Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Halla Tómasdóttir fær 100 milljónir í arð

Forseti Íslands hagn­ast veru­lega á árinu vegna sölu á aug­lýs­inga­skiltum.

Halla Tómasdóttir fær 100 milljónir í arð
Halla Tóm­as­dóttir Varð óvænt sig­ur­veg­ari for­seta­kosn­ing­anna í fyrra. Mynd: Halldór Kolbeins / AFP

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, á von á háum greiðslum eftir að eign­ar­halds­fé­lag, sem hún á hlut­deild í, ákvað á dög­unum að greiða út 800 millj­ónir króna í arð.

Ástæða arð­greiðsl­unnar er að félagið Var ehf, sem fjár­fest­inga­fé­lag Höllu Tóm­as­dóttur for­seta á hlut í, seldi hlut sinn í fyr­ir­tækjum sem halda úti umhverf­is­aug­lýs­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta eru ljósa­skilti og yfir 50 aug­lýs­inga­fletir sem eru yfir 12 fer­metrar að stærð.

Félögin, Bill­bo­ard ehf., BBI ehf. og Dengsi ehf, sem reka aug­lýs­inga­skiltin, voru verð­metin á rúm­lega 5 millj­arða króna í kaupum Símans á þeim. Síð­ast­nefnda félagið rekur 350 bið­skýli á leiðum stræt­is­vagna á land­inu þar sem birtar eru umhverf­is­aug­lýs­ingar fyrir veg­far­endur.

Gæti átt von á meiru

Aðkoma Höllu að félag­inu liggur í gegnum félagið Sunnunes ehf, sem hún á helm­ing í, en Sunnunes á fjórð­ung í Var ehf, sem seldi 34% hlut sinn í aug­lýs­inga­skilta­fé­lög­unum.

Í skýrslu stjórnar félags­ins Var ehf. í nýút­komnum árs­reikn­ingi kemur fram að félagið hagn­að­ist um rúm­lega 1,5 millj­arð króna. „Stjórn félags­ins leggur til að greiddur verði út arður til hlut­hafa á árinu 2025 vegna rekstr­ar­árs­ins 2024 allt að fjár­hæð 800,0 millj. kr,“ segir þar.

Þetta segir ekki alla sög­una, þar sem félagið býr yfir 1,4 millj­örðum króna í óráð­stöf­uðu eigin fé eftir sölu­hagn­að­inn og er því arð­greiðsla árs­ins aðeins rúm­lega helm­ingur þess sem félagið er fært um að greiða hlut­höfum sínum.

Skatt­greiðslur af arði eru 22%. Því er ljóst, að kjósi Halla að greiða sér arð út úr félag­inu Sunnu­nesi, sem fær arð­greiðsl­urnar úr Var ehf, munu 78 millj­ónir króna sitja eftir, fyrir utan 600 þús­und króna frí­tekju­mark hjóna þegar kemur að fjár­magnstekju­skatti.

Fær 225 þúsund króna launahækkun

Eftir að Halla vann for­seta­kosn­ing­arnar síð­asta sumar sagði hún sig frá pró­kúru í félag­inu Sunnu­nesi. Þá eft­ir­lét hún Jóni Björns­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Origo, stjórn á félag­inu, en hann á hinn helm­ing­inn á móti henni. „Hann hefur tekið allar ákvarð­anir og stýrt öllu þar, af því að ég er bara búinn að vera í öðru - að reyna að breyta heim­inum. Þannig að ég hef ekk­ert verið að skipta mér af þessu,“ sagði hún í sam­tali við Við­skipta­blaðið í fyrra vor.

„Ég er bara búinn að vera í öðru - að reyna að breyta heim­inum“

Halla fær síðan launa­hækkun sem for­seti Íslands 1. júlí næst­kom­andi, ef fer sem horfir, þegar 5,6% sjálf­virk launa­hækkun ráða­manna tekur gildi. Þá hækka mán­að­ar­laun for­set­ans úr 4.023.185 krónum í 4.248.483 krónur, sem nemur ríf­lega 225 þús­und króna hækkun mán­að­ar­launa.

Árs­launin verða þá 51 millj­ónir króna. Laun for­seta Íslands munu með hækk­un­inni jafna laun for­seta Banda­ríkj­anna, Donalds Trump, sem eru rétt tæp­lega 51 milljón króna miðað við gengi dags­ins í dag.

Því stefnir í að tekjur Höllu Tóm­as­dóttir verði í raun 150 millj­ónir króna á árinu. Heild­ar­árs­laun 2025 munu þá nema 49,6 millj­ónum króna fyrir störf for­seta Íslands og til við­bótar 100 millj­ónir króna, þegar og ef arð­greiðslan fer út úr félagi hennar, sem liggur ekki fyrir á þess­ari stundu.

Endurbætur á húsnæðinu

Forseti Íslands býr frítt á Bessa­stöðum og fær sam­kvæmt lögum „ókeypis bústað, ljós og hita“. Allur útlagður kostn­aður vegna emb­ætt­is­ins greiddur úr rík­is­sjóði.

Miklar end­ur­bætur hafa verið unnar á íbúð­ar­húsi for­set­ans við Bessa­staði eftir að Halla tók við emb­ætt­inu.

Keyptur var ísskápur og frystir fyrir tæpar 800 þús­und krónur fyrir einka­eld­hús for­set­ans. Þá kost­aði gaselda­vél með ofni rúm­lega hálfa milljón. Um er að ræða annað eld­hús en það sem nýtt er til mat­reiðslu fyrir opin­bera gesti for­seta, sam­kvæmt umfjöllun Heim­ild­ar­innar um málið.

Alls greiddi rík­is­sjóður 120 millj­ónir króna fyrir upp­færslu á bústað for­seta, en þar af fóru 45,5 millj­ónir króna í „inn­rétt­ingar og upp­setn­ingu á þeim“. Eld­húsinn­rétt­ingin var orðin 30 ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega