Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr lætur SFS fá það óþvegið

„Fyr­ir­sláttur og leik­ara­skapur sem nýtur engrar með­aumk­unar og þeim ein­ungis til háð­ungar.“

Jón Gnarr lætur SFS fá það óþvegið
Jón Gnarr Jón Gnarr er ekk­ert að grín­ast í þetta skiptið. Mynd: Alþingi

Aug­lýs­inga­her­ferð Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hefur farið ofan í fjöl­marga íslend­inga en margir þeirra hafa lýst yfir óánægju sinni með þær. Ber þar helst að nefna Pálma Gestsson leik­ara, sem birti sína útgáfu af aug­lýs­ingu um sjáv­ar­út­veg­inn, og Bubba Morthens sem gaf sam­tök­unum hálf­gert rot­högg með Facebook-færslu. Þá hefur Ragnar Bragason kvik­mynda­gerða­maður einnig gagn­rýnt aug­lýs­ing­arnar harð­lega. Og nú er það Jón Gnarr sem tekur af sér grín­hansk­ana og lætur höggin dynja á SFS.

„Aug­lýs­ingar ná því stundum að verða list­rænar tákn­myndir fyrir deka­dent firr­ingu í sam­fé­lag­inu. Aug­lýs­ing Orku­veit­unnar “Svona viljum við hafa það,” frá 2006 er þekkt dæmi um það. Náði meira að segja í Skaupið. Ég held að þessi nýjasta aug­lýs­ing SFS sé slík tákn­mynd. Ákveðinn hápunktur í her­ferð útgerð­ar­innar gegn leið­rétt­ingu veiði­gjald­anna.“ Þannig hefst færsla Jóns Gnarr á Facebook en færslan hefur vakið gríð­ar­leg við­brögð en hátt í þús­und manns hafa líkað við hana og á þriðja tug hafa end­ur­deilt henni á Facebook. Segir Jón að aug­lýs­ingin, sem um ræðir, sé mjög vel gerð en að hand­ritið sé lélegt.

„Aug­lýs­ingin er mjög fag­mann­lega gerð. Hand­ritið er að vísu ekki gott en aug­lýs­ingin skartar útlenskum leik­ara, Jon Øigarden, sem svo kald­hæðn­is­lega vill til að lék einn af fégráð­ugu drullu­sokk­unum í Norsku þátt­unum Exit.“

Jón gerir því næst lítið úr „áróðri“ sægreif­anna og kallar stað­hæf­ingar þeirra „fyr­ir­slátt“ og „leik­ara­skap“.

„Allur þessi áróður er fram­leiddur af fólki sem finnst svo þrengt að sér og rekstri sínum, sem sé nú þegar í járnum. Samt er hreinn rekstr­ar­hagn­aður þeirra 93 millj­arðar (Níutíu og þrjú þús­und millj­ónir) og fellur aðeins í 84, sem er circa það sem þessi leið­rétt­ing felur í sér. Þau vilja halda því fram að þessar eðli­legu og sann­gjörnu aðgerðir séu hrein aðför að þeim og muni jafn­vel kippa fót­unum undan rekstri þeirra, leggja atvinnu­veg­inn í rúst og tor­tíma blóm­legum sjáv­ar­þorpum útum landið.

Þetta er bara ein­fald­lega ekki rétt og það er Íslensku þjóð­inni aug­ljóst að þetta er ein­ungis fyr­ir­sláttur og leik­ara­skapur sem nýtur engrar með­aumk­unar og þeim ein­ungis til háð­ungar.“

Að lokum bendir Jón á að betra væri að ein­blína á raun­veru­leg vanda­mál, á borð við „lang­tíma­bæra þjón­ustu við börn og ung­menni í vanda“.

„Með atvinnu­veg­unum okkar þá fjár­mögnum við inn­viði sam­fé­lags­ins; heil­brigð­is­kerfi, menntun, öldr­un­ar­þjón­ustu, sam­göngur, lög­gæslu osfrv.

Fisk­ur­inn í sjónum er ein af grunn­stoðum sam­fé­lags okkar. Hann er eign okkar allra og við þjóðin eigum ský­lausan rétt á að fá sann­gjarnan hluta af þeirri köku

Í stað þess að eyða tíma og pen­ingum í þessa drýldn­is­legu sér­hags­muna­gæslu þá ættum við frekar að byggja upp eitt­hvað sem skiptir raun­veru­legu máli, einsog til dæmis lang­tíma­bæra þjón­ustu við börn og ung­menni í vanda. Þar ríkir alvöru neyð­ar­á­stand.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum