Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben

Launa­hækk­anir fyrir æðstu ráða­menn ganga í gegn óskertar.

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben
Kristrún Frosta­dóttir For­sæt­is­ráð­herra grípur ekki inn í launa­hækkun. Mynd: AFP

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun ekki fara að for­dæmi for­vera sinna, Bjarna Bene­dikts­sonar og Katrínar Jak­obs­dóttur, og grípa inn í launa­hækkun æðstu ráða­manna.

Laun ráð­herra, þing­manna, for­seta Íslands og æðstu emb­ætt­is­manna munu hækka um 5,6% næstu mán­að­ar­mót. Það er mun hærra en kjara­samn­ings­bundnar hækk­anir á almennum vinnu­mark­aði, sem í grunn­inn eru 3,5%, en þó lægra en þróun launa­vísi­tölu, sem hækkað hefur um 8,2% á einu ári.

Í krónu­tölu talið er hækk­unin mun meiri en hjá með­al­launa­fólki. Með launa­hækk­un­inni hækka laun for­sæt­is­ráð­herra 154 þús­und krónur, laun ráð­herra um 139 þús­und krónur og for­seta Íslands um 250 þús­und krónur.

Hækkunin fylgir útreikn­ingi Hag­stof­unnar á vísi­tölu launa rík­is­starfs­manna og kemur inn sjálf­virkt. Síðustu tveir for­sæt­is­ráð­herrar hafa hins vegar gripið inn í hækk­un­ina til að „sýna gott for­dæmi“ og vinna gegn auk­inni verð­bólgu.

Bjarni Bene­dikts­son lagði fram frum­varp síð­asta sumar til að setja þak á launa­hækk­anir æðstu ráða­manna, þannig að þær færu ekki yfir 66 þús­und krónur á mán­uði.

Rök­stuðn­ingur Bjarna í frum­varp­inu um inn­gripið í júní í fyrra var að ráða­menn ættu að sýna gott for­dæmi í bar­áttu gegn verð­bólgu: „Þannig verði tryggt að hækkun launa þess­ara aðila skapi ekki auk­inn verð­bólgu­þrýst­ing. Er þá horft til þess að aðstæður eru þannig að afar brýnt er að þeir sem njóta bestu launa­kjara hjá rík­inu gangi á undan með góðu for­dæmi og axli ábyrgð á að stöðva verð­bólgu­þróun sem gæti orðið mjög skað­leg fyrir sam­fé­lagið allt.“

Með ákvörð­un­inni í fyrra var áætlað að rík­is­sjóður myndi spara 238 millj­ónir króna.

Katrín Jak­obs­dóttir lagði líka fram frum­varp árið áður þar sem launa­hækk­anir voru tak­mark­aðar við 2,5%.

„Ég skynja þessa gremju og ég hef orðið vitni af þess­ari umræðu síðan ég steig inn á þing. Ég held að það liggi bein­ast við að það þurfi að end­ur­skoða þetta fyr­ir­komu­lag,“ segir Kristrún Frosta­dóttir í sam­tali við Vísi. Þar segir hún að sér hugn­ist ekki að „hand­stýra þessum launa­hækk­unum“.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á aðstoð­ar­menn for­sæt­is­ráð­herra og félags­mála­ráð­herra á þriðju­dag. Ekki hefur borist svar frá ráð­herr­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum