Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þúsundir Ísraela mótmæla í Tel Aviv

Krefjast vopna­hlés og frels­unar gísla á Gaza

Þúsundir Ísraela mótmæla í Tel Aviv
Frá mót­mæl­unum Mót­mæl­andi í gervi Donalds Trump. Mynd: JACK GUEZ/AFP

Þúsundir Ísraela komu saman á mót­mæla­fundi í mið­borg Tel Aviv þar sem kraf­ist var þess að Ísra­els­stjórn stöðv­aði stríðið í Gasa­svæð­inu og tryggði taf­ar­lausa lausn ísra­el­skra gísla sem þar eru í haldi.

Samkvæmt ísra­elska dag­blað­inu Haaretz fór viku­legur mót­mæla­fundur sam­tak­anna „Hostages and Missing Families Forum“ fram á svoköll­uðum „Gísla­torgi“ í Tel Aviv í gær, á sama tíma og aðstand­endur gísla héldu einnig mót­mæli fyrir utan höf­uð­stöðvar ísra­elska hers­ins.

Auk þess fór fram sér­stakur mót­mæla­fundur gegn rík­is­stjórn­inni á Habima-torgi í borg­inni.

Mótmælin í gærÞúsundir Ísraela mót­mæltu rík­is­stjórn lands­ins.

Times of Israel greinir frá því að Shai Mozes, sem missti báða for­eldra sína í haldi Hamas en þeir voru síðar leystir úr gísl­ingu í tveimur aðskildum skiptum, hafi sagt á Habima-torgi að „raun­veru­legi óvinur Ísraels sé ekki Hamas heldur for­sæt­is­ráð­herr­ann Benjamin Net­anyahu sem sé að rústa Ísrael sem gyð­inga- og lýð­ræð­is­ríki.“

Frétta­rit­ari Al Jazeera, Hamdah Salhut, greindi frá því í Amman, Jórdaníu, að aðstand­endur gísla telji Net­anyahu halda stríð­inu áfram í eigin þágu, bæði per­sónu­legum og póli­tískum, og að hann sé óvilj­ugur að fall­ast á nokkurn frið­ar­samn­ing.

„Enn eru 59 gíslar í haldi á Gaza. Af þeim hafa ísra­elsk yfir­völd stað­fest dauða 35, 21 eru talin á lífi og um afdrif þriggja er ekk­ert vitað,“ sagði hún.

Ísraelsk yfir­völd hafa lýst því yfir að frek­ari hern­að­ar­að­gerðir á Gaza standi fyrir dyrum og að ekki standi til að semja um vopna­hlé að svo stöddu. Þau telja að best sé að frelsa gísl­ana með her­valdi, en aðstand­endur gísl­anna og stór hluti ísra­elsks almenn­ings eru ósam­mála þeirri stefnu.

Eftir að Net­anyahu til­kynnti á mánu­dag um auknar árásir á Gaza gagn­rýndu „Hostages and Missing Families Forum“ áformin harð­lega og sögðu að með því væri verið að „fórna“ gísl­unum sem enn eru í haldi þar.

Haaretz greinir einnig frá því að mót­mæli hafi verið skipu­lögð víðar um Ísrael, meðal ann­ars í Jer­úsalem, Haifa og Beersheba, auk tugi ann­arra staða og gatna­móta.

Sama dag birti hern­að­ar­vængur Hamas mynd­band þar sem tveir ísra­elskir gíslar eru sýndir á lífi. Annar þeirra hvatti ísra­elsku rík­is­stjórn­ina til að binda enda á 19 mán­aða langt stríðið.

Ísra­elskir fjöl­miðlar greindu frá því að menn­irnir á mynd­band­inu væru Elkana Bohbot og Yosef Haim Ohana.

Á þriggja mín­útna mynd­band­inu má sjá Bohbot, 36 ára, liggja veik­burða á gólfi vaf­inn inn í teppi. Ohana, 24 ára, talar hebr­esku í mynd­band­inu og hvetur rík­is­stjórn­ina til að binda endi á stríðið og tryggja frelsun allra sem enn eru í haldi.

Báðir voru teknir höndum af víga­mönnum Hamas á tón­list­ar­há­tíð í Suður-Ísrael 7. októ­ber 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta