Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásthildur Lóa segir söguna alla

„Hafði aldrei verið við karl­mann kennd,“ segir hún um sam­band sitt við 15 ára pilt­inn.

Ásthildur Lóa segir söguna alla
Í við­tali hjá RÚV Ást­hildur Lóa hefur nú fyllt inn í sög­una af ást­ar­sam­band­inu við pilt sem RÚV greindi fyrst frá í gær­kvöldi. Mynd: RÚV / Skjáskot

„Barn er ekki pakki, sem maður afhentir ein­hverjum þótt hann hafi tekið þátt í getn­að­inum ef ekk­ert sam­band er til staðar,“ segir þing­konan og frá­far­andi mennta- og barna­mála­ráð­herra, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, um sam­band sitt við 15 ára pilt þegar hún var sjálf 22 ára, sem leiddi til þess að hún eign­að­ist barn með pilt­inum.

Sam­bandið olli falli hennar úr ráð­herra­stól 36 árum síðar. Ein ástæða þess er aðstöðu­mun­ur­inn, þar sem Ást­hildur Lóa tók þátt í ung­linga­starfi í trú­fé­lag­inu Trú og líf í Kópavogi. Önnur er að í umfjöllun RÚV var haft eftir barns­föð­urnum að hann hefði upp­lifað tálmun, þrátt fyrir að hafa greitt með­lag.

Í ítar­legri frá­sögn Ást­hildar Lóu af sam­band­inu, sem hún sendi frá sér í morgun, ver hún sig þeim ásök­unum. Á móti sakar hún barns­föður sinn um að hafa elti­hrellt sig þegar hann sótt­ist eftir umgengni við barnið. „Þarna upp­lifði ég eitt­hvað sem í dag væri kallað elti­hrell­ing en það hug­tak var ekki til á þessum tíma,“ segir hún.

Hún seg­ist ekki hafa leitt ung­linga­starfið, heldur verið hluti af því, þótt hún hefði verið 22 ára gömul. „Af sögum hans að dæma var hann mun reynd­ari en ég varð­andi kyn­ferð­is­mál, enda hafði ég eins og áður sagði aldrei verið við karl­mann kennd,“ segir hún um pilt­inn. Sjálfur hefur pilt­ur­inn, sem nú er full­orð­inn maður, Eiríkur Ásmunds­son, sagt við RÚV að hann hafi ekki upp­lifað sig sem þol­anda eða fórn­ar­lamb í aðstæð­unum, að öðru leyti en að honum hefði verið meinuð umgengni þrátt fyrir með­lags­greiðslur. Þetta skýrir Ást­hildur Lóa með upp­haf­legu áhuga­leysi barns­föð­ur­ins.

„Fljót­lega eftir að barns­faðir minn komst að því að ég væri ófrísk minnk­aði áhugi hans á mér veru­lega sem stað­festi það sem ég hafði fyrir löngu gert mér grein fyrir, að engin fram­tíð væri í sam­bandi okkar,“ segir hún.

„Þegar leið á með­göng­una gufaði barns­faðir minn upp og ég fann enga leið til að ná í hann. Einhvern veg­inn fann ég samt út að hann væri fluttur inn með konu sem var eldri en ég og náði einu sinni í hann til hennar þegar ég þurfti að ræða við hann. “

„Það var eina svona nótt í lok sept­em­ber 1989 sem ég hleypti honum inn.“
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir um sam­band sitt við pilt

Eft­ir­far­andi er frá­sögn Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur í heild sinni.

Yfirlýsing frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur

„Í fram­haldi af afsögn minni úr emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra tel ég mik­il­vægt að eft­ir­far­andi komi fram.

Þótt margir eigi sjálf­sagt erfitt með að trúa því í dag þá var ég alger­lega óreynd í ást­ar­málum á þeim tíma sem ég kynnt­ist barns­föður mínum, vorið 1989 og hafði aldrei verið við karl­mann kennd. Ég hafði tekið þátt í kristi­legu starfi frá 13 ára aldri og vinir mínir þar voru ýmsum aldri, bæði fólk sem var yngra en ég en einnig eldra. Ég kynn­ist barns­föður mínum í gegnum þetta starf en ég var aldrei for­stöðu­maður fyrir neinu eða leið­bein­andi heldur ein­fald­lega ein af hópnum sem þarna var. Mér eldra fólk stóð fyrir þessu starfi, stjórn­aði því og leiddi.

Þarna um vorið er barns­faðir minn tæp­lega sextán ára gam­all sem hann varð síðan í ágúst 1989. Í fyrstu var ein­göngu um vin­áttu að ræða okkar á milli. Hann sótti í að ræða allt milli him­ins og jarðar við mig og mér lík­aði vel við hann. Hann var skemmti­legur og við náðum vel saman, án þess að nokkuð annað væri á bak­við það í mínum huga. Þegar leið á sum­arið fór hann ekki í graf­götur með að hann hafði mik­inn áhuga á nán­ara sam­bandi. Af sögum hans að dæma var hann mun reynd­ari en ég varð­andi kyn­ferð­is­mál, enda hafði ég eins og áður sagði aldrei verið við karl­mann kennd. Hann hafði, ef ég man rétt, átt nokkrar kærustur og nefndi a.m.k. tvær konur, mun eldri en mig, sem hann hafði átt í nánu sam­bandi við.

Ég tók nán­ara sam­band ekki í mál og reyndi ítrekað að slíta sam­bandi við hann en við það færð­ist hann allur í auk­ana og þarna upp­lifði ég eitt­hvað sem í dag væri kallað elti­hrell­ing en það hug­tak var ekki til á þessum tíma. Þetta tók á sig ýmsar myndir en m.a. fór hann að venja komur sínar upp í Mos­fellsbæ þar sem ég bjó með föður mínum og systur, og hékk í kringum húsið í alls kyns veðrum og kom svo á glugg­ann hjá mér þegar allt var orðið hljótt. Systir mín fann hann a.m.k. tvisvar í bíl­skúrnum okkar, þar sem hann hafði komið sér fyrir.

Mér leið illa með þetta. Ég hafði sam­visku­bit gagn­vart honum og til­finn­ingum hans sem hann bar svona utan á sér og ég gat ekki end­ur­goldið þó mér þætti vænt um hann. Ég hafði líka áhyggjur af honum og aðstæðum hans sem voru á margan hátt erf­iðar og mig lang­aði til að styðja hann og hjálpa á þann hátt sem ég gæti.

Það var eina svona nótt í lok sept­em­ber 1989 sem ég hleypti honum inn. Þarna er hann 16 ára gam­all og ég hrein­lega höndl­aði ekki þessar aðstæður.

Þótt ég hefði ekk­ert sér­stak­lega verið að spá í það í þessum aðstæðum, þá var 16 ára sjálf­ræð­is­ald­ur­inn á þessum tíma og samönd milli fólks á þessum aldri voru alls ekki óal­geng þótt þau þættu ekki æski­leg. Ald­urs­mun­ur­inn var hins vegar nær alltaf í hina átt­ina.

Senni­lega varð ég ólétt strax þetta fyrsta skipti og eftir það varði sam­band okkar í nokkrar vikur. Sonur okkar fæð­ist svo í júní 1990 þegar ég var 23 ára og barns­faðir minn tæp­lega 17 ára.

Fljót­lega eftir að barns­faðir minn komst að því að ég væri ófrísk minnk­aði áhugi hans á mér veru­lega sem stað­festi það sem ég hafði fyrir löngu gert mér grein fyrir, að engin fram­tíð væri í sam­bandi okkar.

Þegar leið á með­göng­una gufaði barns­faðir minn upp og ég fann enga leið til að ná í hann. Einhvern veg­inn fann ég samt út að hann væri fluttur inn með konu sem var eldri en ég og náði einu sinni í hann til hennar þegar ég þurfti að ræða við hann.

Síðustu mán­uð­ina fyrir fæð­ing­una vissi ég svo lítið sem ekk­ert af barns­föður mínum og ekki var um neitt sam­band að ræða. Það er ekki fyrr en ég er bók­staf­lega að fæða barnið á fæð­ing­ar­deild­inni sem hann birt­ist og ég sam­þykki að hann fengi að koma inn og hann var því við­staddur fæð­ing­una.

Eftir að barnið er fætt reyndi ég að vera í sam­bandi við barns­föð­ur­inn til að hann gæti verið í sam­skiptum við son sinn. Hér verður að muna að engir far­símar voru til, ein­ungis heima­símar.

Ég hringdi þannig oft í hann og bauð honum heim og fór þá með barnið til að sækja hann. Þetta gekk í nokkur skipti en svo fór að verða mjög erfitt að ná í hann og ef ég náði í hann og við ákváðum stað og stund, þá stóðst það ekki og hann lét aldrei vita af því. Ég var því stundum hring­só­l­andi í kringum vist­ar­verur hans með barnið í bílnum í kannski klukku­tíma, án þess að hann léti sjá sig.

Í þau skipti sem ég leit­aði til for­eldra hans í þeim efnum sögð­ust þau ekki vita hvar hann væri nið­ur­kom­inn og ljóst að hann bjó ekki hjá þeim og sam­band hans við for­eld­rana erfitt.

Sem ung móðir hugs­aði ég fyrst og fremst um son minn og naut til þess stuðn­ings föður míns og systur. Eftir erf­ið­leika við að halda uppi sam­skiptum við barns­föð­ur­inn og reyna yfir­leitt að kom­ast að því hvar hann væri að finna, sem var veru­lega íþyngj­andi, ákvað ég að hætta að standa í því að hafa frum­kvæði að þessum sam­skiptum. Frum­kvæðið gæti verið á hans könnu.

Sem ein­stæð móðir með mjög tak­mörkuð fjár­ráð fór ég þarna fyrst fram á með­lags­greiðslur lögum sam­kvæmt sem barns­fað­ir­inn greiddi sam­visku­lega.

Þegar dreng­ur­inn okkar um tveggja og hálfs árs gam­all, fæ ég án nokk­urs fyr­ir­vara boð frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu vegna þess að barns­fað­ir­inn vilji fá umgengni við dreng­inn aðra hvora helgi. Miðað við það sem á undan var gengið treysti ég honum hrein­lega ekki til að standa undir þeirri ábyrgð. Það varð hins vegar úr að sam­komu­lag var gert um að hann fengi til reynslu að hitta dreng­inn einu sinni í mán­uði á heim­ili mínu hjá föður mínum.

Þetta gekk eftir í tvö eða þrjú skipti en eftir það sýndi barns­fað­ir­inn ekk­ert frum­kvæði að því að eiga sam­skipti við dreng­inn. Hann sendi drengnum heldur aldrei afmælis- eða jóla­gjafir né sýndi nokk­urt frum­kvæði að því að eiga í sam­skiptum við hann.

Þegar dreng­ur­inn varð þriggja ára birt­ist barns­fað­ir­inn án fyr­ir­vara í afmælið sem ég sagði honum að gengi ekki. Hann yrði að gera boð á undan sér og við yrðum að finna sam­eign­lega tíma til sam­funda þeirra. Þarna var hann með gjöf, þá einu sem hann nokkurn tím­ann gaf syni sínum.

Við upp­rifjun þess­arar sögu í gær, rifj­að­ist upp í sam­tali mín og systur minnar að barns­faðir minn hefði ein­hvern tím­ann, senni­lega þegar barnið er um fjög­urra ára gam­all, viljað fá barnið til sín um helgi því hann væri komin í sam­búð. Ég sagði eins og áður að hann yrði að kynn­ast honum fyrst. Honum fannst ég veru­lega ósann­gjörn en fylgdi þessu ekki eftir.

Það er vert að hafa í huga að á þessum árum vissi ég aldrei nákvæm­lega hvar barns­fað­ir­inn bjó eða hvert síma­númer hans væri. Ég átti því enga mögu­leika á að hafa sam­band við hann, hvorki eftir afmælið til að bjóða honum að hitta barnið né þegar hann fylgdi þess­ari seinni bón sinni ekki eftir.

Eftir þetta sýndi barns­fað­ir­inn engan áhuga á því að eiga í sam­skiptum við son sinn, þó mig rámi í að hann hafi komið þegar hann var um átta ára gam­all, en man ekki hvernig það kom til.

Barn er ekki pakki, sem maður afhentir ein­hverjum þótt hann hafi tekið þátt í getn­að­inum ef ekk­ert sam­band er til staðar. Mér telst svo til að barns­föð­urnum hafi fjórum eða fimm sinnum dottið í hug að hann vildi hitta dreng­inn og það virð­ist alltaf hafa átt að vera á hans for­sendum og þegar honum hent­aði. Það var aldrei nein eft­ir­fylgni af hans hálfu eða vilji til að leggja á sig að ná tengslum við barnið. Sem for­sjárað­ili barns­ins bar mér að gæta að því og hef algjör­lega hreina sam­visku gagn­vart syni mínum og barns­föð­urnum hvað það varðar.

Fyrir til­viljun rakst barns­fað­ir­inn á son sinn þegar hann var 19 ára gam­all. Eftir það hitt­ust þeir einu sinni og aldrei eftir það. Síðustu sam­skiptin voru árið 2010 með skila­boðum til barns­föð­ur­ins á Facebook.

Sonur okkar er 35 ára í dag. Hann hefur því verið lög­ráða og full­orðin sam­kvæmt lögum í 17 ár. Þeir hitt­ust einu sinni af til­viljun en þar fyrir utan hefur faðir hans aldrei á öllum þessum árum gert minnstu til­raun til að hitta hann eða mynda sam­band þeirra í milli. Miðað við mína fyrri reynslu get ég ekki sagt að það komi mér á óvart.

Þegar sonur minn er rétt rúm­lega eins árs kynnt­ist ég núver­andi manni mínum sem gekk syni mínum í föð­ur­stað með öllu sem því fylgir. Sam­skipti og sam­band þeirra feðga hafa alla tíð verið mjög góð og því ekk­ert nema eðli­legt að hann væri kenndur við eina föð­ur­inn sem hann hefur þekkt.

Þriðju­dag­inn 11. mars sýnir aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra mér texta­skila­boð þar sem ég var rétt að hefja þát­töku í umræðum á Alþingi. Skil­að­boðin voru stutt og á þá leið að kona sem var nafn­greind og ég kann­að­ist alls ekki við vildi fund með for­sæt­is­ráð­herra um mig. Ég vona að eng­inn lasti mér fyrir að vera for­vitin um hver þessi kona var og um hvaða mál sem snertu mig hún vildi ræða.

Eftir að hafa leitað fyrir mér sé ég að hún og barns­faðir eldra sonar míns voru vinir á Facebook. Mig fór því að renna í grun um hvaða mál hún vildi tala án þess að ég vissi nokkuð um hver tengsl þess­arar konu og barns­föð­ur­ins væru. Sunnu­dag­inn 16. mars hafði ég fyrst síma­sam­band við kon­una og þá kom í ljós að hún væri fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föð­ur­ins. Hún sak­aði mig um að hafa beitt hann tálm­unum í sam­skiptum við son hans sem ég neita alfarið að ég hafi gert, sam­an­ber það sem ég rakti hér að ofan.

Í þessu sam­tali og nokkrum öðrum þar á eftir í vik­unni sem er að líða segir hún mér að hún hafi sent erindi vegna þess­ara mála til for­sæt­is­ráð­herra og þar sem þau hafi ekki virkað eins og hún vildi, myndi hún leita ann­ara leiða. Hún sagð­ist þó ekki ætla með málið í fjöl­miðla þegar ég spurði um það og full­yrti að barns­fað­ir­inn væri ekki á bak­við þennan mála­til­búnað.

Það var síðan í gær­morgun, fimmtu­dag­inn 20. mars, að frétta­maður á RÚV sendir skila­boð til aðstoð­ar­konu minnar og óskar eftir við­tali við mig um sam­band mitt við barns­föð­ur­inn fyrir 35-36 árum. Þá var auð­vitað ljóst í hvað stefndi.

Ég hef alla tíð brunnið fyrir mál­efnum barna og ung­menna og útskrif­að­ist sem kenn­ari árið 1994 þegar sonur minn var við fjög­urra ára ald­ur­inn. Sem mennta- og barna­mála­ráð­herra fékk ég ein­stakt tæki­færi til að láta margt gott af mér leiða í þessum mik­il­væga mála­flokki. Uppi voru og eru áætl­anir um margs konar mál til úrbóta fyrr börn og ung­menni.

Þegar ljóst var að RÚV myndi segja frétt af þessu máli tæp­lega fjöru­tíu ára sam­bandi mínu og barns­föð­ur­ins frá einni hlið, hvort sem ég mætti í við­tal eða ekki, stóð ég frammi fyrir því að mín per­sónu­legu mál frá því ég var ung kona myndu skyggja á ekki bara öll mín störf í mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu heldur öll störf rík­is­stjórn­ar­innar sem hefur metn­að­ar­full áform um breyt­ingar í almanna­þágu.

Sam­starfs­fólk mitt, sam­herjar í rík­is­stjórn og innan þing­flokka stjórn­ar­flokk­anna ásamt mér yrði elt uppi af öllum fjöl­miðlum til að krefj­ast svara og álits á mínum per­sónu­legu málum. Málum sem ég full­yrði kinn­roða­laust að hafa engin áhrif á störf mín sem ráð­herra. En það var ekki mitt að ráða þeirri för.

Eftir sam­töl við nán­asta sam­starfs­fólk mitt, börnin mín, föður og systur og síðan for­ystu­konur rík­is­stjórn­ar­innar var það mín ákvörðun að láta þessi mál ekki taka alla athygli frá þeim mik­il­vægu málum sem unnið er að í ráðu­neyti mínu og innan rík­is­stjórn­ar­innar í heild. Það var ekki auð­veld ákvörðun en hún var mín. Síðasta sím­talið var síðan við eig­in­mann minn sem staddur var í útlöndum til að greina honum frá þess­ari ákvörðun minni.

Hálftíma síðar var ég mætt rétt fyrir klukkan sex í gær­dag í við­tal við frétta­mann RÚV þar sem ég lagði eins heið­ar­lega og ég gat eftir mínu minni öll spilin á borðið. Á þeirri sömu stundu var útvarpað frétt í Spegl­inum, sem ég heyrði ekki og hafði ekki verið upp­lýst um inni­hald þeirrar fréttar, þar sem ýmis­legt var sagt sem sam­ræm­ist ekki mínu minni af þessum kafla í lífi mínu fyrir 35-36 árum.

Nú þegar ég hef sagt af mér emb­ætti sem tekur form­lega gildi þegar for­sæt­is­ráð­herra og for­seti Íslands hafa stað­fest það, vona ég að sam­starfs­fólki mínu í ráðu­neyt­inu, þing­flokki og hinum stjórn­ar­flokk­unum verði hlíft við því að vera krafið dóma yfir mér og mínu einka­lífi. Þau eiga það ekki skilið að vera blandað í mín einka­mál og fá von­andi frið til að sinna þeim mik­il­vægu verkum sem þau hafa tek­ist á hendur á Alþingi og í rík­is­stjórn.

Ég mun ekki að sinni veita frek­ari við­töl vegna þessa máls og vona að fjöl­miðlar sjái sér fært að birta þessa yfir­lýs­ingu mína jafn­vel þótt hún sé löng. En í mínum huga er mik­il­vægt að stað­reyndir þessa máls frá mínum bæj­ar­dyrum séð fái sömu athygli og fréttir af þessu máli hafa nú þegar fengið í flestum fjöl­miðlum lands­ins.

Sam­starfs­fólki mínu í rík­is­stjórn og þing­flokkum rík­is­stjórn­ar­innar sendi ég bar­áttu­kveðjur með þakk­læti fyrir þann heiður að hafa fengið að gegna því mik­il­væga trún­að­ar­starfi fyrir almenn­ing sem felst í því að vera mennta -og barna­mála­ráð­herra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum