Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðmundur finnur týndu börnin okkar: „Þá var því spáð að ég myndi ekki endast árið“

Guðmundur finnur týndu börnin okkar: „Þá var því spáð að ég myndi ekki endast árið“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varp­inu Þvotta­húsið er eng­inn annar en Guð­mundur Fylk­is­son lög­reglu­maður til margra ára og aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eitt af meig­in­verk­efnum Guð­mundar er að sinna leit að ein­stak­lingum, einna helst ung­mennum.

Í gegnum árin hefur Guð­mundur einnig sinnt samn­inga­við­ræðum fyrir hönd sér­sveit­ar­innar, til dæmis þegar ein­stak­lingar eru í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum. En síð­ustu átta ár hefur hefur hann sinnt mála­flokki sem snýr að börnum og ung­mennum í stroki. Verk­efnið sem hófst sem eins árs til­rauna­verk­efni í nóv­em­ber 2014 er nú orðið fast verk­efni, þar sem hann sinnir einn leit­inni, en hefur sér til aðstoðar lög­regl­una í heild sinni.

Guð­mundur sinnir lög­gæslu innan fjar­skipta lög­regl­unar ásamt samn­inga­við­ræðum fyrir hönd sér­sveit­ar­innar þar til árið 2014 en þá er hann beð­inn um að taka að sér þetta til­rauna­verk­efni til eins árs sem snýr að mála­flokk ung­menna og þá að úræðum lög­reglu hvað varðar ung­menni í stroki. Ramma það inn og gera við­bragð­tím­ann fljót­ari og ferlið skil­virkara. Beiðni kemur frá barna­vernd til lög­reglu um barn í stroki og það ferli gat tekið upp undir þrjá sól­ar­hringa í verstu til­fellum. Á þessum tíma sem Guð­mundur hefur starfað að þessum mála­flokk hefur hann náð þessu niður í ein­hverjar mínutur.

Lýgur ekki að krökkunum

Hann sinnir starfi sínu sem sagt í nánum tengslum við bæði for­eldra og barna­vernd.

Gunnar spyr hann hvert kynja­hlut­fall þess­ara ung­menna sé og hann segir að það sé nokkuð jafnt. Hvað varðar fjölda ung­menna segir Guð­mundur að á þessum átta árum hafi hann leitað að um að bil 390 börnum og í um helm­ingi skipta sé um ein­angruð til­felli að ræða á meðan hinn helm­ing­ur­inn komi oftar fyrir og sum þeirra hafi hann þurft að leita af ítrekað. 

Gunnar spyr Guðmund hvernig hann nái að finna þau, mynda þessi tengsl sem virð­ast vera milli hans og þess­ara ein­stak­linga.

„Já, ég ákvað að ég myndi aldrei ljúga að þeim, ég get ekki platað þau, ég tek ekki þátt í því. For­eldrar hafa viljað plata þau heim,“ segir Guð­mundur og segir að stundum sé búið að ákveða að senda ein­stak­ling­ana á Stuðla til dæmis en for­eldr­arnir vilji plata þau heim og kalla svo til lög­reglu. „Nei, ég er ekki þar. Þó ég viti að það mun taka einn til tvo daga í við­bót í leit þá segi ég já ef krakk­inn spyr hvort hann eigi að fara á Stuðla. Þannig að ég kem hreint fram við þau og svo reyni ég líka að haga mér svo­lítið eins og ung­lingur á vissan hátt. Það eru ekki allir for­eldrar sáttir við þetta en hins­vegar hefur þetta gengið vel og það hefur náðst árangur.“

Stelpur fá hjálp frá eldri strákum

Hann seg­ir að hægt sé að skipta börn­un­um í fjóra hópa: börn sem eru í neyslu, börn sem glíma við and­leg veik­indi, óþekku krakk­arn­ir en það eru sjálf­stæðu krakk­arn­ir sem oft eru á und­an jafn­öldr­um sín­um í þroska. Þau eru ekki kom­in í neyslu en hætt­an svo sann­ar­lega fyr­ir hendi því þau tengj­ast oft eldri krökk­um. Síðan er það fjórði hóp­ur­inn, börn sem eru að flýja heim­ilis­að­stæður. Heim­il­is­að­stæður getað ein­kennst af mik­illi van­rækslu sem stafar af and­legum veik­indum for­eldra, fíkni­vanda for­eldra og ofbeldi frá þeirra hálfu, lík­am­legu, kyn­ferð­is­legu og and­legu. Hann nefnir dæmi þar sem 14 ára stúlka hafði verið fjar­ver­andi í tvær vikur af heim­il­inu áður en málið rataði til lög­reglu, nán­ast algjört afskipta­leysi. „Það var krakki á grunn­skóla­aldri sem hafði ekki komið heim í hálfan mánuð áður en leit­ar­beiðni barst. Ég fann hana á einum eða tveimur dögum. Hún var 14 ára.“

Áður en að Guð­mundur tók að sér þetta verk­efni voru stelpur að fá hjálp við strok frá eldri drengjum á aldr­inum 18-25 ára þar til að Guð­mundur fór að heim­sækja þessa stráka og kom þeim í skiln­ing um að þessu fylgja afleið­ingar, þar á meðal afskipti lög­regl­unnar. „Þetta voru drengir sem höfðu verið á sama stað, högðu kannski byrjað í kanna­bis­neyslu 12, 13 ára og þroski þeirra nán­ast stoppar. Og kærust­urnar þeirra voru alltaf 14 ára. Þeir elt­ust alltaf um ár en kærust­urnar voru alltaf 14 ára.“

Guð­mundur segir að þessi „hjálp“ hafi svo með árunum snar­minnkað því það sem þessir ein­stak­lingar eru ekki að sækj­ast eftir eru afskipti lög­reglu með til­heyr­andi trufl­unum á allt annað sem þeir eru að bralla.

Andleg veikindi meiri hjá krökkum

Að sögn Guð­mundar er neyslan að minnka meðal ung­menna en seg­ist sjá mikla aukn­ingu á ung­mennum í and­legum veik­indum. Þá sé oft á tíðum um að ræða alls konar grein­ingar eins og ein­hverfa sem getur verið erfitt að glíma við og segir hann að þessi aukn­ing kalli mögu­lega á aukna þjálfun þeirra sem starfa að þessum mál­flokki.

Talið barst að barna­vernd og nei­kvæðnar umfjöll­unar í fjöl­miðlum sem þau þurfa oft að sitja undir. Guð­mundur segir að starf barna­verndar feli oft í sér eins per­sónu­legt inn­grip og hugs­ast getur. Nefnir hann sem dæmi að barn er kannski tekið af ein­hverjum í neyslu sem nær svo að verða edrú. Sá hinn sami er svo hneyksl­aður á því að fá ekki barnið sitt strax úr umsjá barna­vernd­ar­yf­ir­valda og á kannski erfitt með að vera sam­vinnu­þýður og fara í vinn­una sem barna­vernd bíður upp á. Svo fellur við­kom­andi kannski eftir 6 mán­uði og allt fer í sama horf með til­heyr­andi róti.

Guð­mundur segir að barna­vernd­ar­yf­ir­völd og stofn­anir sem slíkar eiga oft erfitt með að verj­ast ummælum sem hafa verið við­höfð um þau, nema með mjög form­legum hætti og því getur þögnin túlkast sem eins­konar stað­fest­ing á gagn­rýn­inni því henni er kannski ekki svarað opin­ber­lega.

Mesta peppið

Fyrir tveimur árum hlaut Guð­mundur viður­kenn­ingu Barna­heilla – Save the Children, fyr­ir störf sín í þágu barna og ung­menna í vanda. Gunnar spurði Guðmund hvaða þýð­ingu það hafði haft fyrir hann per­sónu­lega að fá þessa við­ur­kenn­ingu, við­ur­kenn­ingu fyrir starf sem byrj­aði sem árs til­rauna­verk­efni árið 2014 og er en í gangi átta árum seinna? „Þetta er klappið á bakið og mesta peppið. Þegar ég byrj­aði fór ég hring á allar barna­vernd­irnar og kynnti mig og hvað við værum að hugsa og það var alltaf horft á mig og spurt „Og hvað eruð þið mörg?“. Ég sagði „Ég er einn“. Og þá var því spáð að ég myndi ekki end­ast árið. Átta árum seinna i´ve proofen them wrong,“ sletti Guð­mundur að gamni sínu. Hann sagð­ist oft líða kjána­lega  að vera settur í kast­ljósið fyrir þesssa vinnu og segir að mesta peppið vera frá þeim við­brögðum sem hann fær frá börnum og for­eldrum.

Gunnar spyr út í mark­mið og sam­tekt á þessu átta ára verk­efni og hvort að hann hafi ein­hverja fram­tíð­ar­sýn varð­andi það. Guð­mundur segir að fljót­lega þurfi hann að þjálfa ein­hvern yngri mann sem gæti tekið við þess­ari vinnu og þannig fleytt reynsl­unni áfram. Þá seg­ist hann hafa það mark­mið einnig að þegar hann er orðin 65 ára ætli hann að koma upp lög­reglu­safni, hann er búinn að sanka að sér alls­konar gömlum lög­reglu­munum, bílum og mót­or­hjólum meðal ann­ars. Mark­miðið nú sé að finna fjár­magn og hús­næði til að safna þessu saman á einn stað svo að gestir og gang­andi getið notið góðs af.

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má finna Þvotta­húsið á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify svo eitt­hvað sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu