Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Njósnari Björgólfs fékk 135 milljónir frá Samherja

Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi, Jón Óttar Ólafsson, átti í óvið­eig­andi sam­skiptum við frétta­mann Kveiks.

Njósnari Björgólfs fékk 135 milljónir frá Samherja
Jón Óttar Ólafsson Kemur hér fram í mynd­bandi Samherja um Seðla­banka­málið. Mynd: Samherji

Jón Óttar Ólafsson, afbrota­fræð­ingur og fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, stund­aði njósnir fyrir rík­asta Íslend­ing­inn, Björgólf Thor Björg­ólfs­son, vegna hóp­mál­sóknar gegn honum árið 2012, sam­kvæmt umfjöllun Kveiks á RÚV í gær­kvöldi sem byggir á gagna­leka.

Jón Óttar hefur ekki aðeins starfað fyrir Björgólf Thor, heldur greiddi útgerð­ar­fé­lagið Samherji honum 135 millj­ónir króna fyrir vinnu sem tengd­ist rann­sókn Seðla­banka Íslands. Jón Óttar er doktor í afbrota­fræði frá Camebridge-háskóla í Bret­landi. Þá gaf hann út glæpa­sög­una Hlustað skömmu eftir að hann hafði tekið að sér njósnir.

Í umfjöllun Kveiks í gær­kvöldi kom fram að árið 2012 hafi Björgólfur Thor Björg­ólfs­son auð­maður, ráðið hann og fyr­ir­tæki hans PPP til þess að njósna um hlut­hafa og lög­menn, meðal ann­ars Vilhjálm Bjarna­son, fjár­festi og síðar þing­mann.

Um svipað leyti átti hann í óvenju­legum sam­skiptum við frétta­mann Kveiks, sem fjall­aði síðan um hann í gær­kvöldi.

Fékk 135 milljónir króna frá Samherja

Eftir störf sín fyrir Björgólf Thor fór Jón Óttar að vinna fyrir útgerð­ar­fé­lagið Samherja í máli sem varð­aði rann­sókn Seðla­banka Íslands á gjald­eyr­is­við­skiptum útgerð­ar­innar. Fram kom fyrir fjórum árum að Samherji greiddi Jóni Óttari him­in­háar greiðslur fyrir störf hans frá árinu 2013. Ráð­gjafa­stofa hans rukk­aði útgerð­ar­fé­lagið um 135 millj­ónir króna fyrir vinnu sína. Þetta hafi komið í ljós þegar Jón Óttar bar vitni í skaða­bóta­máli Samherja á hendur Seðla­bank­anum.

Jón Óttar greindi frá því að hann hefði verið ráð­inn til Samherja þegar fyr­ir­tækið leit­aði að sér­fræð­ingi með reynslu í gagna­grein­ingu og sam­vinnu við lög­menn. Fljót­lega hafi hann áttað sig á því að ásak­anir Seðla­banka Íslands væru óljósar og óskýrar. Í tengslum við starfið þurfti hann að ferð­ast víða um heim, safna gögnum, nálg­ast afrit af tölvu­póstum frá erlendum dótt­ur­fé­lögum Samherja, taka við­töl og afla upp­lýs­inga um verk­lag fyr­ir­tækj­anna. Hann samdi jafn­framt grein­ar­gerðir fyrir lög­menn hér­lendis og útskýrði fyrir þeim hvernig rekstri erlendu félag­anna hefði í raun verið háttað.

Sem dæmi nefndi hann starf­semi Samherja á Las Palmas á Kanarí­eyjum. „Það kom í ljós að tölvu­póst­arnir sem Seðla­bank­inn byggði á og höfðu skilað sér til Íslands voru bara eitt pró­mill af þeim póstum sem voru til þarna,“ sagði Jón Óttar. „Það var mjög mik­ill súbstans í þessum rekstri þarna úti.“

Að auki voru margir tugir reikn­inga lagðir fyrir Jón Óttar, sam­kvæmt frétt­inni, sem hann hafði gefið út á nafni Samherja. Þó það hafi tekið nokkurn tíma að fara í gegnum öll gögnin, stað­festi hann ætti að lokum alla reikn­ing­ana.

Í fyrr­greindum rétt­ar­höldum spurði Jóhannes Karl Sveins­son, lög­maður Seðla­banka Íslands, Jón Óttar hvort hlut­verk hans hefði falist í að fram­kvæma heild­stæða úttekt á starf­semi Samherja, dótt­ur­fé­lögum þess og verk­ferlum. Jón Óttar svar­aði neit­andi og sagði að verk­efnið hefði fremur snú­ist um að setja sig vand­lega inn í málið til að skilja ásak­anir Seðla­bank­ans.

„Það er miklu erf­ið­ara, þegar útreikn­ingar eru rangir, að verj­ast þeim,“ sagði hann og bætti við að málið hefði reynst starfs­fólki Samherja krefj­andi. Það hefði átt erfitt með að halda ein­beit­ingu og setja sig inn í ásak­an­irnar, hvað þá að verj­ast þeim. Þess vegna hafi þurft að fá aðstoð utan­að­kom­andi sér­fræð­ings.

Með eig­anda Samherja fyrir dómiJón Óttar situr hér við hlið Þor­steins Más Bald­vins­sonar, þáver­andi aðal­eig­anda og núver­andi for­stjóra Samherja, við vitna­leiðslur fyrir dómi.

Í Namibíu fyrir hönd Samherja

Jón Óttar bland­að­ist sömu­leiðis inn í svo­kallað mútu­mál Samherja í Namibíu. Í tölvu­pósti hans til stjórn­enda Samherja árið 2016 sagð­ist hann „engar skyldur“ hafa til að „hjálpa Samherja að „fela“ þetta“. Verkefni hans í Namibíu virð­ist hafa verið að afla upp­lýs­inga um og frá Jóhann­esi Stef­áns­syni, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra rekst­ur­ins í Namibíu og svo upp­ljóstr­ara vegna mútu­greiðslna útgerð­ar­innar til emb­ættis- og stjórn­mála­fólks.

Þá átti Jón Óttar í sam­skiptum við einn af þiggj­endum greiðslna frá Samherja um hvort hægt væri að rekja þær.

Síðar, árið 2021, átti eftir að koma í ljós að Jón Óttar var við­loð­andi svo­kall­aða „skæru­leiða­deild“ Samherja.

Fréttamaður Kveiks greindi frá ógnandi hegðun

Árið 2022 sagði Helgi Seljan, sem var einn þeirra sem vann Kveik­þátt gær­dags­ins, frá ógn­andi hegðun Jóns Óttars gagn­vart sér í við­tali við Mannlíf en hann sagð­ist hafa tekið eftir því að lög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi fór að birt­ast á upp­á­halds kaffi­húsi Helga. Sagðist Jón Óttar vera að skrifa kvik­mynda­hand­rit um hina raun­veru­legu glæpa­menn Íslands, Kaup­þings­menn, og að hann væri löngu hættur að vinna fyrir Samherja.

Helgi sagði að Jón Óttar hefði ítrekað gefið sig á tal við hann. „Síðan fór ég að heyra utan frá mér að hann væri lík­leg­ast að vinna fyrir þá. Í milli­tíð­inni hafði Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari þurft að leita til lög­reglu vegna þess að Jón Óttar hafði elt hann og opnað bíldyrnar hjá honum. Og það fyndna við þetta er, að í öllum þessum látum – í öllum þessum heim­sóknum Jóns á Kaffi­fé­lagið – þá kom hann ein­hvern tím­ann og sýndi mér mynd­band sem hann tók sjálfur af þessu atriði eftir að Jóhannes hafði sagt mér frá þessu. Hann reyndi að pres­entera þetta þannig fyrir mér að þarna væri Jóhannes að elta hann. Þetta var hálfsúr­r­eal­ískt.“ Bætti hann svo við að smá saman hafi þetta ágerst að Jón Óttar farið að vera ógn­andi og meðal ann­ars farið að senda Helga Facebook-skila­boð. „Þetta voru skila­boð um að nú þyrftum við að passa okkur og að næstu dagar yrðu ekki góðir hjá okkur.“

Baðst afsökunar

Kjarninn birti árið 2020 afsök­un­ar­beiðni frá Jóni Óttari gagn­vart Helga Seljan, þar sem hann sagð­ist sjá mjög eftir áreit­inu. Hér má sjá yfir­lýs­ing­una:

„Vefritið Kjarn­inn fjallar í dag um SMS-skila­boð sem ég sendi Helga Selj­an, frétta­manni hjá Rík­is­út­varp­inu. Það var rangt af mér að senda umrædd skila­boð, þau end­ur­spegla dóm­greind­ar­brest af minni hálfu og ég sé mikið eftir því að hafa sent þau. Ég vil nota þetta tæki­færi til þess að biðja Helga Seljan afsök­unar á þessum send­ing­um.

Án þess að ég vilji reyna að rétt­læta skila­boðin og efni þeirra finnst mér mik­il­vægt að fram komi að ég hef und­an­farið verið undir miklu álagi. Einkum vegna nei­kvæðrar umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mig per­sónu­lega. Nær öll skila­boðin voru send fyrr í þessum mán­uði þegar umrædd fjöl­miðlaum­fjöllun var hvað mest áber­andi með til­heyr­andi óþæg­indum fyrir mig og fjöl­skyldu mína.

Þá finnst mér rétt að und­ir­strika að heim­sóknir mínar á kaffi­húsið Kaffi­fé­lagið við Skóla­vörðu­stíg voru ekki til þess að elta Helga Selj­an, eins og kemur fram í umfjöllun Kjarn­ans, enda hef ég verið við­skipta­vinur kaffi­húss­ins í mörg ár. Hafa heim­sóknir mínar þangað ekk­ert með Helga að gera og er því umfjöllun Kjarn­ans röng hvað þetta snert­ir. Ég get hins vegar ekki stýrt því hvernig Helgi Seljan upp­lifir sam­skipti okkar í gegnum árin.

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hef ég sinnt ráð­gjöf fyrir Sam­herja hf. sem verk­taki. Tekið skal fram að stjórn­endur félags­ins höfðu ekki vit­neskju um skila­boð mín til Helga. Mér finnst miður ef þessi gagn­rýni­verða hátt­semi mín verði á ein­hvern hátt bendluð við félagið og starfs­fólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð.“

Gaf út glæpasöguna Hlustað

Um svipað leyti og Jón Óttar stund­aði njósnir fyrir Björgólf Thor og ýmis störf fyrir Samherja var hann til umræðu vegna útgáfu glæpa­sagna.

Einn þeirra sem veitti skrifum Jóns Óttars jákvæða umsögn var Hall­grímur Helgason rit­höf­undur. Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur og sam­fé­lags­rýnir benti á það í gær­kvöldi og rifj­aði sömu­leiðis upp að Jón Óttar hafi meðal ann­ars njósnað um Hallgrím sjálfan er hann til­heyrði hinni svoköll­uðu Skæru­liða­deild Samherja.

„Litla, „krútt­lega“ Ísland. Árið 2013 skrif­aði Hall­grímur Helgason eft­ir­far­andi jákvæðu umsögn um krimma eftir Jón Óttar Ólafsson, þar sem fjallað er um njósnir, ekki síst hlerun. Í kvöld fletti Kveikur svo ofan af umfangs­miklum ólög­legum hler­unum fyrir Björgólf Thor, sem umræddur Jón Óttar stóð fyrir, árið 2012. Og, sami Jón Óttar til­heyrði Skæru­liða­deild Samherja, sem meðal ann­ars njósn­aði um Hallgrím, af því hann var Samherja ekki þókn­an­legur,“ skrif­aði Einar í færslu á Facebook. Hann rifjar síðan upp umsögn­ina:

„Jæja, kláraði „Hlustað“, var orðin æsispenn­andi undir lokin. Dáldið und­ar­legt að bók sem ger­ist að mestu í ljótasta húsi Íslands (lög­reglu­stöð­inni við Hlemm) hafi náð að halda manni föngnum í heila viku. En hér er búið „að koma upp hlustun“ á sam­fé­lagið og það er mögnuð til­finn­ing að vera fluga á vegg á lög­manns­stofum og börum borg­ar­innar".“

Jón Óttar árið 2012Lög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi hefur komið víða við
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina