Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna braut á sér öxlina á sjó

Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp óþægi­lega minn­ingu vegna sjó­slyss á Norð­ur­sjó.

Anna braut á sér öxlina á sjó
Vél­stjóri Anna Krist­jáns­dóttir vann lengi sem vél­stjóri á sjó.

Anna Krist­jáns­dóttir vél­stjóri var minnt á óþægi­lega minn­ingu við fregnir af sjó­slysi á Norð­ur­sjó. Í færslu á Facebook segir Anna að frétt­irnar af sjó­slys­inu sem varð í gær undan aust­ur­strönd Jór­vík­ur­skíris, þegar gáma­flutn­inga­skipi MV Solong rakst á olíu­flutn­ings­skipið MV Stena Immaculate, hafi minnt hana á eigin lífs­reynslu.

„Þegar ég heyrði um gáma­flutn­inga­skipið sem sigldi á fullri ferð á olíu­flutn­inga­skipið utan við Hum­ber­fljótið í Englandi, rifj­að­ist upp fyrir mér óþægi­leg minn­ing sem ég hefi reyndar oft sagt frá hér á Facebook.

Það var að kvöldi 16 ágúst 1987 sem að við á Álafossi vorum að koma að lóðs­stöð­inni á svip­uðum stað og árekst­ur­inn var í gær á leið okkar til Imm­ing­ham. Ég var á vakt­inni, var að gera klárt fyrir komu til hafnar, hafði gang­sett eina af minni ljósa­vél­unum og fasað inn á netið og setti aðra í gang til öryggis áður en ég skipti stóru Holeby ljósa­vél­inni yfir á gasolíu. Allt í einu gerð­ist það sem ekki átti að ger­ast, Holeby vélin tók loft og drap á sér og tók hina vél­ina sem ég hafði fasað inn með sér í fall­inu og allt varð blackout. Ég tók á rás að raf­magns­töfl­unni, rak fót­inn í ventil á gólf­inu í myrkr­inu, steypt­ist á haus­inn og braut á mér hægri öxl­ina.“

„Ég tók á rás að raf­magns­töfl­unni, rak fót­inn í ventil á gólf­inu í myrkr­inu, steypt­ist á haus­inn og braut á mér hægri öxl­ina.“

Nú voru góð ráð dýr því Anna vissi ekki hvort skipið væri of nærri öðrum skipi, þar sem það sigldi stjórn­laust á fullri ferð. Segist Anna hafa vælt „eins og stung­inn grís í hug­anum“, en það hafi ekki verið í boði að kveinka sér.

„Þar sem ég vissi ekk­ert hvort við værum of nærri ein­hverju öðru skipi, við stjórn­laus á fullri ferð og hugs­an­lega sek­úndu­spurn­ing um hugs­an­legan árekstur, var ekki um annað að ræða en að byrja á því að slá inn raf­magn­inu aftur, (ég er örv­hent sem betur fer) síðan að tína inn hinar minni ljósa­vél­arnar og þær dælur og hitara sem þurfti að setja inn.

Við svona aðstæður er ekki um það að ræða að kveinka sér, fyrst að koma í veg fyrir miklu verra tjón á borð við það sem varð í gær og fara svo að væla og vissu­lega vældi ég eins og stung­inn grís í hug­anum. Ég hugsa með skelf­ingu til þess sem hefði getað gerst þessa kvöld­stund árið 1987 og vafa­laust hefði ég verið hengd upp í hæsta tré eða eitt­hvað enn verra ef við hefðum lent í árekstri á nærri 15 mílna ferð og ég á vakt­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu