Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björgólfur Thor svarar loksins fyrir njósnamálið

„Slík vinnu­brögð for­dæmi ég og hefði ekki sam­þykkt“.

Björgólfur Thor svarar loksins fyrir njósnamálið

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, rík­asti Íslend­ing­ur­inn, hefur nú loks sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjall­ana um njósnir í meintu umboði hans.

Sagt var frá njósn­unum í þætti Kveiks á RÚV fyrir um mán­uði síðan. Þar voru sýndar upp­tökur sem Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, og félagi hans, unnu með greiðslum frá Björgólfi Thor, og fólu í sér leyni­upp­tökur af fjölda fólks sem tók þátt í hóp­mál­sókn gegn Björgólfi vegna starfs­hátta hans í Lands­bank­anum.

Björgólfur við­ur­kennir að hafa ráðið félagið PPP, í eigu Jóns Óttars og Guð­mundar Hauks Gunn­ars­sonar, til verks. „Árið 2012 buðu full­trúar PPP (Pars Per Pars) sig fram að fyrra bragði til að afla upp­lýs­inga um aðila sem þá voru að und­ir­búa hóp­mál­sókn gegn mér. PPP hafði þá starfað fyrir opin­bera aðila og lög­manns­stofur og starf­semin var kynnt sem lög­leg upp­lýs­inga­öflun,“ segir hann í yfir­lýs­ingu.

Þó hafi hann ekki kvittað upp á rann­sókn­ar­að­ferð­irnar.

„Það kom mér í opna skjöldu að sjá í Kveiks­þætt­inum hversu langt starfs­menn PPP gengu í tengslum við þessar rann­sóknir. Upptökur voru aldrei afhentar mér né starfs­fólki mínu og voru því aldrei nýttar af okkur á nokkurn hátt. Það kom ekk­ert út úr þessu verk­efni og engin frek­ari verk­kaup urðu af okkar hálfu.“

Hann neitar því að hafa vitað af upp­tökum. „Sá hluti máls­ins sem teng­ist mér og sneri að full­yrð­ingum um meintar njósnir á mínum vegum eru ein­fald­lega rangar. Upptökur sem sýndar voru í þætt­inum sá ég fyrst þann 30. apríl — á sama tíma og aðrir lands­menn.“

Segist fordæma vinnubrögðin

Auk þess að afneita aðild sinni að ákvörðun og með­vit­und um rann­sókn­ar­að­ferð­ina seg­ist Björgólfur for­dæma hana.

„Mér þykir miður að per­sónu­upp­lýs­ingum fólks hafi verið safnað og setið hafi verið um heim­ili þess — slík vinnu­brögð for­dæmi ég og hefði aldrei sam­þykkt ef mér hefði verið þau ljós,“ segir Björgólfur.

Loks seg­ist Björgólfur hafa greitt 8 millj­ónir króna. „Nokkrar stað­reynda­villur komu fram í þætti Kveiks,“ full­yrðir Björgólfur. „Til að mynda voru, sam­kvæmt bók­halds­gögnum, greiddar 8 millj­ónir króna fyrir verk­efnið, en ekki 33 millj­ónir eins og haldið hefur verið fram.“ Ekki kemur fram í yfir­lýs­ingu Björg­ólfs til bók­halds hvaða félags er vísað, en greiðslan barst frá BEETEEBEE limited á Toróla, eftir að full­trúi Björg­ólfs fór fram á að greiða frá erlendu félagi, eins og heyrð­ist á upp­töku.

Björgólfur útskýrir í yfir­lýs­ing­unni sein svör sín. „Ég kaus að svara ekki strax ásök­unum sem á mig voru bornar í sjón­varps­þætt­inum Kveik sem birt­ist á Rúv undir lok síð­asta mán­aðar. Ástæðan er að langur tími er lið­inn frá umræddum atburðum og sann­reyna þurfti upp­lýs­ingar sem komu fram ... Í grunn­inn snýr málið að meintum gagna­leka á við­kvæmum upp­lýs­ingum í fórum stjórn­valda. Það voru aðrir en ég sem höndl­uðu með þau gögn og þurfa að svara fyrir það.“

Verk PPP fyrir Björgólf var unnið þrjá mán­uði frá sept­em­ber til des­em­ber 2012.

Björgólfur seg­ist fagna rann­sókn, það er að segja á lek­anum. „Ég fagna því að dóms­mála­ráð­herra hafi beint sjónum sínum að rann­sókn á því hvernig trún­að­ar­upp­lýs­ingum í hirslum sér­staks sak­sókn­ara var lekið og hverjir keyptu þau gögn. Ég hef ekk­ert með það leka­mál að gera.“

Fulltrúi Björgólfs ræddi rannsóknina

Eftir stendur að Birgir Már Ragn­ars­son, lög­fræð­ingur og sam­starfs­maður Björg­ólfs Thors, sat fundi með rann­sókn­ar­lög­reglu­mönn­unum fyrr­ver­andi um rann­sóknir þeirra. Hann var tengiliður Björg­ólfs Thors við PPP. Á upp­tökum sem Kveikur birti furða Jón Óttar og Guð­mundur Haukur sig á því að Birgir Már hefði ekki gert athuga­semdir við rann­sókn þeirra og eft­ir­lit með meintum and­stæð­ingum Björg­ólfs. Birgir bar fyrir sig minnis­leysi þegar Kveikur hafði sam­band við hann fyrir birt­ingu umfjöll­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina