Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Skotmaðurinn í Flórída var barn í forræðisdeilu

„Ég hafði haft áhyggjur af honum,“ segir norsk móðir skot­manns­ins, sem þurfti að skila barn­inu til Banda­ríkj­anna frá Noregi.

Skotmaðurinn í Flórída var barn í forræðisdeilu
Phoenix Ikner Breytti nafn­inu sínu úr Christian Gunner Eriksen í Phoenix Ikner til að tákna fugl­inn fönix sem reist úr ösk­unni, hold­gerv­ingur æsku. Mynd: Instagram

Maðurinn sem skaut átta manns í Florida State Uni­versity var norskur að upp­runa. Hann hét Christian Gunner Eriksen, þar til hann breytti nafn­inu í Phoenix Ikner árið 2020. Þannig tók hann eft­ir­nafn föður síns og for­nafn sem vís­aði til fugls­ins Fönix, sem reis upp úr ösk­unni í grískri goða­fræði.

Þegar hann var barn hafði móðir hans verið skikkuð til þess að skila honum til banda­rísks föður hans. Hún fór með hann 10 ára gamlan frá Banda­ríkj­unum til Noregs, gegn vilja föð­ur­ins. Móðirin, Anne-Mari, hafði sagst ætla með hann í Dis­neyland, en flaug með hann til Noregs. Þá hafði fað­ir­inn sakað hana um að hýsa dreng­inn í óþrifn­aði og van­rækja tal­þjálfun sem hann þurfti á að halda. Hún neit­aði því.

Í dóms­skjölum er aðstæðum Phoenix, þá Christians, lýst sem svo: „Hann er í miðju stríði“.

Faðir hans og stjúp­móðir, sem kom síðar við sögu, fóru til Noregs á eftir honum og fengu dóms­úr­skurð um að skila skyldi drengnum aftur til Banda­ríkj­anna.

Hún fór með hann í flugi frá Noregi til Flórída, þar sem hún var hand­tekin árið 2015 fyrir barns­rán. Eftir hand­tök­una var hún dæmd til 200 daga fang­els­is­vistar og tveggja ára sam­fé­lags­vinnu. Eftir það tóku við tvö ár til við­bótar á reynslu­lausn. Henni var skipað að eiga engin sam­skipti við son sinn, kenn­ara hans, lækna eða ráð­gjafa, án sér­staks dómsúrks­urðar. Tveimur árum eftir að Anne-Mari sneri aftur til Banda­ríkj­anna með son sinn var barns­föð­urnum dæmt fullt for­ræði.

Eftir skotárás­ina lýsti hún for­eldrafirr­ingu í við­tali við útvarps­stöð á svæð­inu. „Ég var firrt frá honum,“ segir Anne-Mari Eriksen í við­tal­inu, sem hafði ekki hitt hann í nokkur ár. „Ég hafði haft áhyggjur af honum, en mig hefði aldrei grunað þetta.“

„Andlega þroskaður ungur maður“

Það var síðan fimm árum eftir lend­ingu í Tallahassee sem Christian Gunner steig fram fyrir dóm­ara og bað um að fá nafni sínu breytt. Hann heill­aði dóm­ar­ann, íklæddur vara­liðs­bún­ingi sjó­hers­ins. Að mati dóm­ar­ans var hann „and­lega, til­finn­inga­lega og lík­am­lega þrosk­aður ungur maður, sem var mjög mælskur, nokkuð gáf­aður og kurt­eis“. Þá sagði dóm­ari að hans fyrra, norska nafn væri „stöðug áminn­ing um harm­leik­inn sem hann gekk í gegnum árið 2015“ og um „móður sem hann hafði ekki hitt eða talað við frá árinu 2015.“ Nafna­breyt­ingin yfir í til­vísun til fugls­ins Fönix, myndi þannig hjálpa honum að „takast á við þessa atburði for­tíðar“.

Eftir skotárás­ina kvart­aði Anne-Mari yfir því að faðir hans svar­aði ekki þegar hún skrif­aði til hans og spurði „hvort allt sé í lagi með son minn, sem gengur í Háskól­ann í Flórída“.

Trumpisti með kynþáttahyggju

Fyrir ein­hverjum var hann þekktur sem „venju­legur háskólagaur“. En aðrir höfðu heyrt hann flagga kyn­þátta­hyggju og stuðn­ingi sínum við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Hann tók þátt í rök­ræðu­keppnum. Einn með­limur í rök­ræðulið­inu sagði að Phoenix hafi „haft uppi svo mikla kyn­þátta­hyggju og öfga-hægri orð­ræðu“. Forseti rök­ræðu­klúbbs­ins lýsti því sama og segir Phoenix hafa lýst stuðn­ingi við stefnu Donalds Trump. Margir í lið­inu grun­uðu hann um að vera fas­ista. Hann hafi dansað á lín­unni í umræðum í klúbbnum og farið yfir strikið í umræðum eftir rök­ræðu­fund­ina.

Hann var á þeirri skoðun að Rosa Parks hefði haft rangt fyrir sér, þegar hún sett­ist fremst í stræt­is­vagn og rauf þar með reglur um aðskilnað kyn­þátta. Honum þótti svart fólk „eyði­leggja hverfið“ hans. Hann þoldi ekki mót­mæli með mál­stað Palest­ínu­manna eða Black Lives Matter, en varði notkun nasískra tákna.

Rekinn úr ræðuliðinu

Á end­anum var hann beð­inn að yfir­gefa ræðu­klúbb­inn. „Hann hafði stöðugt látið fólki líða illa, þannig að sumir hættu að mæta. Það var þá sem við komum að úrslita­stund með Phoenix og báðum hann að fara.“

„Ég lenti í rifr­ildi við hann um hversu ógeðs­lega hluti hann var að segja,“ sagði Lucas Luzietti, sam­nem­andi hans í stjórn­mála­fræði, við NBC News. „Hann hædd­ist að dauða fólks úr minni­hluta­hópum. Ég man eftir að hafa hugsað að þessi maður ætti ekki að hafa aðgang að skot­vopnum. Hvað getur maður gert? Mamma hans var lögga og Flórída hefur ekki öflug lög um flöggun.“

Þannig afl­aði Phoenix sér skot­vopna. Hann tók byssu stjúp­móður sinnar, sem er aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. Hann var með skamm­byssu og AR-15 riffil. Síðan sett­ist hann upp í bíl föður síns og ók að háskól­anum. Þar drap hann tvo og særði sex. Þeir sem lét­ust voru starfs­menn í skól­anum annar af suður-amer­ískum upp­runa, hinn af ind­verskum. Báðir voru þeir feður sem unnu við matseld í skól­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco