Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við eigum ekki að dæma fólk eftir ástamálum þess“

Þau taka afstöðu með Ásthildi Lóu Þórs­dóttur. Vilja ekki vamm­lausa stjórn­mála­menn.

„Við eigum ekki að dæma fólk eftir ástamálum þess“
Vill umburð­ar­lyndi Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vill ekki gera kröfur um vamm­lausa ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

Nokkrir áber­andi álits­gjafar taka afger­andi afstöðu með Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, sem sagði af sér emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra í gær­kvöldi vegna ást­ar­sam­bands og meintrar tálm­unar gagn­vart ungum pilti sem hófst fyrir 36 árum, þegar hún var 22 ára en hann 15 ára.

Ekki dæma ástarmál

„Hvert og eitt til­vik er sér­stakt, oft fullt af ham­ingju og gleði, oft sorg­legt og verður jafn­vel að ævi­löngu sári, en sjaldn­ast glæp­sam­legt eða til þess fallið að sam­borg­arar eigi að setja sig á háan sið­ferð­is­hest og dæma út frá tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum,“ segir Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í færslu á Facebook.

Guð­mundur Andri tekur ein­arða afstöðu með Ásthildi Lóu og rétti hennar til að hafa átt ást­ar­sam­band með ung­lingnum án afleið­inga í dag.

„Við eigum ekki að dæma fólk eftir ásta­málum þess – ekki heldur 35 ára ásta­málum,“ segir hann og vill leggja aðra mæli­kvarða á stjórn­mála­menn.

„Ég vil meta stjórn­mála­menn eftir stefnu þeirra og því hversu lík­legir þeir eru til að bæta sam­fé­lagið okkar; hvernig þeir fara með vald. Mér finnst ekki að stjórn­mála­menn eigi umfram allt að vera vamm­lausar mann­eskjur sem aldrei hafi kom­ist í neins konar vand­ræði. Mér fannst það til dæmis vont þegar Sigurjón Þórð­ar­son þing­maður FF vildi svipta Morg­un­blaðið styrkjum sem blað­inu ber að fá vegna þess að honum mis­lík­aði frétta­flutn­ingur þess. Mér fannst líka ýmis­legt í mál­flutn­ingi Ást­hildar Lóu um fjár­mál nokkuð á skjön við það hvernig ég myndi orða hlut­ina – en mér sýnd­ist hún vera að ná góðum tökum á starfi sínu.“

„Krossferð“

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­kona og stjórn­ar­maður í Sam­stöð­inni, tekur í sama streng.

„Mig langar að vita hvaða knýj­andi þörf varð til þess að konan sem hratt þessu máli af stað ákvað að fara í þessa kross­ferð til að skemmta skratt­anum. Voru það kannski lægri og ömur­legri hvatir heldur en stjórn­uðu gerðum korn­ungs fólks í trú­ar­söfn­uði fyrir 35 árum?“ spyr hún á Facebook.

„Ein­hvern­tím­ann heyrði ég að versta fólkið í barna­vernd­ar­nefndum væri ofsa­trú­ar­fólk og hat­rammt bind­ind­is­fólk. Ég vil ekki endi­lega vamm­lausan barna­mála­ráð­herra, ég vil frekar breyska mann­eskju sem getur skilið núansana í til­ver­unni.

Verða börn betur sett með harð­læstan og lok­aðan barna­mála­ráð­herra í gráum jakka­fötum sem hefur aldrei mis­stigið sig? Eitt er víst. Morg­un­blaðið mun ekki linna látum fyrr en það verður búið að hýða og hengja opin­ber­lega alla þing­menn Flokks fólks­ins sem vildu frekar ganga inn í núver­andi rík­is­stjórn en að greiða götu þeirra. Sið­fræð­ingar flokks­ins munu síðan míga á gröf­ina og þjóðin klappa fyrir mestu hræsnur­unum,“ segir hún.

Sama segir Einar Gautur Stein­gríms­son lög­maður um aft­ur­virkar sið­ferð­is­kröfur. „Skil að hún kjósi að segja af sér en almennt tel ég að þjóð­fé­lagið eigi ekki að elt­ast við 30 ára gamlar syndir. Mér lýst illa á slíkt. Þá bara skipt­ast ráða­menn í þá sem hafa gert eitt­hvað sem ekki hefur kom­ist í hámæli og hina sem þurftu frá að hverfa útaf slíku. Færri hafa ekk­ert slíkt í poka­hornnu.“

Dæmi um „núgildingu“

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi úr Sjálf­stæð­is­flokknum, er sam­mála þeim öllum og er það í eitt af fáum til­fellum sem sam­hljómur er vinstra megin og hægra megin. Hann kallar það „núgild­ingu“, sem er til­vísun í „pres­ent­ism“, að dæma gjörðir for­tíðar út frá gildum og reglum dags­ins í dag. „Núgild­ing felur í sér þá til­hneig­ingu að meta atburði og hegðun í for­tíð­inni út frá sið­ferði­legum, félags­legum eða menn­ing­ar­legum við­miðum nútím­ans. Þetta getur leitt til þess að fólk dæmir ein­stak­linga eða sam­fé­lög í sög­unni harð­lega fyrir gjörðir sem þó voru taldar eðli­legar á sínum tíma eða í það minnsta ekki for­dæmt af sam­fé­lag­inu. Með því er hætta á að við missum sjónar á félags­legu sam­hengi og dæmum hegðun sem þó var í sam­ræmi við tíð­ar­and­ann á þeim tíma.“

Þá bætir hann við: „Málefni barna­mála­ráð­herra er per­sónu­legt og sá hluti á ekki endi­lega erindi á hvers manns tungu þótt eðli­legt sé að málið sé rætt og reifað. Ég hef verið mjög gagn­rýnin á fram­göngu ráð­herr­ans í ýmsum málum, ekki hvað síst for­dæma­lausa aðkomu hennar að kjara­samn­ingum og orðum um dóm­stóla. Ég tel rík­is­stjórn betur skip­aða eftir brott­hvarf hennar. Það breytir því ekki að mér þykir umræða um þessa fjöl­skyldu­sögu og núgild­ing umræð­unnar ósann­gjörn. Ég held að fólk þurfi að fara var­lega í alla dóma og gæta að núgild­ingu. Að sama skapi þarf að muna eftir þeirri mann­legu hlið í þessu máli að frá­far­andi barna­mála­ráð­herra var á þessum tíma ung ein­stæð móðir og við­brögð hennar gagn­vart barns­föður þarf að skilja í því ljósi. Aðgát skal höfð í nær­veru sálar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum