Fjölskylda Bryndísar Klöru Birgisdóttur afhjúpaði í dag Bryndísarbekk við Salalaug í Kópavogi.
Bryndís Klara lét lífið eftir árás á Menningarnótt í Reykjavík í ágúst á síðasta ári.
Kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ að Bryndísarbekkjum verður komið fyrir víða um Kópavog, eftir að hugmynd þess efnis hlaut brautargengi í hugmyndasöfnuninni Okkar Kópavogur.
Verður fleiri bekkjum komið fyrir við alla grunnskóla Kópavogs og íþróttahús í sumar.
Staðirnir voru valdir með það í huga að bekkirnir verði sýnilegir þar sem börn og unglingar eru á ferðinni, eins og segir því í tilkynningu frá Kópavogsbæ.































Athugasemdir