Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi Seljan lýsir ógnandi hegðun Jóns Óttars: „Ég hélt á barninu og það var stigið á milli“

Helgi Seljan lýsir ógnandi hegðun Jóns Óttars: „Ég hélt á barninu og það var stigið á milli“
Helgi Seljan, blaða­maður. Mynd: Róbert Reynisson

Helgi Seljan varð var við að eftir að þáttur Kveiks um Sam­herj­a­málið fór í loftið var setið um hann; ákveð­inn maður fór að mæta á kaffi­hús sem hann mætti reglu­lega á á vissum tíma. Sá var Jón Óttar Ólafsson.

„Í fyrstu hélt ég í ein­feldni minni að hann vildi segja mér eitt­hvað, af því að ég hélt að hann væri ekki lengur að vinna hjá fyr­ir­tæk­inu og reyndar sagði hann mér það sjálfur; hann sagð­ist vera að skrifa kvik­mynda­hand­rit um hina raun­veru­legu glæpa­menn Íslands­sög­unnar sem væru Kaup­þings­menn, sem hann var held ég að vinna ein­hvern tím­ann fyrir; að minnsta kosti höfðu kynni mín af honum verið þau að ég hafði hitt hann á fundi með lög­mönnum Kaup­þings­manna í aðdrag­anda dóms­máls­ins þar sem hann hafði eitt­hvað verið að vinna fyrir þá. En núna voru þetta orðnir hinir einu sönnu glæpa­menn og hann sagð­ist vera að skrifa kvik­mynda­hand­rit um þá og væri löngu hættur hjá Samherja. Síðan hélt þetta áfram og hann fór að koma þarna og þetta varð sífellt skrýtn­ara.

Síðan ágerð­ist þetta og hann fór að verða ógn­andi.

Síðan fór ég að heyra utan frá mér að hann væri lík­leg­ast að vinna fyrir þá. Í milli­tíð­inni hafði Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari þurft að leita til lög­reglu vegna þess að Jón Óttar hafði elt hann og opnað bíldyrnar hjá honum. Og það fyndna við þetta er, að í öllum þessum látum – í öllum þessum heim­sóknum Jóns á Kaffi­fé­lagið – þá kom hann ein­hvern tím­ann og sýndi mér mynd­band sem hann tók sjálfur af þessu atriði eftir að Jóhannes hafði sagt mér frá þessu. Hann reyndi að pres­entera þetta þannig fyrir mér að þarna væri Jóhannes að elta hann. Þetta var hálfsúr­r­eal­ískt. Ég kenndi hálf­part­inn í brjósti um hann vegna þess að ég hélt að þarna væri maður sem hefði lent í ein­hverju áfalli fyrir að hafa flækst inn í þessi mál. Hann gerði það. Og vissi ekki í hvorn fót­inn hann ætti að stíga. Síðan ágerð­ist þetta og hann fór að verða ógn­andi. Einhvern tím­ann kom ég með son minn, en ég var í fæð­ing­ar­or­lofi með hann lít­inn, og þá kom hann þarna inn og heimt­aði frá mér ein­hverja yfir­lýs­ingu um að við hefðum ekk­ert reynt að ná í hann áður en við gáfum út bók­ina,“ segir Helgi og vísar til bók­ar­innar „Ekkert að fela. Á slóð Samherja í Afríku“.

„Ég sagði að hann fengi enga yfir­lýs­ingu frá mér um það, því hann vissi að við hefðum reynt að ná í hann. Þá æsti hann sig upp og þetta varð „hálf­tense“. Ég hélt á barn­inu og það var stigið á milli án þess að til átaka kæmi. Hann virk­aði ekki í miklu jafn­vægi. Svo hélt þetta áfram.

Hann fór að mæta þarna og hvísl­aði að mér að hann vissi hvert upp­ljóstr­ar­inn væri fluttur sem voru upp­lýs­ingar sem eng­inn gat haft,“ segir Helgi og á þar við Jóhannes Stef­áns­son.

„Svo fór ég að fá skila­boð frá honum og þáver­andi eig­in­konu hans, sem hann gekkst reyndar síðan við að hafa sent frá Facebook-síðu hennar; þetta voru skila­boð um að nú þyrftum við að passa okkur og að næstu dagar yrðu ekki góðir hjá okkur. Það var um það leyti sem þessi mynd­banda­röð þeirra var að byrja. Þetta gekk svona yfir mig og Inga Frey, blaða­mann hjá Stund­inni, í ein­hverja daga. Auðvitað, eftir á að hyggja, hefðum við nátt­úr­lega strax átt að leita til lög­regl­unnar út af þessu, en þetta var nýtt og menn vissu ekki hvernig þeir áttu að taka á þessu. Við höfum líka svo sér­stakan „tendens“ á Íslandi til að álíta að svona hlutir séu létt­væg­ari hér. Það er eitt­hvað sem við verðum að læra; við þurfum að hætta því.

Nýjasta helg­ar­við­tal Mannlífs við Helga Seljan má lesa hér. Einnig er hætt að nálg­ast ókeypis ein­tak af blað­inu í versl­unum Bónuss og Hagkaupa.

Viðtalið má síðan horfa á hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi