Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Er svona fyrir okkur komið?“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, bregst við fréttum af varð­turnum gegn vasa­þjófn­aði með ákall um harð­ari landamæra­gæslu. En hvað myndi það þýða?

„Er svona fyrir okkur komið?“
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Formaður Mið­flokks­ins vill auka lög­gæslu, en bregst við fréttum af varð­turni með ákalli um harð­ari landamæra­gæslu. Mynd: Golli

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, telur að upp­setn­ing lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á varð­turnum í mið­borg Reykja­víkur, sé stað­fest­ing á stefnu flokks hans varð­andi ferða­frelsi.

Eins og Mannlíf greindi frá fyrst frétta­miðla í gær­morgun hafa varð­turnar verið settir upp við Hall­gríms­kirkju og neð­ar­lega á Skóla­vörðu­stíg. Er það gert í kjöl­far umkvart­ana um vasa­þjófnað á helstu ferða­manna­stöðum.

Sig­mundur nýtir tæki­færið til að vekja máls á að snúa mætti við glæpa­mönnum við landa­mærin. „Er svona fyrir okkur komið?“ spyr hann í færslu á Facebook. „Í stað þess að taka á rót vand­ans er stöðugt leitað að nýjum við­brögðum. Í stað þess að ná stjórn á landa­mær­unum eru reistir eft­ir­litsturnar eins og úr vís­inda­skáld­sögu.“

Varðturn á Skóla­vörðu­stígLögregla hefur samið við einka­fyr­ir­tækið Vörn um upp­setn­ingu varð­turna á áber­andi stöðum í mið­borg­inni.

Vasaþjófar færi sig um set

Hann býst við að vasa­þjófarnir færi sig um set. „Hið nýja vökula auga stóra­bróður er kynnt sem tíma­bundið úrræði, kunn­ug­legt. Það á að fæla vasa­þjófa frá Hall­gríms­kirkju og Skóla­vörðu­stíg. Hvað ger­ist svo ef það virkar? Gefast þjófarnir bara upp og halda heim með fyrstu flug­vél? Eða færa þeir sig ein­fald­lega á fleiri staði?“

Stefna Mið­flokks­ins er að efla lög­gæslu, sam­hliða því að herða landamæra­vörslu. Í stefnu flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar sagði að „efla þyrfti landamæra­eft­ir­lit“ og „stór­efla lög­regl­una í land­inu og bregð­ast við bráða­vanda með auknu fjár­magni til að takast á við þessa ógn og vegna fjöl­margra nýrra áskor­ana.“

Ekki liggur ljóst fyrir hvaða afleið­ingar harð­ara landamæra­eft­ir­lit hefði fyrir almenna Íslend­inga eða hvernig það yrði fram­kvæmt, eftir vilja Sig­mundar og Mið­flokks­ins.

Vísar til þess að Úlfar hafi verið „rekinn“

Sig­mundur Davíð tekur undir með Úlfari Lúð­víks­syni, frá­far­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, sem haft hafði uppi stór orð á föstu­dag um landamæra­gæslu og ábyrgð til­tek­inna aðila eftir að ákveðið var að aug­lýsa stöðu lög­reglu­stjóra.

„Ég er ekki að gagn­rýna lög­regl­una fyrir þetta, hún er sett í það hlut­verk að bregð­ast við án þess að mega gera fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­anir. Ef menn ein­beita sér að því að snúa glæpa­mönnum við á landa­mær­unum eiga þeir á hættu að verða reknir,“ segir Sig­mundur.

Úlfar hefur varað við ferða­frelsi Schengen svæð­is­ins, eins og Sig­mundur og Mið­flokk­ur­inn. Hann hefur lýst því yfir Schengen-sam­starfið gangi gegn örygg­is­hags­munum Íslands og vill að ráðu­neyt­is­stjór­inn í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sem og rík­is­lög­reglu­stjóri, „taki pok­ann sinn“ fyrir að hleypa til lands­ins ein­stak­lingum sem séu „óæski­legir í íslenskt sam­fé­lag“. Skil­grein­ing á því krefst hins vegar eft­ir­lits og flokk­unar á fólki.

Vilja endurskoða ferðafrelsi

Ísland er aðili að Schengen-sam­komu­lag­inu um vega­bréfa­laus ferða­lög milli aðild­ar­landa, sem eru á Evrópska efna­hags­svæð­inu, fyrir utan Írland og Kýpur. Það tryggir ein­fald­ari ferða­lög milli landa. Þann 31. mars í fyrra bætt­ust Rúmenía og Búlgara við Schengen-svæðið.

Schengen-sam­starfið hefur frá upp­hafi snúið að því að deila einnig upp­lýs­ingum milli aðild­ar­landa um brota­feril og veru á átaka­svæðum, svo eitt­hvað sé nefnt.

Í skýrslu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um kosti og galla Schengen-sam­starfs­ins frá því í júní í fyrra var vísað til þess að einn helsti kost­ur­inn væri „frjáls för fólks“.

„Afnám landamæra­eft­ir­lits leiðir óhjá­kvæmi­lega til auk­inna og greið­ari ferða­laga fólks innan svæðis auk bættrar ferða­upp­lif­unar, einkum með því að ferða­fólk þarf ekki að sæta bið á landamæra­stöð við kom­una til við­kom­andi ríkis. Frjáls för innan svæðis án landamæra­eft­ir­lits er því til þess fallin að efla ferða­þjón­ustu og önnur við­skipti auk þess að stuðla að menn­ing­ar­legum fjöl­breyti­leika,“ segir í skýrsl­unni.

Þá er vísað til hag­ræð­ingar á landa­mærum sem minnkar kostnað.

Lögreglusamvinna Schengen sé kostur

Að sama skapi er einn helsti kost­ur­inn, sam­kvæmt skýrsl­unni, „alþjóð­leg lög­reglu­sam­vinna“.

„Aðild­ar­ríki Schengen við­hafa umfangs­mikla lög­reglu­sam­vinnu, einkum með rekstri og notkun Schengen-upp­lýs­inga­kerf­is­ins, SIS (e. Schengen information system). SIS er sam­ræmt raf­rænt upp­lýs­inga­kerfi sem lög­gæslu­yf­ir­völd allra Schengen-ríkj­anna nota en í kerfið eru skráðar ákveðnar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga og vörur. Ein­stak­lingum sem koma á ytri landa­mæri Schengen-svæð­is­ins er flett upp í kerf­inu við per­sónu­bundið landamæra­eft­ir­lit og kerfið er notað til að miðla og skrá upp­lýs­ingar við eft­ir­lit á innri landa­mærum,“ segir í skýrsl­unni. „Alþjóð­leg lög­reglu­sam­vinna á grund­velli Schengen-samn­ings­ins er gríð­ar­lega mik­il­væg til að varð­veita öryggi á svæð­inu í heild en án hennar þyrftu ein­stök ríki að reiði sig á milli­ríkja­samn­inga við ein­stök ríki um sam­vinnu á sviði lög­gæslu án nokk­urra mið­lægra landamæra­kerfa eða gagna­grunna á borð við SIS.“

Mat skýrslu­höf­unda dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er hins vegar að Ísland hefði átt í veru­legum erf­ið­leikum með landamæra­vörslu án aðildar að Schengen. Þannig sé „ljóst að íslensk stjórn­völd hefðu staðið frammi fyrir gríð­ar­stórum áskor­unum við fram­kvæmd landamæra­eft­ir­lits á innri landa­mærum ef Ísland væri ekki aðili að Schengen-sam­starf­inu.“

Gallar við Schengen

Afnám per­sónu­bund­ins landamæra­eft­ir­lits hefur þó í för með sér „aukna örygg­is­á­hættu fyrir ein­stök aðild­ar­ríki sem og svæðið í heild sinni, m.a. vegna óreglu­legra fólks­flutn­inga og alþjóð­legrar skipu­lagðrar brota­starf­semi,“ sam­kvæmt skýrsl­unni.

Schengen-sam­starfið felur í sér ein­hverja tak­mörkun á sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti aðild­ar­ríkj­anna. Hins vegar kemur það ekki í veg fyrir að tekið sé upp eft­ir­lit við innri landa­mærin, það er að segja landa­mæri milli Schengen-ríkj­anna sjálfra. Mörg lönd hafa þannig tekið upp aukið eft­ir­lit á sínum landa­mærum síð­ustu mán­uði, til að mynda Þýska­land, Noregur, Aust­ur­ríki, Ítalía, Slóvenía, Holland og Frakk­land.

Þannig hafi Danmörk og Svíþjóð „ talið sig knúin til að taka upp per­sónu­bundið eft­ir­lit á innri landa­mærum sínum um langt skeið til að bregð­ast við öryggisógnum“.

Þá er til­tekið að fólks­flutn­ingar geti aukið álag á félags­þjón­ustu aðild­ar­ríkja og kallað á skýra stefnu­mótun um inn­viði og aðgengi að opin­berri þjón­ustu.

Hert eftirlit framundan

Framundan er að tekið verði upp komu- og brott­farar­eft­ir­lit á ytri landa­mærum Schengen, og þar með Íslands.

Á næst­unni er áformað að svo­kallað „biometric pas­sport check“ verði tekið upp við ytri landa­mærin í skrefum. Það hefur í för með sér að fingraför og and­lits­myndir verða teknar við komu og brott­för af Schengen-svæð­inu. Beðið er sam­þykkis Evr­ópu­ráðs­ins og Evr­ópu­þings­ins.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur síðan lagt fram frum­varp á Alþingi, sem vegur upp gagn­rýni Úlfars Lúð­víks­sonar að nokkru leyti. Frum­varpið varðar að skylda öll flug­fé­lög til að leggja fram far­þega­lista við komu á Kefla­vík­ur­flug­völl, sem tíu flug­fé­lög sinna ekki. Þorbjörg seg­ist í sam­tali við Rík­is­út­varpið í dag undr­ast að Mið­flokk­ur­inn styðji ekki frum­varpið og skrifi ekki undir nefnd­ar­á­lit um það.

„Það kemst ekki áfram á dag­skrá þings­ins vegna þess mál­þófs sem er stundað í þing­inu, ekki síst af hálfu Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum