Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ragnhildur er orðin þreytt á blekkingarleiknum gagnvart hryllingnum á Gaza

„Ég hef fylgst náið með atburðum í eitt og hálft ár og ég veit að það má skjóta sjúkra­flutn­inga­menn“

Ragnhildur er orðin þreytt á blekkingarleiknum gagnvart hryllingnum á Gaza
Rauði hálf­mán­inn. Starfs­menn Rauða hálf­mán­ans syrgja félaga sína.

„Í gær virð­ast hafa borist til Íslands ögn bjag­aðar fréttir af palest­ínsku sjúkra­flutn­inga­mönn­unum sem voru teknir af lífi af ísra­elska hernum fyrir tíu dögum. Ég las um þennan orðróm sam­dæg­urs, 23. mars, og sá hann svo stað­festan 28. mars.“ Þannig hefst Facebook-færsla rit­höf­und­ar­ins Ragn­hildar Hólm­geirs­dóttur en þar talar hún um enn einn stríðs­glæp Ísra­els­hers, þegar her­menn tóku 14 heil­brigð­is­starfs­menn Rauða hálf­mán­ans og einn starfs­mann Sam­ein­uðu þjóð­anna af lífi, einn á eftir öðrum og grófu síðan í fjölda­gröf, þann 23. mars.

Ragn­hildur Hólm­geirs­dóttirHugur rit­höf­und­ar­ins er með sam­fé­lag­inu á Gaza.

Ragn­hildur seg­ist þó ekki vera hneyksluð og beitir kald­hæðn­inni óspart:

„Og ég er ekk­ert hneyksluð. Ég hef fylgst náið með atburðum í eitt og hálft ár og ég veit að það má skjóta sjúkra­flutn­inga­menn. Ég veit að það er allt í lagi að eyði­leggja skúkra­bíla. Ég veit að það má taka fólk af lífi. Ég veit að það skiptir ekki máli þó lík finn­ist með bundnar hendur í fjölda­gröfum. Ég veit að 15 aftökur á einum degi er ekk­ert merki­legt.

Í strætó í morgun velti ég því fyrir mér hvort fólkið í kringum mig grun­aði hvers konar sík­ópati deildi með þeim vagni. En samt eru þetta mjög hvers­dags­legar skoð­anir. Við vitum öll að allt þetta og meira til má gera. Í næstu viku mun ger­ast eitt­hvað annað sem veldur því að við þurfum öll upp á nýtt að sam­ein­ast um að þykj­ast að það séu allir fúnda­mentalt á móti fjölda­gröfum.“

Segist hún ekki nenna þessu lengur, að taka þátt í þeirri blekk­ingu að þessi stríðs­glæpur sé eitt­hvað alveg nýtt.

„En ég held að ég nenni því ekki lengur. Hringekjan er orðin svo þreytt og með hverjum nýjum hring tökum við þátt í þeirri blekk­ingu að þetta sé eitt­hvað nýtt. Eins og allir hinir glæp­irnir sem gerð­ust allar hinar vik­urnar á undan hafi ekki gerst og síðan fallið fyrir daufum eyrum. Við byrjum hverja ein­ustu viku á núll­punkti.“

Segist Ragn­hildur að lokum ætla þess í stað að hugsa til þess sam­fé­lags sem nær, þrátt fyrir það hel­vítis sem það býr við, nær að grafa lík hinna 15 manna upp úr sand­inum og veita þeim almenni­lega útför.

„Þess í stað langar mig að hugsa um þessa 15 menn sem höfðu mætt í vinn­una í þjóð­ar­morði í eitt og hálft ár til að draga sund­ur­tætt fólk undan rústum. Þeir vissu að starf þeirra gerði þá að skot­mörkum en þeir mættu samt. Og sam­fé­lagið í kringum þá er enn nógu sam­an­hang­andi til að geta grafið þá upp úr sand­inum og veitt þeim útför. Það er ekk­ert annað en ótrú­legt. Eitthvað smá­vegis til að hafa í huga nú þegar fram­tíðin verður ískyggi­legri og ískyggi­legri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina