Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk kona segir stuðningsmenn Ísraela ógnandi í Basel

Býst við fjöl­mennum mót­mælum á morgun.

Íslensk kona segir stuðningsmenn Ísraela ógnandi í Basel
Stuðn­ings­menn Ísrael. Stuðn­ings­menn Ísraela hróp­uðu ókvæð­is­orðum að mót­mæl­end­unum. Mynd: Facebook

Ung íslensk kona sem býr nærri Basel í Sviss, segir að lög­reglan í Basel hafi bannað henni og fleiri stuðn­ings­mönnum Palest­ínu að veifa palest­ínska fán­anum nærri Eurovision-höll­inni í Basel í gær.

Konan, sem hefur tekið þátt í mót­mælum gegn þjóð­ar­morð­inu á Gaza ræddi við Mannlíf í síma, en hún vill ekki láta nafn síns getið vegna þess hversu erfitt sé að vera opinn stuðn­ings­maður Palest­ínu í Þýska­landi en hún býr í Freiburg, sem er nærri landa­mærum að Sviss.

Mótmælin á sunnu­dag­inn.Hund­ruðir manna mót­mæltu Eurovision í Basel á sunnu­dag­inn.

Segir konan að mót­mælin sem hún hafi tekið þátt þessa vik­una í Basel, hafi verið afar frið­söm og að lög­reglan þar í borg hafi ekki beitt óþarfa ofbeldi, ólíkt starfs­bræðrum sínum í Þýska­landi, sem hafa beitt mót­mæl­endur ítrekað ofbeldi frá því að stríðið á Gaza hófst enn og aftur 7. októ­ber, 2023. „Mér finnst þetta hafa verið allt mjög frið­sam­legt, en það eru auð­vitað aðilar á báðum hliðum sem eru extreme, sem hafa brotið reglur en á þeim mót­mælum sem ég hef mætt á hefur allt verið mjög frið­sælt. Þau vita það að það er ekk­ert gagn­legt ef þau brjóta reglur því þá koma þau ekki skila­boð­unum til skila.“

Mótmælt við höll­ina.„Velkomin á þjóð­ar­morðs­söngvakeppn­ina.“

Konan seg­ist aðeins hafa séð eina hand­töku en þá voru mót­mæli þegar kepp­endur Eurovision mættu á rauða dreg­il­inn á sunnu­dag­inn en þá var kona hand­tekin fyrir að setja fyrir framan spor­vagn ísra­elska kepp­and­ans. „Og hún var hand­tek­inn en það var það eina,“ segir konan í sam­tali við Mannlíf.

Segir hún að mót­mæl­endur hafi talið í hund­ruðum á sunnu­dag­inn og að búist sé við fjöl­mennum mót­mælum á morgun, þegar úrslita­kvöld Eurovision fer fram.

„Svo vorum við að mót­mæla í gær fyrir utan höll­ina en við vorum bara örfá. Það var eig­in­lega ekki planið að mót­mæla, við ætl­uðum að gefa áhorf­endum á leið í höll­ina miða, svona til þess að upp­lýsa þá um ástandið. Að þau væru að fara að horfa á Ísrael stíga á svið, sem bera ábyrgð á þessum stríðs­glæpum. En við sem sagt máttum sem sagt ekki neitt. Við máttum varla vera með fán­ann.“

Mótmæli við Jak­obs­höll­ina.Miðanum sem dreift var áður en lög­reglan bann­aði það.

Konan seg­ist hafa séð mynd­skeið í fjöl­miðlum í Basel og á sam­fé­lags­miðlum af mót­mæl­unum á sunnu­dag, þar sem búið var að taka Palest­ínu­fán­ana út með hjálp photos­hop. „Þannig að stuðn­ing­ur­inn er mik­ill en þögg­unin er meiri.“

Lög­reglan í Basel.Lög­reglan pass­aði upp á að áhorf­endur á Eurovision yrðu fyrir sem minnstu ónoti.

Aðspurð segir konan stuðn­ings­menn Ísraels vera þó nokkra í Basel um þessar mundir og að í ein­hverjum til­fellum hafi hennar hópur orðið fyrir hrópum og ógn­andi hegðun frá þeim. „Mér finnst þau eiga alveg líka eiga rétt á mót­mælum,“ segir konan bætir við að í gær hafi þeir verið fleiri en hennar hópur. „Samt var engin lög­reglan í kringum þau, þar sem Ísrael er að keppa í Eurovision.“ Segir hún að hingað til hafi hún ekki orðið fyrir neinu áreiti frá stuðn­ings­mönnum Ísrael á mót­mælum en að nú séu þeir nokkuð margir vegna Eurovision. „Þau voru að öskra á okkur og segja að við ættum að skamm­ast okkar og svona. Sem var auð­vitað svo­lítið óþægi­legt af því að þau voru frekar ógn­andi. Lög­reglan var ekk­ert að stoppa þau í að áreita okkur. Þau voru mjög ógn­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi