Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga

Yfir­lýs­ing frá Félagi forn­leifa­fræð­inga leggur áherslu á mik­il­vægi þeirra fyrir Þjóð­minja­safnið

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Upp­sagnir á Þjóð­minja­safn­inu Hags­muna­að­ilar forn­leifa­fræð­inga eru alls ekki sáttir við stöð­una Mynd: ÖBÍ

Félag forn­leifa­fræð­inga og Félag nor­rænna for­varða á Íslandi hafa sent frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far þess að þremur forn­leifa­fræð­ingum var sagt upp störfum á Þjóð­minja­safni Íslands.

Telja félögin að upp­sagn­irnar séu ósann­gjarnar og það sé ótækt að aðeins einn forn­leifa­fræð­ingur sé við störf hjá safn­inu. Benda félögin meðal ann­ars á að árið 1985 hafi þrír forn­leifa­fræð­ingar unnið hjá safn­inu en þá hafi miklu færri forn­leifa­rann­sóknir farið fram árlega en í dag.

Þá séu dragi upp­sagn­irnar úr trú­verð­ug­leika safns­ins sem vís­inda­stofn­unar.

Hægt er að lesa alla til­kynn­ingu hér fyrir neðan:

Félag forn­leifa­fræð­inga og Félag nor­rænna for­varða á Íslandi eru ugg­andi yfir nýlegum upp­sögnum starfs­manna Þjóð­minja­safns Íslands. Helmingi þess fólks sem er menntað í forn­leifa­fræði og starfar við Þjóð­minja­safnið var sagt upp á einu bretti.

Þetta eru sér­fræð­ingar sem sumir hverjir hafa starfað fyrir safnið í meira en ára­tug. Þau hafa sinnt mik­il­vægu starfi innan veggja safns­ins í þágu allrar þjóð­ar­innar, enda forn­minjar þjóð­ar­eign. Þetta er áfall fyrir það góða starf sem forn­leifa­fræð­ingar og for­verðir hafa unnið innan safns­ins allt frá stofnun þess og finnst okkur hart vegið að stétt­unum með þessum upp­sögnum.

Gefnar ástæður fyrir upp­sögn­unum eru hag­ræð­ingar og áherslu­breyt­ingar innan safns­ins. Félögin gera sér grein fyrir að hag­ræð­ingar þurfi að eiga sér stað en að fórna þurfi störfum forn­leifa­fræð­inga og for­varða innan Þjóð­minja­safns­ins til þess að skapa nýjar stöður í stað­inn er ósann­gjarnt, og þá sér­stak­lega innan höf­uð­vígis okkar, Þjóð­minja­safns­ins. Þetta er mikil blóð­taka fyrir fögin, enda ekki margar fastar stöður innan þeirra í boði á Íslandi.

Eftir upp­sagn­irnar er ein staða forn­leifa­fræð­ings eftir við Þjóð­minja­safnið, “sér­fræð­ingur forn­minja”, og á sá aðili einn að sjá um að taka við öllum forn­munum sem ber­ast safn­inu úr forn­leifa­rann­sóknum og hafa yfir­sýn yfir þá. Engin eig­in­leg staða forn­leifa­fræð­ings, í hinum hefð­bundna skiln­ingi, hefur verið við safnið í ára­tugi, þó að þar hafi margir sér­fræð­ingar með menntun í forn­leifa­fræði sinnt ýmsum mik­il­vægum störfum. Bæði þjóð­minja­safn Færeyja og Græn­lands, tölu­vert fámenn­ari þjóðir, hafa fleiri forn­leifa­fræð­inga inn­an­húss en Þjóð­minja­safn Íslands.

Enn fremur er ein­ungis einn “for­vörður í muna­safni” eftir á safn­inu sem á að sinna for­vörslu á öllum forn­munum, bæði þeim sem koma inn úr forn­leifa­rann­sóknum og Þjóð­minja­safn án forn­leifa­fræð­inga þarfn­ast í mörgum til­fellum björg­unar sam­stundis, en ekki síður að við­halda ástandi þeirra gripa sem nú þegar eru í vörslu safns­ins og koma í veg fyrir að þeir skemmist. Til sam­an­burðar störf­uðu árið 1985 þrír for­verðir hjá safn­inu en þá fóru miklu færri forn­leifa­rann­sóknir fram árlega en í dag. Ráðamenn verða að gera sér grein fyrir því hversu lítið má út af bregða til þess að forn­minjar sitji undir skemmdum vegna mann­eklu og ótt­umst við að það verði þekk­ing­ar­tap á Þjóð­minja­safn­inu á sviði forn­minja með svo fáa forn­leifa­fræð­inga og for­verði inn­an­borðs.

Þjóð­minja­safnið þarf að sinna skyldum sínum eins og kveður á í lögum um menn­ing­arminjar (80/2012) um mót­töku og varð­veislu forn­minja, og telja félögin að óraun­hæft sé að leggja þá ábyrgð á ein­ungis tvo starfs­menn. Þar að auki er Þjóð­minja­safnið eitt af höf­uð­söfnum Íslands og á að heita háskóla­stofnun en því fylgja ákveðnar skyldur. Safnið á að vera mið­stöð varð­veislu og rann­sókna menn­ing­arminja og hafa for­ystu í mál­efnum á sínu sviði. Þessar upp­sagnir eru til marks um algjört áhuga­leysi á fræði­legri upp­bygg­ingu og draga þær úr trú­verð­ug­leika safns­ins sem vís­inda­stofn­unar. Einnig vekur það furðu félag­anna að þjóð­minja­vörður skuli láta hafa eftir sér að enn starfi fimm forn­leifa­fræð­ingar við safnið og það sé áfram stærsti ein­staki fag­hóp­ur­inn á safn­inu, þegar stað­reyndin er sú að eng­inn þess­ara forn­leifa­fræð­inga situr í raun­veru­legri stöðu forn­leifa­fræð­ings.

Ljóst er að atburðir und­an­far­inna daga hafa dregið úr trausti okkar gagn­vart Þjóð­minja­safni Íslands og þeim skyldum sem það á að gegna. Þar af leið­andi hvetja félögin til þess að upp­sagn­irnar verði end­ur­skoð­aðar taf­ar­laust og viljum við minna stjórn­endur safns­ins á að bera hag menn­ing­ar­arfs íslensku þjóð­ar­innar fyrir brjósti við stefnu­mótun þess í fram­tíð­inni.

Snædís Sunna Thorlacius

Fyrir hönd Félags forn­leifa­fræð­inga

Ingi­björg Áskels­dóttir

Fyrir hönd NKF-Ísland, Félag nor­rænna for­varða á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina