Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Siðanefnd BÍ skammaði Frosta vegna fréttar um barnaníðing

„Tek þessu sem hverju öðru hunds­biti“

Siðanefnd BÍ skammaði Frosta vegna fréttar um barnaníðing
Frosti Logason Flestum kvört­unum var vísað frá. Mynd: Aðsend

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands ávítti Frosta Logason, rit­stjóra Nútímans varð­andi frétt mið­ils­ins um dæmdan barn­a­níð­ing sem skipt hafði um nafn og hafið kyn­leið­rétt­ingu. Flestum kvört­unum vegna frétt­ar­innar var þó vísað frá.

Þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn birt­ist frétt á Nútím­anum þar sem sagt var frá því að Aron Ísak Berry sem hafði hlotið dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum og vörslu barn­a­níðs­efnis, hafi breytt um nafn og hafið kyn­leið­rétt­ingu og gangi nú undir nafn­inu Aariah Indica Lindu­dóttir. Var Aariah ósátt við frétt­ina og kærði hana til siða­nefndar BÍ.

Nýtt nafn kær­anda birt

Í úrskurði siða­nefnd­ar­innar segir eft­ir­far­andi:

Í kæru máls­ins er til­tekið að með umfjöll­un­inni hafi nýtt nafn kær­anda verið birt, sem hún breytti eftir að hún „ákvað að lifa lífi [sínu] sem trans­kona.“ Sú upp­ljóstrun hefði ekki verið sam­þykkt af henni. Sömu sögu væri að segja af umfjöllun um heilsu­far hennar og aðgerðir sem hún hefði und­ir­geng­ist.

Kærandi bendir á að í hinni kærðu umfjöllun sé ýjað að því að rang­látt sé að hún hafi fengið að hefja kyn­leið­rétt­ing­ar­með­ferð, þótt hún hafi verið „talin of veik til að fara í fang­elsi fyrir 5 árum á þeim tíma þegar [hún] hafi gert alvar­leg mis­tök og verið dæmd til með­ferðar.“

Enn fremur til­tekur kær­andi í kærunni að í hinni kærðu umfjöllun sé rang­lega stað­hæft að hún hafi nýverið átt í sam­bandi við barn. Hið rétta sé að þar hafi verið á ferð­inni til­tek­inn ein­stak­lingur á fer­tugs­aldri, en umræddur maður og annar ein­stak­lingur hafi einnig átt í sam­skiptum við Nútímann til að fá hina kærðu umfjöllun leið­rétta eða fjar­lægða.

Þar kemur einnig fram að með kæru máls­ins hafi fylgt afrit af tölvu­pósti sem umboðs­maður kær­anda sendi Frosta degi eftir að hin kærða frétt birt­ist. Þar hafi verið farið þess á leit að fréttin yrði fjar­lægð úr birt­ingu, en að hún hafi þá þegar valdið kær­anda miklum skaða á and­legri heilsu og vel­ferð. Þá hafi póst­ur­inn fjallað einnig um að hin kærða frétt varði mál sem nú sé úrelt og end­ur­spegli ekki hagi kær­anda nú. Aukreitis feli umfjöll­unin í sér brot á per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf, auk þess að það að setja for­sögu kær­anda í sam­hengi við kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli hennar sé til þess fallið að ýta undir fór­dóma gegn trans­fólki. Að lokum er fjallað um núver­andi astæður og eft­ir­lit með kærasta í tölvu­póst­inum, sem sæki reglu­lega tíma hjá fag­fólki og tryggt sé að hún hafi engin sam­skipti við börn.

Sjón­ar­mið hins kærða

Um sjón­ar­mið þess kærða segir meðal ann­ars á vef BÍ:

Í andsvörum frá umboðs­manni kærðu er þess getið að umfjöllun um málið hafi átt sér stað eftir að kærði Frosti fékk ábend­ingu um málið. Var það mat kærðu að málið ætti erindi við almenn­ing og í þjóð­fé­lags­um­ræð­una, m.a. sem liður í umræðu um kyn­leið­rétt­ingar, sem væru „veru­lega umdeilt mál í sam­fé­lag­inu“ og færi umræða þess efnis vax­andi. Í kæru sé ekki rök­stutt sér­stak­lega með hvaða hætti kærðu eigi að hafa brotið gegn fyrr­greindum greinum siða­reglna BÍ og því ekki annað unnt en að mót­mæla því í heild sinni að umfjöll­unin brjóti gegn siða­regl­unum.

Í andsvörum kærðu er þess getið að áður en kær­andi var ákærður og síðan dæmdur fyrir brot sitt hafi kær­andi vakið athygli opin­ber­lega, m.a. með þátt­töku í söng­keppni fram­halds­skól­anna og seinna meir í söngvakeppni RÚV í aðdrag­anda Eurovision.

Enn fremur vísar Frosti því á bug að sú stað­reynd að kær­andi hafi skipt um nafn og hafið kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli, leiði til þess að óleyfi­legt sé að fjalla um hagi hennar fyrir og eftir nafna­breyt­ingu. Fréttin fjalli um kyn­ferð­is­brot gegn börnum, sem alltaf eigi erindi við almenn­ing, og að ekki sé hægt að krefj­ast þess að umfjöllum um slík mál hætti um leið og dómur fellur í máli við­kom­andi.

Þá er þess enn fremur getið í andsvör­unum að nafn og kyn séu ekki við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar sem séu vernd­aðar af per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf. Þá hafi umfjöllun um „lækni­fræði­legan bak­grunn“ kær­anda hafi aðeins verið vísað í opin­berar upp­lýs­ingar sem birst höfðu í fjöl­miðlum og á opin­berum vett­vangi.

Aukreitis eigi erindi við almenn­ing er dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður „skiptir um nafn
og/eða skiptir um kyn.“ Að fjöl­mörg dæmi séu til um að fjöl­miðlar, bæði hér­lendis og erlendis, hafi fjallað um nafn­breyt­ingar sak­felldra manna í kjöl­far þess að dómur fellur, enda sé mál­efnið umdeilt.

Að lokum segir um and­svar Frosta eft­ir­far­andi:

Í nið­ur­lagi and­svara kærðu er bent á að með hinni kærðu umfjöllun sé hreyft við því álita­máli „hvort þeir ein­stak­lingar sem að áliti sér­fræð­inga telj­ast ekki hafa nægan þroska til að afplána refs­ingu sína í fang­elsi hafi samt sem áður nægan þroska til að fara í óaft­ur­kræfa kyn­leið­rétt­ingu.“ Umræða um slíkt eigi fullt erindi við almenn­ing og í almenna þjóð­fé­lags­um­ræðu.

Aðeins fall­ist á eitt brot

Siða­nefndin sam­þykkir það sjón­ar­mið Frosta að hin kærða umfjöllun hafi verið liður í þjóð­fé­lags­um­ræðu, en bendir á leið á að við slíka umfjöllun skuli vinnu­brögð blaða­manns og fram­setn­ing upp­lýs­inga vera í sam­ræmi við ákvæði siða­reglna BÍ.

Siða­nefnd fellst á það sjón­ar­mið kærðu að hin kærða umfjöllun hafi verið liður í
þjóð­fé­lags­um­ræðu, en bendir á að „við slíka umfjöllun skulu vinnu­brögð blaða­manns og fram­setn­ing upp­lýs­inga vera í sam­ræmi við ákvæði siða­reglna BÍ.“

Siða­nefnd BÍ telur að Frosti og Nútíminn hefðu með hinni kærðu frétt, ekki brotið gegn 2, 6. eða 12. grein siða­reglna, sem og 7. grein sömu reglna:

Að virtum atvikum máls þessa telur siða­nefnd að með hinni kærðu umfjöllun, hafi kærðu ekki brotið gegn 2., 6. eða 12. gr. siða­reglna. Er þá til þess að líta að ekk­ert bendir til þess að blaða­maður hafi hag­rætt stað­reyndum eða sett fram órök­studdar ásak­anir. Þótt ummælin „[slíkt hljóti] þó að telj­ast stór áfell­is­dómur yfir kerf­inu í heild“ megi telja hálf glæfra­leg, er það mat siða­nefndar að með því sé vísað til þjóð­fé­lags­um­ræðu en ekki skoð­ana kærðu. Enn fremur ber umfjöll­unin með sér að kærði Frosti hafi reynt að hafa sam­band við kær­anda við vinnslu umfjöll­un­ar­innar.

Þá er þess gætt í hinni kærðu umfjöllun að geta þess hvaðan ummæli og upp­lýs­ingar eru fengin sem vitnað er til. Því er ekki um brot gegn 7. gr. siða­reglna að ræða.

Það sem siða­nefndin finnur að hinni kærðu umfjöllun Nútímans er það sem snýr að 3. gr. siða­reglna sem mælir fyrir um að blaða­maður skuli leið­rétta rang­færslur sé þess þörf en að fyrir liggi að degi eftir birt­ingu umfjöll­un­ar­innar hafi umboðs­maður kær­anda haft sam­band við Frosta og kraf­ist þess að hún yrði fjar­lægð. Rekur kær­andi í kæru sinni til nefnd­ar­innar síðan og rök­styður að rang­lega sé full­yrt í umfjöll­un­inni að kær­andi hafi reynt að setja sig í sam­band við ein­stak­linga „undir lög­aldri“.

Enn fremur er þess getið að fleiri hafi sett sig í sam­band við kærðu í sama til­gangi. Siða­nefndin segir í nið­ur­stöðu sinni að ekki væri hægt að sjá á gögnum máls­ins að Frosti hafi svarað beiðni kær­anda og að hann hafi ekki fjallað um þennan þátt kærunnar í and­svari sínu.

Siða­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að kærðu hafi brotið gegn 3. gr. siða­reglna BÍ og að mat nefnd­ar­innar sé það að brotið telj­ist ámæl­is­vert.

Eins og hvert annað hunds­bit

Mannlíf heyrði í Frosta og spurði hvað honum fynd­ist um nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar.

„Ég tel þennan úrskurð siða­nefnd­ar­innar í raun bara rangan. Það er í fyrsta lagi vegna þess að hann er ekki í neinum takti við sjálfa kæruna eða umkvört­un­ar­efnin sem voru reyndar fjöl­mörg, en þeim var öllum vísað frá af nefnd­inni,“ segir Frosti í skrif­legu svari til Mannlífs. Útskýrir hann málið frekar:

„Þarna var kvartað yfir frétta­flutn­ingi okkar af ein­stak­lingi sem dæmdur hafði verið fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum fyrir þremur árum en hefur síðan þá bæði skipt um nafn og kyn. Öllum umkvört­un­ar­efnum kær­anda var í raun vísað frá af siða­nefnd enda hafði ég svarað þeim skil­merki­lega í grein­ar­gerð til nefnd­ar­innar.“

Segir Frosti að nið­ur­staðan sé að ein­hverju leiti við hann sjálfan að sakast:

„Það kann hins vegar að vera við mig sjálfan að sakast, að ein­hverju leyti, að nið­ur­staðan varð eins og hún varð. Það er nefni­lega þannig að í athug­ar­semd­ar­hluta kærunnar bætir kvart­andi því við að haft hafi verið sam­band við mig og óskað eftir því að ég tæki frétt­ina út, en að sú ósk hafi alfarið verið hundsuð. Mér láð­ist að svara þess­ari athuga­semd í grein­ar­gerð minni þar sem ég flokk­aði hana ekki sem hluta af kærunni.

Stað­reyndin er sú að kvart­and­inn hafði fyrst hringt í mig og óskað eftir því að ég fjar­lægði frétt­ina af vefnum. Ég sagð­ist ekki geta gert það þar sem við stæðum við frétt­ina og að hún væri efn­is­lega rétt. Þá sendi kvart­and­inn mér tölvu­póst með sömu ósk og útli­staði í ein­hverju atriðum á hvaða for­sendum hann vildi fá frétt­ina fjar­lægða. Viðbrögð mín við þeim pósti voru að fjar­lægja úr frétt­inni máls­grein sem höfð var eftir heim­ild­ar­manni okkar, sem við reyndar treystum fylli­lega, en ákváðum að taka út þar sem hann vildi ekki koma fram undir nafni.“

Segist hann ekki hafa svarað erind­inu sér­stak­lega.

„Hins vegar svar­aði ég þessum tölvu­pósti ekki sér­stak­lega, og ég sé ekki betur en það sé það sem siða­nefnd blaða­manna­fé­lags­ins úrskurðar mig brot­legan fyrir. Nið­ur­staðan er þannig byggð á ákveðnum mis­skiln­ingi að mínu mati en ég get, sem fyrr segir, ekki alfarið kennt nefnd­inni um það þar sem svör mín til hennar voru hrein­lega ekki nægi­lega grein­ar­góð.

Það er því mín nið­ur­staða að taka þessu sem hverju öðru hunds­biti og hef ég ákveðið að næst þegar ég fæ svona kæru að þá mun ég eyða tveimur heilum vinnu­dögum í að svara nefnd­inni í stað þess að láta einn duga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina