Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Varðturn settur upp við Hallgrímskirkju

„Skrímsli,“ segir íbúi.

Varðturn settur upp við Hallgrímskirkju
Hall­gríms­kirkja og Skóla­vörðu­stígur Varað hefur verið við vasa­þjófum á svæð­inu. Mynd: Shutterstock

Íslend­ingar gætu þurft að venj­ast nýrri ásýnd umhverf­is­ins, þar sem varð­turnar á vegum einka­fyr­ir­tækis í örygg­is­málum spretta upp.

Varð­turn­arnir eru til umræðu í Facebook-hópi íbúa í mið­borg Reykja­víkur. Þar bendir íbúi á einn slíkan turn við Hall­gríms­kirkju og spyr „hvaða skrímsli þetta er?“

Þá kemur fram að annar slíkur turn hefur verið reistur á Skóla­vörðu­stíg.

Turn­arnir eru á vegum örygg­is­fyr­ir­tæk­is­ins Vörn. Fleiri slíka turna má sjá víða, en fyrst og fremst á bíla­plönum og fram­kvæmda­svæðum. Þannig hafa varð­turnar verið settir upp hjá ýmsum bíla­leigum, Isavia og Samherja, svo eitt­hvað sé nefnt. Í kynn­ingu frá Vörn örygg­is­kerfi kemur fram að turn­arnir séu lausn fyrir slíkar aðstæður.

„Þarfnast eignin þín eft­ir­lits?“ segir þar. „Varð­turn­arnir okkar eru nær full­komin lausn fyrir vinnu­svæðið, við­burð­inn eða smá­sölu­stæðið þitt! Fyr­ir­ferða lítið, fær­an­legt eft­ir­lits­mastur sem teygir sig nær himni en jörðu fyrir víð­áttu­mikið útsýni til eft­ir­lits.“

Varað við vasaþjófum

Und­an­farið hafa ferða­menn í Hall­gríms­kirkju verið varaðir sér­stak­lega við vasa­þjófum í kirkj­unni. Á skilti við inn­gang kirkj­unnar segir: „Varist vasa­þjófa.“

Þá sagði Grétar Ein­ars­son í sam­tali við Morg­un­blaðið að Hall­gríms­kirkjan hefði ákveðið sjálf að setja upp skiltið. „Þetta er leiðin­legt og við vilj­um ekki hafa svona skilti uppi við. En við vilj­um vara fólk við frek­ar en að gera ekki neitt,“ sagði kirkju­hald­ari.

Í Hall­gríms­kirkju eru örygg­is­mynda­vélar. Ekki hefur komið fram að varð­turn­inn utan við hana sé á vegum kirkj­unnar.

Misjafnar skoðanir íbúa

Íbúar skipt­ast í tvo flokka í við­horfi sínu gagn­vart varð­turn­unum í umræðu­hópnum á Facebook. „Þetta eykur öryggi í Borginni nema fyrir þá sem hafa eitt­hvað að fela,“ segir einn þeirra.

„Það er líka komið svona skrímsli á Skóla­vörðu­stíg“
Íbúi í mið­borg­inni

„Það hefur ekk­ert verið rætt um þetta! Mér stendur hrein­lega ekki á sama!“ segir önnur og birtir mynd af varð­turni á Skóla­vörðu­stíg.

„Það er líka komið svona skrímsli á Skóla­vörðu­stíg,“ ítrekar annar íbúi.

Varðturn á Skóla­vörðu­stígNýr varð­turn við Skóla­vörðu­stíg 8 sést hér á mynd frá íbúa.

Borgin gerir samkomulag við lögreglu

Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurn á sam­skipta­stjóra Reykja­vík­ur­borgar vegna varð­turn­anna og hvort stefnt sé að enn fleiri varð­turnum í borg­ar­land­inu.

Reykja­vík­ur­borg ber ábyrgð á því að kaupa eft­ir­lits­mynda­vélar til upp­setn­ingar í mið­borg­inni. Samkvæmt sam­komu­lagi, sem Dagur B. Egg­erts­son, þáver­andi borg­ar­stjóri, lagði fyrir borg­ar­ráð í mars 2023, er hins vegar hlut­verk lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að „ákveða stað­setn­ingu mynda­vél­anna og gerð á hverjum stað í sam­ráði við Reykja­vík­ur­borg og Neyð­ar­lín­una.“

Þá segir í sam­komu­lag­inu að „Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu útvegar og ber kostnað af bún­aði vegna mót­töku á merkjum úr örygg­is­mynda­vélum, hefur ein aðgang að gögn­unum, ann­ast vöktun á myndefn­inu og tekur ákvörðun um aðgang ann­arra neyð­ar­að­ila að myndefni að upp­tökum og í raun­tíma.“ Sam­komu­lagið kom í stað fyrra sam­komu­lags, en í þetta sinn var Rík­is­lög­reglu­stjóri aðili að sam­komu­lag­inu.

Í frum­kvæð­is­at­hugun end­ur­skoð­un­ar­nefndar Reykja­vík­ur­borgar í lok októ­ber 2023 kom fram að borgin þyrfti að „móta sér mið­læga stefnu um fram­kvæmd raf­rænnar vökt­unar“ og setja fram leið­bein­ingar, ekki síst vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða. Þá kom fram að 830 mynda­vélar væru virkar á 82 stöðum í borg­ar­land­inu. Árið 2001 voru átta eft­ir­lits­mynda­vélar í mið­bænum, en 2018 voru þær 36.

Varðturn á bíla­stæðiAlgeng­asti upp­setn­ing­ar­staður varð­turn­anna eru bíla­stæði eða fram­kvæmda­svæði. Hér sést varð­turn á bíla­stæði Toyota í Kauptúni í Garðabæ.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ