Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Prestar í íslensku þjóðkrikjunni fordæma brottvísun

Yfir­lýs­ing frá 30 prestum þjóð­kirkj­unnar

Prestar í íslensku þjóðkrikjunni fordæma brottvísun
Oscar Anders Florez Bocanegra verður vísað úr landi Vígðir prestar vilja halda honum á land­inu Mynd: Aðsend

Til þar til bærra stjórn­valda á Íslandi.

Við und­ir­rituð, vígðir prestar í íslensku þjóð­kirkj­unni, lýsum yfir sam­stöðu með þeirri fjöl­skyldu sem nú fer fram á dval­ar­leyfi fyrir Oscar Anders Florez Bocanegra.

Forsaga máls­ins er skv. lýs­ingu fjöl­skyld­unnar sú að:

Oscar Anders Florez Bocanegra, 17 ára drengur frá Kólumbíu, stendur nú frammi fyrir því að vera vísað úr landi í annað sinn. Oscar kom hingað árið 2022 ásamt föður sínum. Móðir hans er ekki til staðar í lífi hans og faðir hans var til­kynntur fyrir ofbeldi á hans hendur og hefur afsalað sér form­lega for­sjá hans. Þrátt fyrir það var Oscar sendur úr landi með föður sínum síð­ast­liðið haust. Í Bogotá gripu hann engin barna­vernd­ar­yf­ir­völd og hann end­aði því einn á göt­unni, óvar­inn, ein­mana og hræddur. Fóst­ur­fjöl­skylda hans á Íslandi kom honum aftur heim til Íslands, þar sem hann hefur notið öryggis, skóla­göngu ogum­hyggju. Þar til nú, þegar stendur til að vísa honum aftur úr landi.

Við sem þessa yfir­lýs­ingu und­ir­ritum eigum ekki beina aðkomu að mál­inu en við teljum okkur skylt og ljúft að sýna mál­stað þessa barns sam­stöðu. Íslenska Þjóð­kirkjan er evang­el­ísk-lúth­ersk kirkja og sem slíkri ber henni miða erindi sitt við rit­skýr­ingu Bibl­í­unnar. Við prests­vígslu lofar vígslu­þegi að standa vörð um „æsku­lýð­inn“, að „styðja lít­il­magna og hjálpa bág­stöddum“, auk þess að „rann­saka ritn­ing­arnar“ og lifa eftir þeim. Í sið­fræði Gamla testa­ment­is­ins er lögð áhersla á umgengni við útlend­inga og í sama kafla og Jesús nam orðin „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ (3M 19.18) er jafn­framt að finna þá kröfu að: „Aðkomu­maður, sem dvelur hjá ykkur, skal njóta sama réttar og inn­bor­inn maður. Þú skalt elska hann eins og sjálfan þig því að þið voruð aðkomu­menn í Egypta­landi. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“ Í kennslu Jesú eru börn í for­grunni, sem fyr­ir­myndir og sem skjól­stæð­ingar okkar: „Leyfið börn­unum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki.“ Þá er sið­fræði Bibl­í­unnar dregin saman í orðum Jak­obs­bréfs sem segir að: „Hrein og flekk­laus guð­rækni fyrir Guði föður er að vitja mun­að­ar­lausra og ekkna í þreng­ingum þeirra.“

Kirkjan fagnar nú gleði­dögum en þeir eru haldnir í ljósi upp­risu­há­tíðar páskanna og að und­an­geng­inni föstu, þar sem sam­fé­lög og ein­stak­lingar eru hvött til að iðka mis­kunn­semi og að rækta kær­leika í garð allra.

Sú fjöl­skylda sem nú berst fyrir vel­ferð Oscar Anders Florez Bocanegra og hefur veitt honum skjól í þreng­ingum sínum, birtir með beinum hætti þá dyggðasið­fræði sem Biblían kennir. Við tökum undir þá kröfu að honum verði veitt dval­ar­leyfi hér­lendis.

Virð­ing­ar­fyllst,

Sr. Aðal­steinn Þor­valds­son, prestur í Akur­eyrar- og Laug­lands­presta­kalli.

Sr. Arna Grét­ars­dóttir, sókn­ar­prestur í Reyni­valla­presta­kalli.

Sr. Arndís G. Bern­hards­dóttir Linn, Mos­fells­presta­kall, Mos­fellsbæ.

Sr. Árni Þór Þórsson, prestur inn­flytj­enda og flótta­fólks.

Dr. Bjarni Karlsson, prestur og sið­fræð­ingur við sál­gæslu­stof­una Haf.

Sr. Bolli Pétur Bollason, prestur í Tjarna­presta­kalli.

Sr. Bryndís Böðv­ars­dóttir, prestur.

Sr. Daníel Ágúst Gautason, prestur í Linda­kirkju.

Sr. Edda Hlíf Hlíf­ars­dóttir, prestur í Húna­vatns­presta­kalli.

Sr. Elínborg Gísla­dóttir, sókn­ar­prestur í Grinda­vík­ur­sókn.

Sr. Eva Björk Valdi­mars­dóttir, bisk­ups­rit­ari.

Sr. Guð­mundur Örn Jónsson, sókn­ar­prestur í Vest­manna­eyja­presta­kalli.

Sr. Guðný Hall­gríms­dóttir, prestur fatl­aðra.

Sr. Hildur Björk Hörpu­dóttir, við Gler­ár­kirkju á Akureyri.

Sr. Hildur Eir Bolla­dóttir, sókn­ar­prestur í Akur­eyr­ar­kirkju.

Sr. Hjalti Jón Sverr­is­son, fanga­prestur.

Sr. Jóhanna Gísla­dóttir, prestur í Akur­eyrar- og Lauga­lands­presta­kalli.

Sr. Jóna Hrönn Bolla­dóttir, sókn­ar­prestur í Vídalíns­kirkju í Garðabæ.

Sr. Margrét Lilja Vil­mund­ar­dóttir, prestur í Frí­kirkj­unni í Hafn­ar­firði.

Sr. Matt­hildur Bjarna­dóttir, prestur í Vídalíns­kirkju í Garðabæ.

Sr. Oddur Bjarni Þor­kels­son, prestur í Dal­vík­ur­presta­kalli.

Sr. Ragn­heiður Karítas Pét­urs­dóttir, prestur.

Dr. Sigríður Guð­mars­dóttir, pró­fessor við Guðfræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ.

Sr. Sigríður Munda Jóns­dóttir, sókn­ar­prestur í Þor­láks­hafn­ar­presta­kalli.

Sr. Sigrún Mar­grétar Ósk­ars­dóttir, prestur og fag­legur hand­leið­ari Land­spít­ala.

Dr. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur í Vídalíns­kirkju í Garðabæ.

Sr. Sólveig Halla Krist­jáns­dóttir, prestur í Þing­eyj­ar­presta­kalli.

Sr. Stefanía Steins­dóttir, sókn­ar­prestur í Ólafs­fjarð­ar­presta­kalli.

Sr. Toshiki Toma, prestur inn­flytj­enda og flótta­fólks.

Sr. Úrsúla Árna­dóttir, prestur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina