Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Alger umskipti Árna í Evrópumálum: „Brýnt að Ísland hugi að stöðu sinni“

Svo virð­ist sem margir íslenskir stjórn­mála­menn séu í auknum mæli að verða jákvæð­ari gagn­vart aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Árni Þór Sig­urðs­son er einn af þeim sem skipt hefur um skoðun og vill nú horfa til Evr­ópu­sam­bands­ins enda miklir óvissu­tímar í heim­inum.

Alger umskipti Árna í Evrópumálum: „Brýnt að Ísland hugi að stöðu sinni“
Árni Þór Sig­urðs­son. Útilokar ekki Evr­ópu­sam­bandið. Mynd: Wikipedia.

Að mati fyrr­ver­andi þing­manns­ins Árna Þórs Sig­urðs­sonar verður sú spurn­ing æ meira áleitn­ari hvort ekki sé ein­fald­lega best fyrir Ísland að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Hann segir að þar vegi þungt að tryggja lýð­ræði og mann­rétt­indi hér á landi og veltir því fyrir sér hvar Ísland vilji almennt skipa sér í sveit hvað varðar alþjóða­sam­skipti.

Árni Þór Sig­urðs­son er þaul­reyndur póli­tíkus og fyrrum sendi­herra; sat á þingi fyrir VG á árunum 2007 til 2014; var vara­for­seti Alþingis - starf­andi for­maður þing­flokks sem og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar. Árni Þór gegndi emb­ætti sendi­herra í Moskvu og Kaup­manna­höfn.

Og hann skrif­aði grein sem ber yfir­skrift­ina: Brimrót og veðragnýr í al­þjóða­málum.

„Það er gömul saga og ný að það skipt­ast á skin og skúrir í sam­búð þjóða og sam­fé­laga. Aðstæður og umhverfi alþjóða­mála taka breyt­ingum frá einum tíma til ann­ars og ríki þurfa sífellt að huga að því hvernig hags­munum þeirra er best fyrir komið í sam­fé­lagi þjóð­anna, hvort sem litið er til stjórn- eða örygg­is­mála, efna­hags-, menn­ingar- eða félags­mála o.fl. Átök og stríðs­rekstur, mis­skipt­ing auðs og félags­legt rang­læti, kyn­þátta­mis­munun og mann­rétt­inda­brot, þar á meðal glæpir gegn mannúð, stríðs­glæpir og hóp­morð, eru því miður við­var­andi og und­ir­liggj­andi ástæður margs konar hörm­unga sem hrjá stóran hluta mann­kyns, hafa gert lengi og gera enn.“

Hann heldur áfram og segir að „margir tugir vopn­aðra átaka eiga sér stað víðs vegar um heim­inn, s.s. í Mið-Aust­ur­löndum, Afríku, Asíu, Evrópu og víðar. Alþjóða­sam­fé­lagið (hug­tak sem er að vísu ekki mjög vel skil­grein­an­legt eða ótví­rætt) hefur hvorki mátt né tæki til að grípa í taumana og ef til vill skortir á stundum líka vilja til að stöðva blóð­bað. Nærtækt er að benda á hryll­ing­inn á Gaza og mátt­leysi alþjóða­sam­fé­lags­ins til að stöðva þá vit­firr­ingu. Stríðið í Úkraínu er sorg­legt dæmi um það hvernig sjálf­skipað stór­veldi telur sig geta, með frekju og yfir­gangi, farið sínu fram í krafti hern­að­ar­styrks.“

Árni Þór segir fullum fetum að inn­limun Krímar í Rússland árið 2014 hafi verið ólög­mæt og að alls­herj­ar­árás­ar­stríð Rúss­lands í Úkraínu, sem hófst í febr­úar 2022, gangi algjör­lega þvert gegn alþjóða­lögum og skuld­bind­ingum:

„Af hálfu rúss­neskra stjórn­valda er því haldið fram að „hin sér­staka hern­að­ar­að­gerð“ hafi verið nauð­syn­leg til að bregð­ast við ógn sem Rúss­landi staf­aði af stjórn­ar­stefn­unni í Kyiv. Er því þá ýmist haldið fram að berj­ast þyrfti gegn meintri fas­ista­stjórn í Úkraínu og svo að stækkun NATO til aust­urs og vænt­ingar Úkraínu um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu væri ögrun við öryggi Rúss­lands. Það fer varla fram hjá neinum að þetta eru tylli­á­stæður en jafn­vel þótt eitt­hvert sann­leiks­korn væri til í þeim gefur það Rúss­landi hvorki heim­ild né nokkurn rétt til að ráð­ast inn í Úkraínu og virða þannig að vettugi full­veldi lands­ins og landamæra­helgi. Segja má að hér skíni í gegn stjórn­mála­heim­speki Machiavellis um að hinir sterku geri það sem þeir kom­ist upp með. Virðing fyrir sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóða á því miður undir högg að sækja hjá ráða­mönnum ýmissa „stór­velda“ um þessar mundir.“

Að mati Árna Þórs skiptir það öllu máli fyrir smá­ríki eins og Ísland að alþjóða­kerfið virki og sé sterkt.

„Ríki sem hvorki hafa hern­að­ar­lega né efna­hags­lega burði til að beita því afli í sam­skiptum við önnur ríki verða að treysta á sterkar alþjóða­stofn­anir og virð­ingu fyrir alþjóða­lögum og öðrum skuld­bind­ingum. Þegar sótt er að þessum grund­vall­ar­þáttum ríður sér­stak­lega mikið á að efla og treysta sam­starf við ríki sem deila sömu gildum og beita áhrifum sínum í krafti slíkrar sam­stöðu. Í gegnum þannig sam­stöðu og sam­tal eru ýmis ríki að breyta um stefnu í mál­efnum Palest­ínu og auka þrýst­ing og gagn­rýni á ísra­elsk stjórn­völd vegna þeirra hörm­unga sem þau standa fyrir á Gaza og reyndar einnig á Vest­ur­bakk­anum. Ísland var t.d. fyrst Norð­ur­land­anna til að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu og nú hafa bæði Svíþjóð og Noregur bæst í þann hóp, ásamt Spáni og Írlandi og fleiri evr­ópsk ríki gætu fylgt í kjöl­farið á næst­unni.“

Árni Þór vill meina - með nokk­urri ein­földun þó - að efna­hags­legir hags­munir hafi í ríkum mæli stýrt íslenskri utan­rík­is­stefnu frá lokum seinni heims­styrj­ald­ar­innar og síður hafi verið litið til þess sem Ísland getur lagt af mörkum á alþjóða­svið­inu:

„Í því brim­róti sem ein­kennir alþjóða­mál um þessar mundir er brýnt að Ísland hugi gaum­gæfi­lega að stöðu sinni út frá því hvernig það getur best orðið að liði í þágu friðar, lýð­ræðis, mann­rétt­inda og félags­legs rétt­lætis og hvernig öryggi lands og þjóðar í við­sjár­verðum heimi verður best tryggt.“

Hann segir að „fyrir þessum gildum hafa íslensk stjórn­völd jafnan talað og þótt Ísland sé fámennt ríki getur rödd þess skipt máli sé henni beitt af afli í sam­vinnu þjóða sem deila sömu gildum. Þegar kemur að þátt­töku Íslands í fjöl­þjóð­legu sam­starfi þá hefur það hins vegar oft valdið umtals­verðum deilum í sam­fé­lag­inu. Þannig var deilt um aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, EFTA, EES og Schengen en góð sam­staða hins vegar um þátt­töku í hinu nor­ræna sam­starfi og í Evr­ópu­ráð­inu og aðildin að Sam­ein­uðu þjóð­unum er nú að segja má óum­deild.“

Árni Þór bætir því við að „Ísland á tví­mæla­laust sam­leið með öðrum Evr­ópu­þjóðum, hvort sem litið er til stjórn­mála, við­skipta, öryggis- og varn­ar­mála, menn­ingar eða félags­legrar sam­heldni, enda þótt áherslur og hags­munir geti vissu­lega verið mis­mun­andi á köflum. Virk þátt­taka okkar í ofan­greindum sam­tökum og banda­lögum styrkir Ísland og á vett­vangi þeirra allra getum við aflað sjón­ar­miðum okkar og gildum breið­ari sam­stöðu. Það er til dæmis eft­ir­tekt­ar­vert að í lönd­unum í kringum okkur hafa mörg þeirra stjórn­mála­afla sem lengi framan af voru gagn­rýnin á aðild sinna landa að bæði Evr­ópu­sam­band­inu og Atl­ants­hafs­banda­lag­inu breytt um afstöðu og tala nú frekar fyrir virkri þátt­töku og beinum áhrifum á stefnu­mótun þeirra.“

Andstaða VG við inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið er vel þekkt hér­lendis og því vekja þessar pæl­ingar Árna Þórs hér að neðan tölu­verða athygli:

„Að því er varðar stöðu Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu þá hafa efna­hags­leg sjón­ar­mið, einkum á sviði sjáv­ar­út­vegs, verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í sam­fé­lags­um­ræð­unni auk þess sem full­veld­is­rökum hefur óspart verið beitt af hálfu þeirra sem eru and­snúnir aðild að ESB. En ef litið er til ann­arra þátta, eins og að tryggja stöðu lýð­ræðis og mann­rétt­inda eða þess hvar Ísland vill almennt skipa sér í sveit í ölduróti alþjóða­sam­skipta, verður sú spurn­ing æ áleitn­ari hvort ekki sé affara­sæl­ast að taka Evr­ópu­skrefið til fulls, enda er Ísland vita­skuld nú þegar þátt­tak­andi í umtals­verðum hluta Evr­ópu­sam­vinn­unnar. Í öllu falli er mik­il­vægt að sú umræða, sem óhjá­kvæmi­leg er á næstu miss­erum í því sam­bandi, hverf­ist um grund­vall­araf­stöðu og hvernig við best verjum þau póli­tísku, menn­ing­ar­legu og sið­ferði­legu gildi sem þorri Evr­ópu­ríkja á sam­eig­in­leg en sem sótt er að úr ýmsum og ólík­leg­ustu áttum um þessar mundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina