Ný rannsókn alþjóðlegs hóps vísindafólks, þar á meðal við Háskóla Íslands, sýnir að mataræði sem einkennist af neyslu mikillar fitu, sykurs og unnins matar á meðgöngu getur aukið hættu á taugaþroskaröskunum eins og ADHD og einhverfu hjá börnum þeirra.
Greint var frá niðurstöðum rannsóknarinnar í vísindatímaritinu Nature Metabolism á dögunum. Vísindahópurinn segir að rannsóknin skapi tækifæri til að bæta og fylgja betur eftir ráðleggingum um mataræði til barnshafandi kvenna.
Gögnin sem rannsóknin byggðist á koma úr fjórum dönskum og bandarískum gagnabönkum sem geyma meðal annars upplýsingar um neyslumynstur yfir 60 þúsund óléttra kvenna og ADHD-greiningar í hópi barna þeirra. Að auki rannsakaði hópurinn blóðsýni úr bæði mæðrum og börnum og nýttu svokallaða umbrotsefnamengjafræði (e. metabolomics), sem snýst um að mæla styrk tilekinna efna í líkamanum, til þess að varpa skýrara ljósi á samband mataræðis við taugaþroskaraskanir. Enn fremur var tekið tillit til fjölmargra þátta í rannsókninni, sem hafa áhrif á …































Athugasemdir