Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ráðherrar stefna í mikla launahækkun eftir stór orð í stjórnarandstöðu

Bjarni Bene­dikts­son greip inn í launa­hækk­anir ráða­manna í fyrra, en nú stefnir í meiri hækkun. Inga Sæland tal­aði um „blauta tusku í and­lit þjóð­ar­innar“ þegar hækka átti ráð­herra­laun 2023.

Ráðherrar stefna í mikla launahækkun eftir stór orð í stjórnarandstöðu
Inga Sæland Félags­mála­ráð­herra fær ríf­lega launa­hækkun, en hafði áður lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu gegn sam­bæri­legri hækkun. Mynd: Golli

Allt stefnir í að laun þing­manna og ráð­herra hækka um 5,6% um næstu mán­að­ar­mót, vegna sjálf­virkrar hækk­unar í sam­ræmi við launa­vísi­tölu rík­is­starfs­manna. Þar með hækka laun ráð­herra úr 2.487.072 krónum, fyrir utan starfstengdar greiðslur, í 2.626.348 krónur, eða sem nemur 139.276 króna launa­hækkun fyrir mán­uð­inn.

Þing­far­ar­kaup, grunn­laun þing­manna, mun á sama tíma hækka um 85 þús­und krónur og fara úr 1.525.841 krónum í ríf­lega 1.611.288 krónur.

Á sama tíma er hækkun sam­kvæmt almennum kjara­samn­ingum ríf­lega 4%. Það gerir 3,5%, eða að lág­marki 23.750 krónur með sér­stakri 0,58% hækkun vegna kaup­taxta­auka 1. apríl síð­ast­lið­inn. Þar sem laun ráð­herra eru hlut­falls­lega mun hærri en mið­gild­is­laun, sem eru 669 þús­und, sam­kvæmt nýjum tölum í dag, er pró­sentu­hækkun launa þeirra mun hærri krónu­tala en lang­flestra ann­arra.

Lögðu fram ályktun gegn hækkun

Fyrir tveimur árum barð­ist núver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, Inga Sæland, hins vegar gegn launa­hækkun ráð­herra og sagði hana „blauta tusku í and­litið á þjóð­inni“. Þáver­andi rík­is­stjórn og þing­meiri­hluti brugð­ust við með því að tak­marka launa­hækk­un­ina við 2,5% í stað þess að hún yrði rúm­lega 6% eins og sjálf­virkt var.

Í fyrra ákvað Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, síðan að leggja fram frum­varp um að tak­marka launa­hækkun þing­manna, ráð­herra og æðstu emb­ætt­is­manna um 66 þús­und krónur á mán­uði. Ekki er ljóst hvort Kristrún Frosta­dóttir muni fylgja for­dæmi Bjarna. Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurn á for­sæt­is­ráð­herra en ekki fengið svar.

Laun ráð­herra, þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna hækka sjálf­virkt í takt við launa­hækk­anir, eftir laga­breyt­ingu 2017 sem kom í kjöl­far ákvörð­unar kjara­ráðs um stór­fellda hækkun launa sama hóps árið 2017. Með þessum hætti átti að koma í veg fyrir kjaragliðnun í þágu hæst laun­aða fólks rík­is­ins.

Bjarni greip inn í til að sýna gott fordæmi

Bjarni lagði fram frum­varp 18. júní í fyrra þar sem launa­hækk­unin var tak­mörkuð það til­tekna ár. Verð­bólgan mæld­ist þá 5,8% og hafði lækkað tölu­vert frá árinu áður. Inga Sæland og Guð­mundur Ingi Krist­jáns­son sátu hjá í atkvæða­greiðslu um frum­varp Bjarna, en Kristrún Frosta­dóttir og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir greiddu atkvæði með því.

Rök­stuðn­ingur Bjarna fyrir tak­mörkun launa­hækk­unar var að ráða­menn ættu að sýna gott for­dæmi í bar­áttu gegn verð­bólgu, eins og sagði í grein­ar­gerð frum­varps­ins í fyrra: „Þannig verði tryggt að hækkun launa þess­ara aðila skapi ekki auk­inn verð­bólgu­þrýst­ing. Er þá horft til þess að aðstæður eru þannig að afar brýnt er að þeir sem njóta bestu launa­kjara hjá rík­inu gangi á undan með góðu for­dæmi og axli ábyrgð á að stöðva verð­bólgu­þróun sem gæti orðið mjög skað­leg fyrir sam­fé­lagið allt.“

Með ákvörð­un­inni var áætlað að rík­is­sjóður myndi spara 238 millj­ónir króna.

„Verði frum­varpið að lögum er stuðlað að félags­legri sam­stöðu og rétt­læti sem sjálf­virkar og ríf­legar pró­sentu­hækk­anir best laun­uðu hópa hins opin­bera myndu ógna,“ sagði enn fremur í rök­stuðn­ingi Bjarna Bene­dikts­sonar.

Bið á vaxtalækkunum

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands telj­ast enn háir, eða 7,5%, og er verð­bólga enn vel yfir 2,5% við­miði bank­ans, eða 3,8%. Stýri­vextir voru lækk­aðir um 0,25% í þar­síð­ustu viku. Afleið­ingar hárra stýri­vaxta eru að óverð­tryggð hús­næð­is­lán lands­manna bera vexti sem fara ekki niður fyrir 8,5%. Við ákvörð­un­ina var boðað að bið gæti orðið á frek­ari vaxta­lækkun.

„Þótt verð­bólga hafi hjaðnað og verð­bólgu­vænt­ingar lækkað síð­ustu miss­eri er verð­bólgu­þrýst­ingur enn til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skap­ast að hægt sé að slaka á núver­andi raun­vaxta­að­haldi pen­inga­stefn­unnar. Ljóst er að frek­ari skref til lækk­unar vaxta eru háð því að verð­bólga fær­ist nær 2½% mark­miði bank­ans,“ sagði í rök­stuðn­ingi pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar. Næsta stýri­vaxta­á­kvörðun er 20. ágúst.

Launahækkun áður „blaut tuska“

Inga Sæland og sam­flokks­menn hennar í Flokki fólks­ins, börð­ust gegn sam­bæri­legri launa­hækkun æðstu ráða­manna sum­arið 2023, þá í stjórn­ar­and­stöðu, í þeim til­gangi „að fela rík­is­stjórn­inni að vin­sam­lega stöðva af þessar launa­hækk­anir til æðstu emb­ætt­is­manna meðan ástandið er svona bágt í sam­fé­lag­inu,“ eins og hún lýsti því.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Ingu, sem nú er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og félaga hennar í Flokki fólks­ins, meðal ann­ars Guðmundi Inga Krist­jáns­syni, núver­andi mennta­mála­ráð­herra, var lögð til krónu­tölu­hækkun til að koma í veg fyrir að ráða­menn hækk­uðu mun meira en aðrir í krónum talið. „Fyr­ir­huguð launa­hækkun mun að óbreyttu hækka laun alþing­is­manna langt umfram þær krónu­tölu­hækk­anir sem samið var um í kjara­samn­ingum und­an­far­inna miss­era fyrir þorra launa­manna,“ sagði í álykt­un­inni.

„Þetta er blaut tuska í and­litið á þjóð­inni“
Inga Sæland

Inga hafði uppi stór orð um launa­hækk­un­ina þá. „Þetta er blaut tuska í and­litið á þjóð­inni á ofboðs­lega erf­iðum tíma þegar þriðj­ungi þjóð­ar­innar er að blæða út hérna í áhyggjum og van­líðan vegna okur­vaxta og óða­verð­bólgu,“ sagði Inga þá í sam­tali við RÚV. Verð­bólga á þeim tíma mæld­ist 9,5%.

Eftir það lagði Katrín Jak­obs­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fram frum­varp um að tak­marka hækk­un­ina við 2,5%.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, taldi hins vegar þá að ekki ætti að grípa inn í hækk­un­ina, þar sem fyr­ir­komu­lagið hefði verið ákveðið með þessum hætti í sam­ráði laun­þega­hreyf­ing­ar­innar og ann­arra aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

Launa­vísi­tala hefur síð­asta árið hækkað um 8,2%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum