Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallgrímur fann óvænta ánægju í dánarbúi móður sinnar

Gleymdar en geymdar send­ingar fund­ust í sorg­inni.

Hallgrímur fann óvænta ánægju í dánarbúi móður sinnar
Hall­grímur Helgason Þurfti að kveðja móður sína, en segir að til­gangur dauð­ans sé „áminn­ing um gjafir lífs­ins, hvatn­ing til að fara vel með þær og gefa áfram“. Mynd: Golli

Rit­höf­und­ur­inn og mynd­lista­mað­ur­inn Hall­grímur Helgason missti móður sína, Margréti Schram leik­skóla­kenn­ara, 13. maí síð­ast­lið­inn.

Þegar hann fór í gegnum eigur hennar fann lista­mað­ur­inn hluti sem hann vissi ekki að væru til staðar. Um var að ræða teikn­ingar og bréf sem hann sendi mömmu sinni sem korn­ungur drengur, sex ára gam­all, þegar móðir hans eign­að­ist tví­burana Gunnar Helgason, leik­ara og barna­bóka­höf­und, og Ásmund Helgason bóka­út­gef­anda.

„Í dán­ar­búi fannst fund­ust gleymdar send­ingar. Þegar mamma fór á spít­al­ann að eiga tví­burana, bræður mína, Gunnar Helgason og Ásmundur Helgason, í nóv­em­ber 1965, sendi sex ára bróðir þeirra móður sinni mynd­skreytt bréf á hverjum degi og eft­ir­fylgni­bréf sem spurði hvort hin bréfin hefðu ekki verið góð?!“ segir Hall­grímur og bætir við: „Snemma beygð­ist læk-krók­ur­inn.“

Í bréf­inu til mömmu færir Hall­grímur henni kveðjur. „Sæl elsku mamma mín. Það verður svo gaman þegar þú kemur heim með litlu strák­ana ... Vertu blessuð Mamma mín, þinn Hall­grímur.“

Allar mynd­irnar má sjá hér á síðu Hall­gríms.

Hall­grímur kvaddi mömmu sína 14. maí síð­ast­lið­inn í hjart­næmri færslu.

„Mamma dó í gær, 92 ára. Fór mjúk­lega inn í mökk­inn með bros á vör. Hún var auð­vitað ein­stök kona, eins og allir hafa sagt manni í gegnum tíð­ina og starfs­fólkið á Hrafn­istu líka. “Hún alltaf dansa við mig þegar ég hjálpa hana framúr á morgn­ana!” Öll komu þau inn til að kveðja hana og eiga stund.

Margrét Schram var góð í gegn, fal­leg, létt og kát og alltaf til í leik. Börn voru hennar yndi, barna­bók­menntir og barna­menn­ing. Þar var hún braut­ryðj­andi. Fóst­ur­skól­inn, leik­skólar og félags­starf… Inner Wheel, Ibby, Delta Kappa Gamma… Sjálf hafði hún alist upp á berkla­tíð; eftir að amma Jonna kom heim af Krist­nes­hæli mátti hún aldrei faðma börnin sín, mömmu og bróður hennar, vegna smit­hættu.

Það stærsta sem mamma gaf okkur var að taka öll börn fjöl­skyld­unnar í sinn faðm, líka þau sem fylgdu sam­böndum og hjóna­böndum okkar systk­ina. Þau urðu hennar eigin barna­börn frá fyrsta degi.

„Lífið kenndi henni þó að aðal­at­riðin stóðu ann­ar­staðar: Í leik og list, kjassi og kæti, börnum og söng.“
Hall­grímur Helgason

Mamma var víð­sýn, opin og fylgd­ist vel með. Sá í gegnum snobb og til­gerð og var öll á lífs­ins bandi. Undir niðri glitti þó stundum í Schramleikann, vissar borg­ara­legar kröfur um að hlut­irnir væru gerðir af reisn og mynd­ar­skap. Hún var jú sím­stjóra­dóttir frá Akureyri, upp­alin í eina heldra­fólksveru­leik­anum sem Ísland hefur átt, með sínum lomberkvöldum, tweedfötum og dag­legum “drinks at five”. Lífið kenndi henni þó að aðal­at­riðin stóðu ann­ar­staðar: Í leik og list, kjassi og kæti, börnum og söng.

Undir það síð­asta lædd­ist aftan að henni skuggi Alzheimer kon­ungs, en létta lundin slapp ósködduð og síð­asta lagið lifði enn í píanó­f­ingr­unum, “Somewhere Over the Rainbow”, sem hún lék á hvert það píanó sem á vegi hennar varð.

Og nú er hún flogin yfir regn­bog­ann til fundar við ást­ina sína einu, Aust­firð­ing­inn pabba, afa Helga. For­eldr­arnir eru þá báðir farnir og maður stendur uppi mun­að­ar­laus, 66 ára gam­all, furðu­leg til­finn­ing. Það er bara eins og bernsk­unni sé nú fyrst lokið.

Og lífið blasir þá við… alla­vega ein­hver ný teg­und af lífi.

Mikil og stór er þakk­ar­skuldin sem maður stendur í gagn­vart móður sinni. Og hvað þá konu sem þess­ari. Við kvöddum hana auð­vitað þús­und sinnum og reyndum eins og við gátum að gefa henni til baka eitt­hvert brot af því sem hún hafði gefið okkur en samt tókst það auð­vitað aldrei. Þá er að snúa sér að öðrum, og reyna gefa þeim örlítið af glás­inni sem mamma gaf. Það er víst til­gangur dauð­ans: Áminning um gjafir lífs­ins, hvatn­ing til að fara vel með þær og gefa áfram.

Vertu sæl móðir. Ég hef aldrei verið neitt án þín og verð ekki heldur nú. Hún lengi lifi, húrra!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una