, Já OK. Það er bara mjög nýlega sem ég átt­aði mig hversu erfitt mér fannst að tala um kyn­líf, bara að vera spurður ein­hverjar spurn­inga um kyn­líf og ég fraus bara. Þetta kemur kannski á þessu stigi þegar maður byrjar að hugsa um kyn­líf og verður skot­inn í ein­hverjum, ég var meira að segja skot­inn í stelpu og átti stelpu sem kær­ustu áður en ég kom út úr skápnum. En allt í einu byrjar maður að hafa sömu kenndir gagn­vart strákum og maður hafði gagn­vart stelpum. “Ég sá strák, varð hrifin af honum, hann var fyr­ir­sæta og ég var ég var líka að vinna sem fyr­ir­sæta þegar ég var ung­lingur og við kynnt­umst og allt í einu vorum við bara að deita og ég svo sagði ég bara við mömmu að ég er eig­in­lega bara að deita strák og hún bara sagði já ok en pass­aðu þig bara að fara var­lega, þetta var bara eins og að segja hey, ég er með brún augu. Ég finn það hjá mér að þessir tendensar sem ég hef gagn­vart kvenn­fólki, þeir eru alls ekki miklir en þeir eru bundnir við ein­hvern ákveðin tíma­bil ég er að ganga í gegnum.”

Draumurinn um fjölskyldu

Gunnar spurði Friðrik út í hug­myndir hans um að stofna fjöl­skyldu. Þá hvort hann og mað­ur­inn hans sem hann hefur verið með í ein 16 ár, hafi ein­hverjar hug­myndir um að stofna fjöl­skyldu og ef svo er, þá hvernig svo­leiðis myndi ganga fyrir sig. Friðrik sagði að það væri í þessum töl­uðu orðum að fæð­ast ein­hver hreyf­ing í þá átt. Hann og mað­ur­inn hans væru að hefja ferli sem mun lík­lega leiða þá í þá átt að verða fóst­ur­for­eldrar en þetta mál sé við­kvæmt og á frum­stigi. Hann seg­ist ekki einu sinni búinn að segja fjöl­skyldu sinni frá þessu en Gunnar hug­hreysti hann með að segja honum að þátt­ur­inn kæmi ekki út fyrir en eftir nokkrar vikur og því hefði hann en tíma til þess.

„Ég lifi eftir því að ég vil alls ekki lifa við eft­ir­sjá, það er mín mesta hræðsla,“ sagði Friðrik varð­andi fyr­ir­huguð áform um að stækka fjöl­skyld­una.

„Við vorum að tala um þetta um dag­inn, ef við tveir myndum til dæmis eign­ast stelpu og við tveir karl­menn, ég spái alveg í því hvort það sé eitt­hvað sem við þurfum að hafa í huga hvort að við myndum þurfa að leita eftir ráð­legg­ingum frá konum í okkar lífi.“

Gunnari og Davíð vakti mikil for­vitni á að vita hvort hann héldi að það væri eitt­hvað sem sam­kyn­hneigðum for­eldrum bæri að hafa í huga í þessum efnum í sam­an­burði við að barn alist upp í þessu hefð­bundna munstri þar sem er karl­maður og kven­maður séu til staðar í upp­eld­inu. Friðrik sagð­ist ekk­ert vera með það endi­lega alveg á hreinu en sagð­ist kannski halda að mögu­lega í ein­hverjum málum sem snúa að svona kynja­bundnu ferli ein­hvers­konar þyrfti maður að reiðu­bú­inn að leita sér dóm­greindar en á sama stað á það alveg eins við í hinu hefð­bundna. Það er ekk­ert klippt og skorið í þessum efnum og því litaflóran óend­an­leg. Nið­ur­staða Friðriks og bræðr­anna varð að ekk­ert væri í raun rétt­ara en hvað annað í þessum efnum og því bæri að nálg­ast við­fangs­efnið í rými og auð­mýkt.

„Við erum bara flottar mann­eskjur ef við þorum a standa með okkur sjálfum og við þorum að gera það sem okkur langar til að gera. Ég trúi því bara að ef hver og einn nái að hafa trú á sjálfum sér, standa sig vel í því að vera góð mann­eskja, þá er það bara lyk­ill­inn.“

Loka­spurn­ingu Gunnars um hvort Friðrik væri bjart­sýnn á að mann­kynið geti mögu­lega hætt að haga sér eins og sam­kennd­ar­skertir fávitar, svar­aði Friðrik því að hann héldi að við værum á ein­hverjum stað núna þar sem miklar sveiflur væru í gangi en á næstu tíu árum eða svo værum við að fara að upp­lifa því­líka breyt­ingu í öllum þessum málum sem snúa að óskil­yrtri sam­kennd og í raun að list­inni að lifa í fullri mennsku, óháð allri þess­ari flokkun í gegnum hinar og þessar skil­grein­ingar á und­ir­flokkum. 

Þetta hug­lúfa við­tal má sjá og heyra í fullri lengd í spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að vera aðgengi­legt á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify svo eitt­hvað sé nefnt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu