Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Maður í Chicago Bulls-treyju sýknaður af líkamsárás á Vesturlandi

Brota­þoli hlaut var­an­legan augnskaða

Maður í Chicago Bulls-treyju sýknaður af líkamsárás á Vesturlandi
Sýknun Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Shutterstock

Maður var sýkn­aður af ákæru um lík­ams­árás í hér­aðs­dómi Vest­ur­lands. Var hann sak­aður um að hafa barið annan mann í augað á balli, með þeim afleið­ingum að gler­augu manns­ins brotn­uðu og skár­ust í auga hans. Brota­þol­inn varð fyrir var­an­legri sjón­skerð­ingu. Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að sá ákærði hefði verið hafður fyrir rangri sök.

Stymp­ingar á dans­gólf­inu

Í ákærunni segir að brota­þol­inn hefði fengið skurð á efra og neðra augn­lok við höggið, horn­himna aug­ans hafi skorist í sundur og lit­himna skadd­ast á stóru svæði. Þá hafi hann orðið fyrir var­an­legri sjón­skerð­ingu.

Í nið­ur­stöðu dóms­ins kemur fram að atvikið hafi átt sér stað á myrku dans­gólfi, á balli sem fór fram á Vest­ur­landi 2023, í mann­mergð og að óljósar stymp­ingar hafi orðið á milli manna.

Brota­þol­inn sagði fyrir dómi að hann hefði ýtt manni á ball­inu sem hefði reynt að „flug­skalla“ vin hans. Segir hann þá hinn ákærða hafa reynt að kýla hann í and­litið en sagð­ist þó ekki séð höggið sem hæfði hann í augað og ekki vitað með vissu hver hefði veitt það fyrr en eftir á.

Sögðu annan hafa átt höggið

Fyrir dómi við­ur­kenndi sá ákærði að hafa kýlt brota­þola en þó aðeins í öxl­ina eða rétt fyrir ofan hana og að aðrir hafi einnig kýlt mann­inn. Taldi hann sitt högg ekki hafa valdið skað­anum.

Fram­burður hins ákærða var met­inn trú­verð­ugur af dómnum og fengi auk þess stoð í öðrum gögnum máls­ins. Kemur fram í dómnum að eng­inn vitn­is­burður, hvorki brota­þola né ann­arra vitna, sýni fram á að hinn ákærði hafi veitt hnefa­höggið umrædda.

Þó nokkur vitni komu fyrir dómnum enda var margt um mann­inn á ball­inu og margir í nálægð við stymp­ing­arnar. Tvö þeirra lýstu árás­armann­inum sem grönnum manni með aflitað hár og klæddur í buxum með eld­inga­mynstri. Sá ákærði sagð­ist hins vegar hafa verið klæddur í svarta skó, svartar galla­buxum og svartri og rauðri Chicago Bulls-körfu­bolta­treyju með hvítum stöfum.

Þá sagð­ist annað vitni ekki viss hvort sá ákærði hefði veitt áverk­ana, eða annar maður, sem í dómnum er kall­aður E. Fyrir dómi sagð­ist vitnið telja fram­burð sinn hjá lög­reglu trú­verð­ugri, en þá hafði hann sagt að E hefði lyft hægri hendi upp í loft og kýlt mann­inn með krepptum hnefa. Nefndi hann nafnið á E og lýsti honum sem grönnum með aflitað ljóst hár. Enn eitt vitnið sagði E hafa áður lent í úti­stöðum við brota­þola á skóla­balli þegar þeir voru í 9. bekk og að E hafi montað sig af því í rútu á leið­inni heim eftir ballið að hafa verið sá sem kýldi mann­inn í augað.

Fram kemur í dómnum að sú lýs­ing passi ekki við hinn ákærða en á upp­töku frá kvöld­inu má sjá útlit hins ákærða umrætt kvöld. Þá sagði annað vitni, sem þekkti ekki hinn ákærða þrátt fyrir að vera skylt honum, að hinn ákærði hefði ekki getað kýlt mann­inn í augað, miðað við stað­setn­ingu hans í átök­unum.

Þar sem dóm­ur­inn taldi ekki sannað að sá ákærði hefði gerst sekur um árás­ina, var hann sýkn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við