Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þýddi grein eftirlifanda Helfararinnar sem styður Palestínu

„En við vitum að þeir vilja lýsa mót­mæl­unum í London sem and­gyð­ing­legum“

Þýddi grein eftirlifanda Helfararinnar sem styður Palestínu
Stephen Kapos Stephen er gyð­ingur sem styður Palest­ínu. Mynd: Facebook

Karen Kjart­ans­dóttir gerði sér lítið fyrir og þýddi grein sem eft­ir­lif­andi úr Helför nas­ista skrif­aði nýverið.

Stjórn­enda­ráð­gjaf­inn og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­konan Karen Kjart­ans­dóttir birti í gær grein sem hún hafði þýtt en hún er eftir Stephen Kapos, sem lifði af Helför nas­ista en hann var sjö ára þegar Þjóð­verjar réð­ust inn í Ung­verja­land, þar sem hann bjó.

„Góðan dag kæri vinir! Mér datt í hug að þýða áhuga­verða grein sem ég las um dag­inn og hefur ásótt mig síðan áður en ég fer út að skokka í sól­inni.“ Þetta skrif­aði Karen og birti síðan þýddu grein­ina sína.

Í grein­inni rifjar Kapos upp hvernig það hafi verið að vera ofsóttur gyð­ingur með fölsuð skil­ríki og algjöra eyði­legg­ingu allt um kring. Líkir hinn aldr­aði gyð­ingur ástand­inu við það sem er í gangi á Gaza í dag. Segir hann að stefna Ísraels hafi í meira en ár verið sú að eyði­leggja palest­ínskt sam­fé­lag og þvinga fram brott­flutn­ing sem flestra. Segir hann stefn­una að mörgu leyti ólíka stefnu nas­ista en á sama tíma að mörgu leyti lík. Það sé ástæðan fyrir því að hann hafi tekið þátt í fjölda stuðn­ings­mót­mæla fyrir Palest­ínu í Lundúnum. Þá furðar hann sig á hörku yfir­valda gagn­vart mót­mæl­endum.

Hér má lesa grein Stephen Kapos í þýð­ingu Karenar Kjart­ans­dóttur:

Ég er eft­ir­lif­andi úr Hel­för­inni. Breska lög­reglan yfir­heyrði mig fyrir að mót­mæla þjóð­ar­morði

Stephen Kapos

Lista­maður, fyrr­ver­andi arki­tekt og eft­ir­lif­andi úr Hel­för­inni

Birt: 25. mars 2025

Ég var sjö ára þegar Þýska­land réðst inn í og hernam ótryggan banda­mann sinn, Ung­verja­land, í mars 1944. Ég er því 87 ára í dag. En minn­ingar mínar í felum sem ofsóttur gyð­ingur á fölsuðum skil­ríkjum, algjöra eyði­legg­ing­una í kringum okkur og átökin milli innikró­aðra þýskra her­sveita og Rauða hers­ins, eru mér enn skýrar. Ég sé brunna bíla, skrið­dreka, dauða hesta og manns­lík, skot­færi og hjálma dreifða um allt, brunnin hús, rústir og brotið gler – líkt og rúst­irnar á Gaza líta út í dag.

Í meira en ár hefur verið ljóst að stefna Ísraels er að eyði­leggja palest­ínskt sam­fé­lag á Gaza og þvinga sem flesta til að yfir­gefa svæðið. Þessi stefna er að mörgu leyti ólík áætl­unum nas­ista um að eyða gyð­inga­sam­fé­lag­inu í Evrópu – en hún er einnig að mörgu leyti svipuð. Það er ástæðan fyrir því að ég, sem eft­ir­lif­andi úr hel­för­inni, hef tekið þátt í fjölda stuðn­ings­mót­mæla fyrir Palest­ínu í London.

Þessi mót­mæli hafa verið fjöl­mörg og oft gríð­ar­stór. Það kemur því ekki á óvart að stjórn­völd hafi beitt sífellt meiri tak­mörk­unum á þau til að fæla fólk frá þátt­töku. En ég varð samt hissa þegar lög­reglan í London kall­aði mig inn til yfir­heyrslu.

Við vitum ekki hversu langt vald­hafar ætla sér að ganga með tak­mark­anir á mót­mæla­rétti. En við vitum að þeir vilja lýsa mót­mæl­unum í London sem and­gyð­ing­legum. Þetta er þrátt fyrir að þau hafi dregið að sér þús­undir gyð­inga og að margir gyð­ingar, þar á meðal ég sjálfur, hafi talað til mót­mæl­enda frá svið­inu.

Fyrir ári síðan, í apríl 2024, hélt ég mína fyrstu ræðu á sviði í Hyde Park. Ég sagði stórum hópi fólks frá því hvernig Adolf Eichmann kom til Ung­verja­lands til að skipu­leggja brott­vísun 400.000 gyð­inga til Auschwitz. Ég tal­aði einnig um fimmtán með­limi fjöl­skyldu minnar sem lét­ust þar og um föður minn sem var fluttur til Belsen og Ther­esi­enstadt-fanga­búð­anna, þó að hann hafi að lokum lifað af.

Ég end­aði ræð­una á þessum orðum: „Við gyð­ingar, sem lifðum af allt þetta: þján­ingar, morð, nið­ur­læg­ingu og eyð­ingu, erum á móti því að Ísra­els­stjórn noti minn­ingu um hel­för­ina sem yfir­varp og rétt­læt­ingu fyrir áfram­hald­andi þjóð­ar­morði gegn palest­ínsku fólki í Gaza og Vest­ur­bakk­anum.“

Það sem vakti mesta athygli var ekki það sem ég sagði, heldur hvernig fjöld­inn hlust­aði á ræð­una í þögn og klapp­aði svo af ákafa. Að halda því fram að slíkur fjöldi væri and­gyð­ing­legur, hvað þá ofbeld­is­fullur, er fárán­legt. Samt gerðu fjöl­miðlar einmitt það dag­inn eftir þegar þeir birtu ósann­aðar greinar þar sem full­yrt var að hóp­ur­inn hefði hótað að skemma minn­is­varða um Hel­för­ina í Hyde Park.

Síðan þá hafa stjórn­mála­menn og blaða­menn haldið áfram að lýsa mót­mæl­unum sem „hat­urs­fullum“ eða að þær skapi „hættu fyrir gyð­inga“. Nýlegar full­yrð­ingar um að göng­urnar séu ógn við sam­kundu­hús í London eru enn eitt dæmið um þessa stöð­ugu, en til­efn­is­lausu, áróð­urs­her­ferð.

Þeir sem hafa orðið vitni að hlý­hug og stuðn­ingi sem hóp­ur­inn okkar, sem sam­anstendur af eft­ir­lif­endum og afkom­endum eft­ir­lif­enda úr Hel­för­inni, hefur fengið á göng­unum, skilja hversu fjar­stæðu­kenndar þessar ásak­anir eru.

En mik­il­væg­ast af öllu er að þessi her­ferð er mark­viss truflun frá aðal­mál­inu, sem er að stöðva þjóð­ar­morðið í Gaza strax. Nú þegar Ísrael heldur áfram óheftum sprengju­árásum sínum og myrðir hund­ruð fleiri borg­ara á Gaza er nauð­syn­legt fyrir okkur öll í Bret­landi að tala nú þegar gegn þátt­töku eigin rík­is­stjórnar í þjóð­ar­morði Ísraels.

Stephen Kapos

Lista­maður, fyrr­ver­andi arki­tekt og eft­ir­lif­andi úr hel­för­inni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta